Eru ekki allir með fisk á matseðlinum nokkrum sinnum í viku?!
Það hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því í gamla daga, þegar fiskur var borinn fram soðinn með kartöflum og floti eða steiktur til hátíðabrigða. Þó soðinn fiskur sé auðvitað herramannsmatur, og rati stundum á kvöldmatarborðið hjá mér, þá er einfalt að gera fiskinn að sannkallaðri sælkeramáltið með réttum hráefnum og lítilli fyrirhöfn.
Sjá einnig: Himnesk hafrakaka
Hér í Danmörku, að minnsta kosti þar sem ég bý, er erfitt að nálgast góðan fisk. Það er næstum því ókostur að vera frá Íslandi og vita hvað gott hráefni er, því danskar stórverslanir sjá ekkert að því að bjóða upp á vikugamlan fisk í kæliborðinu, slepjulegan og gráan. Með heppni nær maður þriggja daga gömlu flaki og lætur það duga. Ég reyni þess vegna alltaf að borða eins mikið af fiski og ég get þegar ég mæti í heimsóknir á klakann, og bý svo vel að eiga mömmu og tengdamömmu sem skiptast á að bjóða upp á dýrindis fiskrétti! Síðast þegar ég gerði þennan rétt átti ég einmitt ýsu í frystinum sem mamma hafði gaukað að mér þegar ég var í heimsókn og það er töfrum líkast hvað gæðamunurinn er mikill. Þið eruð einstaklega heppin að hafa allar þessar frábæru fiskbúðir út um allt og ég vona að þið nýtið ykkur það. Og prófið kannski þessa sólríku uppskrift í leiðinni!
Sólarfiskur
– fyrir 2
1 msk ólífuolía
1 vænt roð- og beinhreinsað flak af hvítum fiski, ca. 4-500g, skorið í sæmilega bita
100 g kirsuberjatómatar
8-10 kalamata ólífur (eða venjulegar svartar)
góð lúkufylli fersk basillauf
75 g fetaostur í saltlegi
30 g ristaðar furuhnetur
aðferð
- Penslið olíunni í botninn á eldföstu móti og setjið inn í 190°C heitan ofn.
- Skerið tómata, ólífur og basil frekar smátt og setjið í skál.
- Skerið furuhneturnar gróft og setjið með í skálina.
- Stappið fetaostinn gróflega með gaffli og blandið öllu saman.
- Takið mótið út úr ofninum, leggið fiskinn í og hyljið með ostablöndunni.
- Bakið í 15-20 mínútur, stillið þá á grill og eldið í 3-4 mínútur til viðbótar.
Tips og trikk
- Í þessa uppskrift er hægt að nota flest allan þéttan hvítan fisk.
- Það er ágætt að setja tómatana í sigti eftir að þeir eru skornir og láta mesta vökvann síast af.
- Berið t.d. fram með ofnbökuðum kartöflum og fersku salati.






