Valgerður Bjarnadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, sækist eftir 1-2. sæti á lista Samfylkingarinnar í komandi kosningum. „Við höfum efni á að útrýma fátækt og tryggja fólki efnahagsleg og félagsleg réttindi,“ segir í yfirlýsingu Valgerðar. Þá leggur hún áherslu á baráttunni fyrir því að útgerðarmenn greiði meira fyrir kvótaúthlutanir og baráttuna fyrir nýrri stjórnarskrá.
„Látum auðlindarentuna renna í sameiginlega sjóði, en ekki í hirslur útgerðarmanna og álfyrirtækja. Það er áríðandi að svara kalli fólks eftir nýrri stjórnarskrá sem byggir á tillögum stjórnlagaráðs. Það er áríðandi að færa nýjan mannréttindakafla í stjórnarskrána. Það er áríðandi að jafna atkvæðisrétt fólksins í landinu. Þetta er áríðandi. Þess vegna gef ég kost á mér í forystusæti,“ segir í tilkynningu Valgerðar um þátttöku hennar í prófkjöri Samfylkingarinnar.






