Byggðastofnun hefur styrkt 45 verkefni í gegnum Brothættar byggðir verkefni ríkisstjórnarinnar. Brothættar byggðir tekur til sjö svæða á landinu. Tekið er mið af því að verkefnin sem styrkt eru séu í samræmi við þær áherslur sem íbúarnir hafa sjálfir lagt á íbúaþingum sem haldin voru á öllum svæðunum í upphafi verkefnistímans og stefnumótun verkefnanna.
Styrkir eru veittir árlega og hafa þegar verið styrkt 45 verkefni á sex af svæðunum. Alls hafa verið veittar 57 mkr. í styrki fram til þessa.
Ekki hafa enn verið veittir styrkir á vegum Brothættra byggða í Öxarfjarðarhéraði, en þess má þó vænta með haustinu. Verið er að afgreiða styrkumsóknir í verkefninu á Bíldudal.
Í Grímsey er styrkfjármunum ársins að stærstum hluta varið til úrbóta á fjarskiptasambandi.
Dæmi um verkefni:
- Samfélagsmiðstöð á Bíldudal: Sameiginleg menningarmiðstöð, þar sem íbúar geta komið saman til hinna ýmsu verkefna. Flytja bókasafn Bíldudals í Skrímslasafnið og búa hlýlegt að gott umhverfi með betra aðgengi fyrir eldri borgara og nýtist sem nokkurs konar samfélagsmiðstöð þar sem hægt er að koma saman í smærri eða stærri hópum. Aðstaða fyrir námsmenn til að læra og stunda fjarnám.
- Upplýsingamiðstöð á Breiðdalsvík: Fjöldi ferðamanna kemur til Breiðdalsvíkur. Rekstur upplýsingamiðstöðvar er mikilvægur fyrir ferðamenn og atvinnufyrirtækin í ferðamennsku, en ekki síður íbúa. Verður reynslan notuð í framtíðinni við frekari markaðssetningu og stefnumótun.
- Útivistar- og umhverfisfræðsla í Kirkjubæjarskóla: Fræðsla fyrir nemendur sem búa rétt við þjóðgarð. Nemendum er kennt að njóta útiveru, fá þjálfun í notkun áttavita og staðsetningartækni o.fl. og farnar ferðir.
- Raufarhöfn á gullaldarárunum: Gera á tólf söguskilti um Raufarhöfn ásamt því að vinna að vídeóverkum þeim tengdum. Skiltin verða í mánaðarröð og lýsa markverðum hlutum er gerðust á svæðinu í hverjum mánuði fyrir sig. Skiltin verða hluti af stærri sýningu ef vel tekst til.
- Þurrkun náttúruafurða í Hrísey: Tilraunaverkefni, frumhönnun og smíði á sérhæfðum tækjum til þurrkunar á lífrænum náttúruafurðum. Verkefnið nýtir sér sérstöðu Hríseyjar, nýtir náttúruafurðir eyjarinnar og er atvinnuskapandi.
Fréttatilkynning frá Byggðastofnun






