Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Nútímasamfélög eru fjölmenningarsamfélög!

$
0
0

„Það ber að viðurkenna, að hver maður sé jafnborinn til virðingar og réttinda, er eigi verði af honum tekin, og er þetta undirstaða frelsis, réttlætis og friðar í heiminum. Hafi mannréttindi verið fyrir borð borin og lítilsvirt, hefur slíkt í för með sér siðlausar athafnir, er ofboðið hafa samvisku mannkynsins, enda hefur því verið yfir lýst, að æðsta markmið almennings um heim allan sé að skapa veröld, þar sem menn fái notið málfrelsis, trúfrelsis og óttaleysis um einkalíf og afkomu.“ Mannréttindasáttmáli Sameinuðu þjóðanna.

Samfélög nútímans eru í stöðugri þróun og breytingar á uppruna, tungumálum, menningu og trúarbrögðum eiga sér víða stað. Fólksflutningar á milli samfélaga eru ekki nýtt fyrirbæri og geta ástæðurnar fyrir þeim verið margvíslegar en með aukinni hnattvæðingu hefur fólk öðlast meira frelsi til að flytja á milli landa. Flest samfélög nútímans hafa því þróast út í það sem kallað er fjölmenningarsamfélag.

Hugtakið fjölmenningarlegt samfélag er skilgreint sem samfélag þar sem fjölbreytni ríkir, þar sem fólk af mismunandi uppruna eða menningarsvæðum býr saman í einu samfélagi, ber virðingu fyrir hvort öðru og hefur samskipti sín á milli. Eðlilegt er að í slíku samfélagi fái allir hópar að halda sinni eigin menningu, tungumáli og einkennum en tileinki sér á sama tíma ríkjandi menningu.

Í slíku samfélagi eiga allar manneskjur að búa við mannréttindi, réttlæti, frelsi og jöfn tækifæri til þess að taka þátt í lýðræðislegu samfélagi. Í slíku samfélagi er mikilvægt að hafa í heiðri jöfnuð, umburðalyndi, réttlæti og samstöðu og bera þarf virðingu fyrir frelsi hvers og eins til þess að aðhyllast trúarbrögð, lífsskoðanir og lífsgildi af ólíkum toga. Í slíku samfélagi er ekki rými fyrir mismunun, hvort sem er vegna trúar, menningar, uppruna, þjóðernis, kyns, kynþáttar eða annarra þátta sem einkennir líf eða lífsstíl einstaklinga. Lögð er áhersla á að ólíkur bakgrunnur fólks og fjölbreytni í mannlífinu gerir samfélagið auðugra og skemmtilegra.

Með vaxandi fjölbreytileika samfélaganna og aukinni fjölmenningu um allan heim verður við vör við vaxandi þjóðernishyggju, andúð í garð útlendinga og fordóma í garð minnihlutahópa sem oft á tíðum þróast út í ótta og hatur í garð innflytjenda í samfélaginu. Það er mikilvægt að vinna gegn útbreiðslu slíkra hugmynda, sem oftast eru ekki byggðar á raunhæfum dæmum, enda hafa rannsóknir sýnt fram á að fordómar í garð innflytjenda eru oft hvað mestir þar sem eru hvað fæstir innflytjendur. Slíkt er sameiginlegt verkefni fyrir stjórnvöld, fræðasamfélagið, fjölmiðla sem og alla þegna samfélagsins.

Það verður best gert með því að leggja áherslu á uppbyggilega umræðu um gildi þess samfélags sem við viljum í sameiningu skapa hér á landi, samræðu á milli ólíkra hópa og fræðslu um fjölmenningarsamfélagið, kosti þess og hvað það hefur fram að færa. Leggja þarf áherslu á að íslensku samfélagi stafar ekki ógn af innflytjendum, fjölmenningu eða trúarbrögðum heldur frekar af öflum sem telja sig yfir aðra hafna vegna þjóðernis, kynþáttar, litarhafts, trúarbragða, menningar eða annarra slíkra þátta og leggja þannig undirstöður þess sem gera samfélög heilbrigð og góð í hættu.

það er íslensku samfélagi til gæfu að hingað flytjist fólk til þess að finna starfskröftum sínum, hugviti og hæfileikum farveg. Þátttaka nýrra íbúa er mikilvæg fyrir samfélagið í heild sinni og því er mikilvægt að leita leiða til að jafna stöðu einstaklinga og hópa í fjölmenningarlegu samfélagi og stuðla þannig að félagslegu jafnrétti og réttlæti og koma í veg fyrir vaxandi fordóma og þjóðernishyggju.

Til þess að við getum í sameiningu byggt samfélag þar sem borgarar bera virðingu hver fyrir öðrum og njóta jafnréttis þurfum við að hjálpast að, taka vel á móti þeim sem hingað koma og gera okkar besta til þess að tryggja að allir sem hér eru fyrir og þeir sem hingað koma verði virkir þátttakendur í samfélaginu. Þar skipta móttökurnar mestu máli. 

Fátt ræður fremur örlögum um framtíð okkar og komandi kynslóða en hvernig staðið er að uppbyggingu í samfélaginu. Það samfélag sem við byggjum á ekki að vera samfélag sem elur á þjóðernisrembingi og ótta við nágrannann heldur samfélag sem byggist á umburðarlyndi, samstöðu, réttlæti og jöfnuði fyrir alla.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi og frambjóðandi í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images