AMY WINEHOUSE HEIÐURSTÓNLEIKAR
Söngkonan Bryndís Ásmundsdóttir flytur öll bestu lög Amy Winehouse á glæsilegum tónleikum í Gamla Bíó þann 3. september næstkomandi. Bryndísi til halds og trausts verður einvala lið íslenskra hljóðfæraleikara, ásamt blásurum og bakröddum.

Öllu verður tjaldað til við að gera tónleikaupplifunina sem magnaðasta fyrir augu og eyru.
Tónleikarnir hefjast kl 21, en húsið opnar kl 20.
Bryndís mætti með hljómsveit í Virka morgna þar sem hún söng lag Winehouse, Love is a losing game, hér getið þið hlustað á þann fína flutning.
Ekki missa af þessum frábæra viðburði! Miða má finna hér!
Hljómsveit:
Bryndís Ásmundsdóttir – söngur
Ingi Björn Ingason – bassi
Kristinn Snær Agnarsson – trommur
Birkir Rafn Gíslason – gítar
Valdimar Kristjónsson – hljómborð
Sólveig Morávek – tenór saxófónn
Rósa Guðrún Sveinsdóttir – baritón saxófónn
Elvar Bragi Kristjónsson -trompet
Kristín Inga – bakrödd
Sara Blandon – bakrödd







