Dagblaðið fullyrðir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins muni gefa kost á sér á lista Viðreisnar. Þorgerður mun samkvæmt heimildum DV leiða lista flokksins í Kraganum eða Suðvesturkjördæmi.
Samkvæmt fréttastofu Stöðvar 2 á Bjarni Benediktsson að hafa biðlað til hennar með að gefa kost á sér fyrir Sjálfstæðisflokkinn en því bónorði hafi Þorgerður Katrín hafnað.






