Leikkonan og formaður stjórnar Félags íslenskra leikara, Birna Hafstein, hyggur á pólitískan feril og mun taka sæti á lista Viðreisnar. Birna birti eftirfarandi tilkynningu á Facebook í morgun:
„Kæru vinir,
Ég hef ákveðið að taka þátt í komandi kosningabaráttu með því að taka sæti á lista hins nýja flokks Viðreisnar. Það hefur lengi blundað í mér löngun til að fara í stjórnmál til að vinna þeim áherslum sem mér finnst skipta samfélagið máli, brautargengi. Ég hef alltaf dáðst að því fólki sem býður sig fram og leggur í þessa baráttu og tel að nú sér rétti tíminn fyrir mig að láta á þetta reyna.
Ég valdi að fara með Viðreisn því þar er stjórnmálaafl sem ég finn samhljóm með. Ég hef alltaf verið frjálslynd í skoðunum og tel mikilvægt að allir hafi greiðan aðgang að grunnþjónustu samfélagsins óháð efnahag, búsetu og uppruna. Þannig eiga öll börn í okkar samfélagi að finna að þau eigi tækifæri og möguleika á að ná langt í lífinu.
Ég tel að við verðum að byggja fjölbreytt þjóðfélag þar sem allir geti notið sín. Ég er ötull talsmaður menningar og ætla mér að leggja á það áherslu að efla þessa grunnstoð í okkar samfélagi. Ég tel að öflugt menningarsamfélag sé lífsnausðynlegt fyrir þjóð eins og okkar hvort sem er í hagrænum eða andlegum skilningi.
Ég er bjartsýn manneskja og ég er þakklát fyrir að hafa fæðst og alist upp á Íslandi. Ég trúi því að með sanngirni, samkennd og hugrekki að leiðarljósi sé hægt að ná enn betri árangri í að byggja upp réttlátt og fjölbreytt samfélag.“



