Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kjúklingavængir með fersku pestói

$
0
0

Innihald
2 dósir af fersku Rana-pestói
1 kg kjúklingavængir
Salt

Fyrir chili-olíu

1 bolli Extra virgin ólífuolía
1 msk. saxaður rauður chilipipar

PEsto sauceÞurrkið kjúklingavængina og setjið í plastpoka ásamt nægu pestói til að þekja vængina vel. Lokið pokanum og nuddið pestóinu vel á vængina.
Hitið ólífuolíuna í litlum skaftpotti yfir lágum hita, bætið í chilipipar og leyfið honum að ristast í ca 10 mínútur. Hellið olíunni með chilinu í kalda skál og leyfið að kólna í ca klukkutíma. Sigtið olíuna frá.
Forhitið grillið eða grillpönnuna og dreypið með olíu. Takið vængina úr pokanum, ef of mikið pestó þekur einhvern ákveðinn hluta þurrkið létt. Kryddið létt með salti. Grillið vængina þangað til þeir eru steiktir í gegn (tekur 4-6 mínútur á hvorri hlið).
Þegar vængirnir eru eldaðir veltið þeim upp úr afganginum af pestóinu (sem ekki var notaður í pokann) og hellið yfir chili-olíu. Gott að bera fram með kúrbít eða gúrku í spjótum.

Krom flaska sveitt 33clTilvalið að drekka ískaldan Krombacher með vængjunum. Himneskt kombó!

Krombacher er einn mest seldi bjór Þýskalands og hentar afskaplega vel með mat sem og einn og sér. Ilmurinn er mjúkur, maltkenndur með fínlegu malt- og humlabragði og þurrum eftirkeim þar sem vottar fyrir vönduðum humlum.
Krombacher er ekta pilsnerbjór sem hefur verið bruggaður síðan 1516, samkvæmt hinum ströngu þýsku bjórhefðum.
Vatnið sem notað er í bjórinn, er náttúrulegt uppsprettuvatn úr Roothar-fjöllum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283