Íbúar á höfuðborgarsvæðinu vöknuðu í morgun við alhvíta jörð. Fyrir norðan hefur verið með endemum snjóþungt og við óskuðum eftir myndum frá Siglufirði en þar kyngdi niður snjó á dögunum.
Heiðurinn af ljósmyndunum og samsetta myndbandinu á listamaðurinn Jón Steinar Ragnarsson.