Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Píratar fyrir samfélagsbreytingar

$
0
0

Kristín Vala Ragnarsdóttir Pírati skrifar:

Ég fagna því að þegar kosningar nálgast mælist fylgi Pírata á milli 25% og 30%. Ég er hvorki hakkari né unglingur, heldur miðaldra vísindakona, og ég er Pírati.  Píratar eru á öllum aldri og hafa víðtækan bakgrunn.  Þeir eru fólk sem láta sig samfélagsmálin varða.  Grasrót pírata er mjög virk og þar er stefna flokksins unnin af alúð af flokksmönnum sem eru starfsmenn ríkisstofnunana, menntastofnana, ráðgjafafyrirtækja, fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum. Þeir eru nemendur, listamenn, lögfræðingar, kennarar, ellilífeyrisþegar – sum sé þversnið af íslensku samfélagi.

Ég kaus Pírata bæði í sl. alþingiskosningum og borgarstjórnarkosningum.  Ég hef fylgst vel með stefnumálum Pírata og er ánægð með árangur sem þeirra stjórnmálamenn hafa náð.  Ég hafði aldrei verið skráð í stjórnmálaflokk en ég gekk í flokkinn í sumar og tók þátt í prófkjöri fyrir höfðuðborgarsvæðið.

Ég er Pírati vegna þess að ég vil uppræta róttekna spillingu í íslensku samfélagi.  Ekkert hefur valdið mér meiri áhyggjum og vonbrigðum eftir að ég flutti til baka til Íslands eftir 30 ára búsetu erlendis.  Ég skil ekki hvað varð um þau gildi sem ég var alin upp við.  Hér ríkir ástand sem ekki er hægt að una sér við – þar sem t.d. verktakar fá ekki verkefni hjá hinu opinbera nema styrkja „réttan“ flokk, félagasamtök og stjórnmálaflokkar fá ekki þjónustu vegna þess að þau eru ekki að fylgja „réttu“ málunum eftir, og ráðherrar úthluta vinum og vandamönnum bitlinga sem þeir geta auðgast á.  Þessu verður að breyta.  Gagnsæi er styrkur þáttur í Grunnstefnu Pírata.  Í grunnstefnunni er áhersla á gagnrýna hugsun og upplýsta stefnu. Ég er Pírati vegna þess að ég vil byggja upp samfélag þar sem gagnsæi ríkir og borgarar geta tekið þátt í ákvarðanatöku.

Ég er Pírati vegna þess að þeir hafa metnaðarfulla sjávarútvegsstefnu.  Ég vil að þjóðin fái sanngjarnt gjald fyrir fiskinn úr sjónum, sem er okkar sameiginlega auðlind.  Jón Steinsson hagfræðingur hefur sýnt fram á að Færeyingar, sem bjóða upp aflaheimildir, fái 5 sinnum meira fyrir þorsk, 24 sinnum meira fyrir makríl og 25 sinnum meira fyrir síld.  Píratar vilja taka upp útboð á aflaheimildum til þess að þjóðin fá sanngjarnt veiðigjald.  Píratar vilja ekki viðhalda núverandi kerfi þar sem lækkun veiðigjalda hefur ollið tilhlíðandi arðgreiðslum kvótakónga til sjálfs sín.

Ég er Pírati vegna þess að þeir vilja styrkja heilbrigðis- og menntakerfið sem allir eiga að hafa jafnan aðgang að.  Félagi minn fór með son sinn á á bráðamóttöku í vikunni vegna þess að hann virtist vera að fá bráðaofnæmiskast.  Greiða þurfti 6,200 kr fyrir 10 mín spjall við lækni og 12,717 krónur fyrir lyfin sem skrifað var upp á.  18,917 krónur.  Vinkona mín hefur verið í krabbameinsmeðferð og lækna- og lyfjakostnaður hefur farið vel yfir hálfa milljón á ári.  Svona óréttlátu kerfi vilja Píratar breyta.

Ég er Pírati vegna þess að flokkurinn er að setja sér metnaðarfulla loftslagsstefnu. Aðterðir gegn loftslagsbreytingum eru mikilvægasta verkefni okkar tíma og Píratar ætla að taka ábyrgð en varpa ekki vandamálunum til komandi kynslóða.

Ég er Pírati vegna þess að þeir eru að setja sér velferðarstefnu.  Í velferðarríki þarf að setja aðra vísa en hagvöxt til að sýna fram á velgengni þjóðar.  Píratar vilja setja nýja velferðarvísa til að byggja upp sanngjarnt samfélag þar sem borgurunum líður vel.

Ég er Pírati vegna þess að ég vil nýja stjórnarskrá, en ekki setja plástra á núverandi Stjórnarskrá Íslands.  Ég vil að drög að stjárnarskrá frá Stjórnlagaráði verði samþykkt.  Þessi stjórnarskrárdrög voru gerð af borgurum sem létu sig stjórnarskrána varða – nógu mikið til að bjóða sig fram til stjórnlagaþings. Breytingarnar eru alls ekki róttækar eins og Jón Þór Ólafsson og Björn Leví Gunnarsson hafa sýnt fram á.  Um 80% af Stjórnarskrá Íslands helst.  Einungis smávægilegar breytingar eru á skipun og brottvísun yfirvalda.  Viðbót er hins vegar lögð til í nýju drögnunum frá stjórnlagaráði sem uppfærir stjórnarskránna til nútíðar.  Stjórnarskrá Íslands er 72 ára og því komin til ára sinna.  Ég hvet alla til að kynna sér samanburð Jóns Þórs og Björns Leví og vera ekki hrædd við þær breytingar á stjórnarskrá sem lagðar eru til.

Ég er stoltur Pírati vegna þess að ég vil kerfisbreytingar til jafnara, sanngjarnara, og gagnsærra þjóðfélags, sem eru grunnþættir í stefnu og starfi floksins.

Kristín Vala Ragnarsdóttir er í 8. sæti á lista Pírata í SV kjördæmi (Kraganum).


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images