Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Formaður Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík vill LÍN-frumvarp samþykkt með hraði

$
0
0

Rebekka Rún Jóhannesdóttir, formaður stúdentafélags Háskólans í Reykjavík, segir við Morgunblaðið að hún óttist að andstaða minnihluta Alþingis geti tafið samþykkt LÍN-frumvarps Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, um mörg ár.

Þá kemur fram að hún telji frumvarpið mikilvægt skref fyrir hagsmunabaráttu stúdenta. „Þar er búið að svara mikilvægum athugasemdum okkar. Um þak á vöxtunum, að doktorsnámið verði lánshæft, að greiðslur af láni stöðvist verði fólk fyrir veikindum og heimild til afskrifta,“ segir hún við Morgunblaðið. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar vilja ekki að frumvarpið verði samþykkt á yfirstandandi þingi enda frumvarpið afar umdeilt og stutt í kosningar.

Rebekka Rut segir við Morgunblaðið að hætt við því að málið endi á byrjunarreit ef það stöðvist í meðförum þingsins nú. „Og að þetta geti stoppað á næstu árum ef ekkert gerist núna. Það er mjög leiðinlegt að þurfa að ýta þessu í gegn núna á stuttum tíma en við viljum frekar sjá svona mikilvægar breytingar verða sem fyrst þó að við munum halda áfram að berjast fyrir hagsmunum okkar til framtíðar.“

Aðalmynd: Stjórn Stúdentafélags HR, Rebekka Rún er fyrir miðju.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images