Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hvernig eflum við byggðir landsins?

$
0
0

Með því að gera sveitarfélög fjárhagslega sjálfbær til þess að þau geti staðið undir þeirri þjónustu sem þau eiga að veita.

Hvernig förum við að því?

Í núverandi fyrirkomulagi þá fá sveitarfélög helst tekjur í gegnum útsvar einstaklinga, fasteignaskattur og svo framlög úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Sveitarfélög hafa einnig einstaka önnur gjöld til þess að hafa upp í kostnað, svo sem leikskólagjöld, gatnagerðargjöld og þvíumlíkt. Yfirleitt er það útsvarið sem er stæsti tekjustofninn en það var 172 milljarðar fyrir árið 2016, fasteignaskattar voru rétt rúmir 32 milljarðar og jöfnunarsjóðurinn voru 20 milljarðar.

Tekjur sem sveitafélögum vantar eru tekjur af starfsemi og þjónustu fyrirtækja. Tekjur með því að gera útsvar hluta af tekjuskatti fyrirtækja. Tekjur með því að hluti af virðisaukaskatti sem er innheimtur af vörum og þjónustu í viðkomandi sveitarfélagi renni beint til þess sveitarfélags. Við það myndast hvati til þess að byggja upp starfsemi í sveitarfélaginu sem byggir ekki bara á fasteignasköttum eða útsvari einstaklinga.

Stefna Pírata er að byggja upp sjálfstæð sveitarfélög. Til þess að sveitarfélögin geta verið sjálfstæð þá verða þau einnig að vera sjálfbær fjárhagslega. Til þess að geta orðið sjálfbær fjárhagslega þá verður að rjúfa fátækragildru þeirra og búa til hvata til uppbyggingar sem leiðir til tekna.

 

Virðisaukaskattur árið 2015 var 186 milljarðar og rann allur í ríkissjóð. Með því að láta hluta af vsk. renna til sveitarfélaga þá minnka tekjur ríkissins jafn mikið auðvitað. Á móti myndu jöfnunarstyrkir smá saman hverfa vegna þess að sveitarfélögin ná að byggja upp öfluga starfsemi sem myndi standa undir rekstri á skylduþjónustu sveitarfélaganna. Þetta fyrirkomulag væri sérstaklega árangursríkt vegna ferðaþjónustunnar þar sem vsk. af verslun og þjónustu ferðamanna myndi sitja eftir heima sem og vsk. af ferðagjöldum.

Stefna Pírata gengur nefnilega út á að útsvarið af tekjuskatti eða vsk. renni til sveitarfélagsins þar sem varan er seld eða þjónustan er veitt. Þannig, ef fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu selur ferðir í Bláskógarbyggð þá rennur útsvarshlutfall vsk. af þeirri þjónustu til Bláskógabyggðar, ekki til sveitarfélagsins þar sem viðkomandi fyrirtæki er með höfuðstöðvar. Ef mjólk er keypt í Bónus á Egilsstöðum þá fer hluti virðisaukaskattsins til Fljótsdalshérðaðs.

Píratar vilja dreifa valdinu. Píratar vilja fjárhagslega sjálfstæð sveitarfélög. Það er lykillinn að öflugum byggðum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images