Í kvöld verður slökkt á götulýsingu á völdum stöðum í Reykjavík og á Húsavík svo íbúar og gestir geti notið magnaðrar norðurljósasýningar sem spáð er á himni þegar aldimmt verður orðið í kvöld og nótt.
Norðurljósin hafa glatt Reykvíkinga og aðra landsmenn að undanförnu og svo verður einnig í kvöld 28. september samkvæmt norðurljósaspá. Reykjavíkurborg hefur því ákveðið að slökkva götulýsingu í völdum hverfum milli kl. 22 og 23 en þá eru góðar líkur á mikilli virkni norðurljósa.
Húsvíkingar hafa ákveðið fara að fordæmi Reykvíkinga og slökkva á götuljósum á Húsavík í kvöld til kl 23.00.
Ástæðan er sú að spáð er glæsilegri norðurljósasýningu í kvöld. „Vonir standa til að það verði heiðskýrt þannig að sýning náttúrunnar skili sér sem allra best. Vegfarendur eru beðnir um að sýna varkárni á meðan götuljósin eru slökkt.“
Virknin var góð seint í gærkvöldi og náði svo hámarki milli kl. 2 og 3 um nóttina. Miklar líkur eru á að svo verði einnig í kvöld. Til að norðurljósin sjáist betur og víðar mun verða slökkt á götuljósum í Reykjavík í kvöld á milli kl. 22 og 23. Verður slökkt á lýsingu í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Grafarvogi, Laugarási, Heima- og Vogahverfi, Túnum, Skólavörðuholti, Fellum, Bergum og Hólum í Breiðholti ásamt Seljahverfi.
Reykvíkingum og íbúum Húsavíkur ætti því að gefast einstakt tækifæri á því að sjá magnaða norðurljósasýningu í kvöld við betri aðstæður en oft áður. Enginn veit þó fyrr en eftir á hvenær virknin verður mest.
Íbúar eru hvattir til að taka þátt og slökkva ljósin í íbúðarhúsum sínum líka svo myrkvunin verði sem mest og ljósmengun sem minnst. Þá mætti gjarnan slökkva á lýsingum bygginga í borginni.
Lögreglan, slökkviliðið og Orkuveita Reykjavíkur hefur verið upplýst um málið Fólk er hvatt til að aka einstaklega varlega á þessum svæðum og sýna tillitssemi á meðan myrkvun stendur.




