„Það eru fleiri lögreglustjórar í landinu en Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu og við erum ekki að sjá þessu svaðalegu vandamál, sem virðast vera hér á höfuðborgarsvæðinu, í öðrum lögregluembættum á landinu,“ sagði Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, í viðtali á Útvarpi Sögu, á dögunum. Hann segist velta fyrir sér hvað sé eiginlega í gangi hjá Lögreglunni og að erfitt sé að sjá fyrir sér að Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, geti setið áfram í embætti.
„Það er alveg ljóst, hvað sem hverjum kann um það að finnast, þá þarf að setja af stað einhverjar rannsókn á því hvað þarna er í gangi. Það er alveg ljóst,“ sagði Snorri. Hann benti á að sett var í gang rannsókn á samskiptavanda yfirstjórnar. Hann þekki ekki til framgangs þeirrar rannsóknar. Hann segir innanríkisráðuneytið ekki hafa upplýst landssambandið um hvernig þeirri rannsókn miði. „Í upphafi árs og núna á síðustu vikum þá fór að bera mikið á því að þessi samskiptavandi væri nú ekkert bara á yfirstjórnarlaginu,“ sagði hann og bætti við að hann vissi ekki hvað væri til ráða en sagði nauðsynlegt að kalla til þar til færa einstaklinga og að greina vandann.
– Er þetta valdabarátta? „Mögulega að einhverju leyti. Eins og ég segi þá hef ég ekki hugmynd um hver raunverulega vandinn er. Það sem ég hins vegar veit að þarf að gerast er að það þarf að skoða hann. Það þarf að setjast niður og fá einhverja þartilbæra aðila, utanaðkomandi. Lögreglan er bara komin á þann stað núna að hún ræður ekkert við þetta lengur ein og sér.“
Snorri sagði stöðu líkt og þá sem nú er uppi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vera mjög alvarlega. Svona staða geti komið niður á heilsu starfsmanna. „Við teljum okkur, hjá Landssambandi lögreglumanna, vera farin að sjá alvarleg merki í þá átt; að þetta ástand sé farið að hafa skaðleg áhrif á heilsu okkar félagsmanna.“
– Á meðan ástandið er svona eins og það er innan lögreglunnar í dag, getur lögreglustjórinn setið áfram? „Það er erfitt að sjá það satt best að segja. Það er erfitt að sjá það.“




