Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hvað er BDSM?

$
0
0

Ásta Lilja Bragadóttir skrifar:

BDSM er ensk skammstöfun fyrir bondage, discipline, domination, submission, sadism og masochism. Birtingaform BDSM er einstaklingsbundið og getur verið allt frá fantasíum til hneigðar. BDSM Konur hafa til að mynda, skilgreint BDSM á eftirfarandi máta: ,,BDSM-hneigð vísar til þess að einstaklingar laðist að hverjum öðrum gegnum samrýmanlegt BDSM eðli, óháð kyni eða kynvitund, og getur verið hluti af kynverund. Aðlöðunin getur verið kynferðisleg eða ekki. Hneigðin getur verið margþætt og breytileg.”

Í raun má segja að BDSM sé frelsi. Frelsi til að vera sá sem maður er, til að líka vel við það sem manni líkar vel við – hvort sem um er að ræða fólk eða munalosta. Það felst nefnilega ótrúlegt frelsi í BDSM. Því BDSM er víðfeðmt og tekur í raun til okkar allra. Hægt er að líta á BDSM sem kvarða sem byrjar á minnst og endar á mest, mælt í sjö mismunandi þáttum; 1.) bindingar , 2.) agi, 3.) drottnun, 4.) undirgefni, 5.) kvalalosta, 6.) sársaukanautn og 7.) munalosta – þættirnir geta verið óháðir eða háðir hver öðrum, allt eftir því hver á í hlut. Fyrst svo er, á þetta við um okkur öll. Varla er sá einstaklingur til sem ekki fengi nein stig í einhverjum þessarra þátta – og í raun má segja að ef ,,ekkert” er það sem höfðar til þín, mætti færa rök fyrir því að það væri þitt kink og þar með ertu dottinn á kaf ofan í BDSM skilgreininguna. Mikið, lítið, ekkert, allt –  það skiptir ekki öllu máli.

En til þess að eitthvað geti verið BDSM þarf það að vera öruggt, meðvitað og með samþykki. Í raun þýðir þetta að þú vilt það. Sama hvort það er athöfnin, hegðunin, kynlífið, fólkið, dótið, tækin og tólin, eða hugarfarið sem sóst er eftir. Eitthvað við BDSM höfðar til þess sem sækir í BDSM. Þetta er í raun ekki flókið. BDSM getur verið lítið, það getur verið mjúkt, blítt og náið. Það getur líka verið mikið, yfirþyrmandi, hart og fullt af öllu mögulegu. Það getur verið órjúfanlegur hluti af kynlífi eða algjörlega ótengt kynlífi. Sumir geyma sitt BDSM vel innan hjónabandsins, sumir eru í BDSM fjölástasamböndum, sumir eru samkynhneigðir, aðrir eru pankynhneigðir, sumir eru trans, ei-kynhneigðir, leitandi, og allskonar. Sum okkar eru algjörlega opin með okkar BDSM, aðrir eru í felum og fyrir sum okkar er þetta bara hluti af einkalífinu og kemur ekki öðrum við. Við erum öll allskonar, af hverju ætti BDSM að vera eitthvað öðruvísi? BDSM getur verið svakalega kynþokkafullt og það getur verið algjörlega á tæknilegu nótunum.

Það er í raun bara langanir, þrár og hugmyndaflug sem takmarkar þitt og ykkar BDSM. Að láta stjórna sér getur til dæmis verið að einhver segir til um í hvernig fötum maður á að vera, vera stjórnað í kynlífi og/eða daglegum gjörðum. Hýðingar og athafnir tengdar sársauka (kvalalosta og sársaukanautn) geta verið allt frá því að flengja einhvern léttilega með opnum lófa, klóra, eða nota tæki og tól eins og belti, eða þar til gerða leðurspaða, floggera og svo framvegis. Allt eftir því hvað höfðar til manns.   

Þitt BDSM er ekki endilega eins og mitt BDSM, og okkar BDSM er allt annað. Ég þarf ekki að skilja þitt BDSM – en á meðan það uppfyllir skilyrði BDSM iðkunar ber mér að virða það. BDSM getur tekið breytingum. Mikilvægt er að huga að sínu BDSM og sjá til þess að allt sem maður gerir sé gert á eigin forsendum, vegna þess að maður vill það. Að það sé öruggt, meðvitað og með samþykki. Njótið þess.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images