Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hrunið er átta ára – svona voru forsíður blaðanna

$
0
0

Hrun íslensku bankanna, og íslensks efnahagslífs í kjölfarið, er átta ára um þessar mundir. Aðdragandinn að hruninu var nokkur og erfitt er að segja nákvæmlega hvaða dag hrunið ætti að kalla sinn afmælisdag. Frá 29. september til 8. október 2008 féllu þrír stærstu bankar landsins hver á fætur öðrum. Glitnir var þjóðnýttur 29. september, þann 6. október voru hin svonefndu neyðarlög sett, degi seinna, þann 7. október tók Fjármálaeftirlitið yfir rekstur Landsbanka Íslands og tveimur dögum seinna var Kaupþing banki, sem í dag heitir Arion, tekinn yfir.

Gjaldþrot bandaríska bankans Lehman Brothers í september 2008 setti Glitni í erfiða stöðu þar sem Glitnir reiddi sig á lán frá Lehman Brothers. Af þessum sökum er 15. september 2008, af mörgum talinn upphafsdagur íslenska efnahagshrunsins. Þau sem aðhyllast hugmyndir um að hrunið hafi fyrst og fremst átt sér erlendar orsakir eru gjörn á að benda á fall Lehmansbræðra sem upphaf skuldakrísu bankanna. Aðdragandinn var þó umtalsvert lengri. Og viðvörunarljós höfðu blikkað um langt skeið.

Um langt skeið var reynt að vara við yfirvofandi hruni en lítill áhugi var á að heyra slík. Morgunblaðið mátti þannig búa mikla gagnrýni vegna umfjöllunar blaðsins um skýrslu Danske Bank um veika stöðu íslenska bankakerfiðsins. Árið 2007 háði Samfylkingin kosningabaráttu undir formerkjum þess að framundan væri yfirvofandi hrun. Í efnahagsstefnu flokksins „jafnvægi og framfarir“ segir meðal annars um yfirvofandi hrun: „Hættan er sú að Ísland missi trúverðugleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, en þá væri voðinn vís með hækkandi vaxtaálagi, gengisfalli og verðbólgugusu. Merki um þessa hættu mátti sjá um miðjan mars þegar matsfyrirtækið Fitch Ratings lækkaði lánshæfiseinkunn ríkissjóðs bæði í innlendri og erlendri mynt.“ Nokkrum vikum síðar var Samfylkingin gengin í stjórn með Sjálfstæðisfloknum og efnahagsstefnan var gelymd og grafin.

Um miðjan 2007  felldi matsfyrirtækið Fitch Ratings lánshæfiseinkunn ríkissjóðs bæði í innlendri og erlendri mynt. Sú ákvörðun var harðlega gagnrýnd af yfirvöldum.

Afleiðingar Hrunsins urðu tilefni að milliríkjadeilum Íslands við Bretland og Holland vegna Icesave-reikninga Landsbankans. Samningar íslenska ríkisins vegna Icesave voru tvisvar felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Alþingi Íslands skipaði sérstaka rannsóknarnefnd sem hafði það hlutverk að komast að því hverjar orsakir hrunsins voru. Rannsóknarnefndin skilaði af sér skýrslu 12. apríl 2010 og í kjölfarið var Geir Haarde kærður til landsdóms að ákvörðun Alþingis. Landsdómur sakfelldi Geir fyrir vanrækslu í starfi sínu sem forsætisráðherra. Geir var ekki dæmdur til refsingar. Fljótlega eftir að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar tók við stjórn landsins var Geir skipaður sendiherra Íslands í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna. Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra sá um skipan Geirs.

Í tilefni að afmæli hrunsins og uppgjörinu sem enn virðist ólokið hefur Kvennablaðið safnað sama forsíðum dagblaðanna frá þjóðnýtingu Glitnins og dagana eftir.

Mánudagurinn 29. september 2008

Forsíða Morgunblaðsins, mánudaginn 29. september 2008. „Vilja efla bankana“ var burðarfyrirsögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, mánudaginn 29. september 2008. „Vilja efla bankana“ var burðarfyrirsögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Fréttablaðsins,29. september 2008. „Slátrið slær í gegn í harðnandi árferði“ var burðarfyrirsögn forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, mánudaginn 29. september 2008. „Slátrið slær í gegn í harðnandi árferði“ var burðarfyrirsögn á forsíðu blaðsins.

 

Þriðjudagurinn 30. september 2008

Forsíða 24 stunda, þriðjudaginn 30. september. „Landsbankinn vill Glitni“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

24 stundir, þriðjudaginn 30. september. „Landsbankinn vill Glitni“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða DV, þriðjudaginn 30. september. „Hefnd Davíðs“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða DV, þriðjudaginn 30. september. „Hefnd Davíðs“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Fréttablaðsins, þriðjudaginn 30. september. „Landsbankamenn á kvöldfundi í forsætisráðuneytinu“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, þriðjudaginn 30. september. „Landsbankamenn á kvöldfundi í forsætisráðuneytinu“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Morgunblaðsins, þriðjudaginn 30. september. „Varð ekki aftur snúið“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, þriðjudaginn 30. september. „Varð ekki aftur snúið“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Viðskiptablaðsins, þriðjudaginn 30. september. „Umdeild björgun“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Viðskiptablaðsins, þriðjudaginn 30. september. „Umdeild björgun“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Miðvikudagurinn 1. október 2008

Forsíða Viðskiptablaðsins, miðvikudaginn 1. október. „Reiknað með 60 milljarða halla“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

24 stundir, miðvikudaginn 1. október. „Reiknað með 60 milljarða halla“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða DV, miðvikudaginn 1. október. „Ekki meir Geir“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða DV, miðvikudaginn 1. október. „Ekki meir Geir“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Fréttablaðsins, miðvikudaginn 1. október. „Yfirtaka á Glitni hefti ríkiðr“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, miðvikudaginn 1. október. „Yfirtaka á Glitni hefti ríkiðr“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Morgunblaðsins, miðvikudaginn 1. október. „Vilja gæta jafnræðis“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, miðvikudaginn 1. október. „Vilja gæta jafnræðis“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Viðskiptablaðsins, miðvikudaginn 1. október. „Yrði stærsti bankinn“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Viðskiptablaðsins, miðvikudaginn 1. október. „Yrði stærsti bankinn“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Fimmtudagurinn 2. október 2008

Forsíða Viðskiptablaðsins, fimmtudaginn 1. október. „Öll störf í stórhættu“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

24 Stundir, fimmtudaginn 2. október. „Öll störf í stórhættu“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Viðskiptablaðsins, fimmtudaginn 2. október. „Kreppan sligar“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða DV, fimmtudaginn 2. október. „Kreppan sligar“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Fréttablaðsins, fimmtudaginn 2. október. „Viðrar hugmynd um þjóðstjórn“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, fimmtudaginn 2. október. „Viðrar hugmynd um þjóðstjórn“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Morgunblaðsins, fimmtudaginn 2. október. „Fjárþörfin 230 milljarðar“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, fimmtudaginn 2. október. „Fjárþörfin 230 milljarðar“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Viðskiptablaðsins, fimmtudaginn 2. október. „Straumur styrkir Landsbankann“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Viðskiptablaðsins, fimmtudaginn 2. október. „Straumur styrkir Landsbankann“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Föstudagurinn 3. október 2008

Forsíða 24 Stunda, Föstudaginn  3. október. „Neyðarástand“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

24 Stundir, Föstudaginn 3. október. „Neyðarástand“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða DV, föstudaginn 3. október. „Sægreifinn sem Davíð sveik“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða DV, föstudaginn 3. október. „Sægreifinn sem Davíð sveik“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Fréttablaðsins, föstudaginn 3. október. „Erfileikum mætt af þunga“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, föstudaginn 3. október. „Erfileikum mætt af þunga“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Morgunblaðsins, föstudaginn 3. október. „Glitniskaup marka ekki endapunkt“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, föstudaginn 3. október. „Glitniskaup marka ekki endapunkt“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Viðskiptablaðsins, föstudaginn 3. október. „Lánalínur lokast“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Viðskiptablaðsins, föstudaginn 3. október. „Lánalínur lokast“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Laugardagurinn 4. október 2008

Forsíða Fréttablaðsins, laugardaginn 3. október. „Beðið aðgerða Seðlabanka“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, laugardaginn 4. október. „Beðið aðgerða Seðlabanka“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Morgunblaðsins, laugardaginn 4. október. „Aðeins í örugga höfn“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, laugardaginn 4. október. „Aðeins í örugga höfn“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Sunnudagurinn 5. október 2008

Forsíða Fréttablaðsins, sunnudaginn 5. október. „Svör fyrir opnun markaða“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, sunnudaginn 5. október. „Svör fyrir opnun markaða“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Morgunblaðsins, Sunnudaginn 5. október. „Tekist á um ESB-tillögu“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, sunnudaginn 5. október. „Tekist á um ESB-tillögu“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Mánudagurinn 6. október 2008

Forsíða Morgunblaðsins, Mánudaginnn 6. október. „Sameiginleg aðkma að Glitni“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, mánudaginnn 6. október. „Sameiginleg aðkma að Glitni“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða DV, mánudaginn. október. „Þeir réðu ferðinni“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða DV, mánudaginn 6. október. „Þeir réðu ferðinni“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Fréttablaðsins, mánudaginn 6. október. „Bankainnistæður tryggðar“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, mánudaginn 6. október. „Bankainnistæður tryggðar“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Þriðjudagurinn 7. október 2008

Forsíða 24 stunda, þriðjudaginn 6. október. „Neyðarlög“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða 24 stunda, þriðjudaginn 7. október. „Neyðarlög“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða DV, þriðjudaginn 7. október. „Skuldurum verður bjargað“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða DV, þriðjudaginn 7. október. „Skuldurum verður bjargað“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Fréttablaðsins, þriðjudaginn 7. október. „Allir bankarnir opna í dag“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, þriðjudaginn 7. október. „Allir bankarnir opna í dag“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Morgunblaðsins, þriðjudaginn 7. október. „Stofna nýja banka“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, þriðjudaginn 7. október. „Neyðarlög á Íslandi“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Viðskiptablaðsins, þriðjudaginn 7. október. „Bankar í uppnámi“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Viðskiptablaðsins, þriðjudaginn 7. október. „Bankar í uppnámi“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Miðvikudagurinn 8. október 2008

Forsíða 24 stunda, miðvikudaginn 8. október. „Yfir 700 milljarðar á ábyrgð ríkisins“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

24 stundir, miðvikudaginn 8. október. „Yfir 700 milljarðar á ábyrgð ríkisins“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða DV, miðvikudaginn 8. október. „Geir með lífverði“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða DV, miðvikudaginn 8. október. „Geir með lífverði“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða  Fréttablaðsins, miðvikudaginn 8. október. „Fjármálaeftirlið tók yfir stjórn Glitnis í gærkvöldi“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, miðvikudaginn 8. október. „Fjármálaeftirlið tók yfir stjórn Glitnis í gærkvöldi“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Morgunblaðsins, miðvikudaginn 8. október. „FME tekur yfir stjórn Glitnis“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, miðvikudaginn 8. október. „FME tekur yfir stjórn Glitnis“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Viðskiptablaðsins, miðvikudaginn 8. október. „FME tekur völdin“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Viðskiptablaðsins, miðvikudaginn 8. október. „FME tekur völdin“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Fimmtudagirinn 9. október 2008

Forsíða 24 stunda,  föstudaginn 9. október. „Síminntekinn og fólki sagt að fara“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða 24 stunda, fimmtudaginn 9. október. „Síminntekinn og fólki sagt að fara“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða DV, föstudaginn 9. október. „Sálfræðingar til hjálpar bankafólki“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða DV, fimmtudaginn 9. október. „Sálfræðingar til hjálpar bankafólki“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Fréttablaðsins, föstudaginn 9. október. „Auknar líkur á að IMF komi að málum“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Fréttablaðsins, fimmtudaginn 9. október. „Auknar líkur á að IMF komi að málum“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Morgunblaðsins, föstudaginn 9. október. „kaupþing járat ósigur“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Morgunblaðsins, fimmtudaginn 9. október. „kaupþing járat ósigur“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

Forsíða Viðskiptablaðsins, föstudaginn 9. október. „450 milljarðar í húfi“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

Forsíða Viðskiptablaðsins, fimmtudaginn 9. október. „450 milljarðar í húfi“ var burðarfyrisögn á forsíðu blaðsins.

 

24 stundir hættir útgáfu örfáum dögum eftir hrun

Síðasta tölublað 24 stunda kom út 10. október 2008. „Þriðjungur Landsbankafólks í óvissu“ var burðarfyrisögn.

Síðasta tölublað 24 stunda kom út 10. október 2008. „Þriðjungur Landsbankafólks í óvissu“ var burðarfyrisögn.

 

Viðskiptablaðið 14. október

„Herlög á hagkerfið“ sagði Viðskiptablaðið 14. október 2008.

„Herlög á hagkerfið“ sagði Viðskiptablaðið 14. október 2008.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images