Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kvenfélagið Silfur er nútíma kvenfélag

Við höfðum af því veður að Kvenfélagið Silfur væri spennandi félagsskapur, ólíkur öðrum kvenfélögum að því leyti að kvenfélagið tengist ekki eins og gjarnan er venja stjórnmálaöflum, trúarhreyfingum eða jafnvel landshlutum og hverfum. Kvenfélagið Silfur er tiltölulega nýtt af nálinni, stofnað árið 2010. Við spjölluðum við annan formann félagsins, Þórdísi V. Þórhallsdóttur.

Hvers vegna þurfti að stofna nýtt kvenfélag? Var ekkert kvenfélag fyrir sem var ykkur forsprökkunum að skapi?

Við núverandi formenn Silfurs stofnuðum ekki félagið, þótt við höfum komið mjög fljótt inn í það sem virkir meðlimir. Önnur kvenfélög á höfuðborgarsvæðinu eru mikið tengd sínum hverfum, kirkjum, stjórnmálaflokkum eða ákveðnum málefnum. Þá voru yngstu meðlimir þeirra kvenfélaga oft á aldri við mæður okkar. Þetta allt varð til þess að forsprakkarnir stofnuðu félag sem var óháð stjórnmálaflokkum, kirkjum og hverfum.

Þá var ákveðið að reyna að gera hluti sem laða að yngri konur. Við erum þó í góðu samstarfi við önnur kvenfélög í Reykjavík og tökum þátt í nefndum Bandalags Kvenna í Reykjavík þar sem við erum í samstarfi við öll hin frábæru kvenfélögin og lærum af þeim.

Hvert hefur verið starf  Silfurs þessi síðastliðin 4 ár?

Það er galakvöldverður að hausti, þar sem Silfurkonur skemmta sér og haldið er happadrætti sem fer í að styrkja gott málefni hverju sinni. Síðan höldum við vorbingó þar sem allur ágóði rennur í eitthvert gott málefni sem við höfum fyrirfram valið að styrkja. Við höfum síðan tekið okkur saman um að hlaupa allar fyrir sama málefni í Reykjavíkurmaraþoni og farið í Kolaportið með notuð föt og selt til aukinnar fjáröflunar.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
kvenfélagð i kolaportinu

Þá hafa verið haldnir ýmsir fræðslufundir um áhugaverð málefni og svo höfum við haldið Silfurdag sem snýst um góða skemmtun yfir daginn og endar á balli um kvöldið. Við reynum að halda Silfurdag á degi þar sem söngvarinn Páll Óskar heldur ball, enda er hann einstaklega silfraður maður.

Í vetur höfum við hist fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 20 á Hallveigarstöðum og fengið áhugavert fólk til að koma og spjalla við okkur og miðla visku sinni og reynslu.

Þið standið fyrir Bingói á fimmtudaginn kemur og að þessu sinni mun ágóðinn renna til samtakanna Breið bros, sem eru samtök aðstandenda barna sem fæðast með skarð í vör eða góm. Hvers vegna völduð þið að styrkja þetta málefni?

Við lögðum einfaldlega spurninguna fyrir félagsmenn og fengum margar góðar tillögur. Þar næst höfðum við samband við þau félög sem komu upp í umræðunni og heyrðum í þeim hvernig þau myndu nota peningana. Það kom í ljós að Breið Bros hyggjast styrkja fjölskyldur barna með skarð í góm og vör til þess að leigja brjóstadælur fyrstu ævimánuði barnanna og fannst okkur mjög áhugavert og göfugt að koma að fjármögnun þess.

Vinningarnir eru að venju stórkostlegir og bingóstjóri er Gunna Dís útvarps- og sjónvarpskona.

Bingóið er haldið í Valhöll og hefst kl. 19:30, húsið opnar hálftíma fyrr og borgar sig að nýta sér það. Posar verða á staðum en reiðufé flýtir afgreiðslu.

Hvernig gengur maður í kvenfélag? Eru allir velkomnir?

Kvenfélagið er eins og gefur að skilja félagsskapur fyrir konur, en karlar eru vissulega velkomnir á ákveðna viðburði eins og bingóið á fimmtudaginn.

Þær sem vilja taka þátt í starfinu geta skráð sig og greitt félagsgjöld strax á fimmtudaginn í bingóinu. Svo er hægt að hafa samband á Facebook síðunni okkar “Silfur nútíma kvenfélag” og senda okkur skilaboð þar í gegn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283