Forsvarsmenn Íslensku þjóðfylkingarinnar virðast ósáttir við þann stimpil að flokkurinn beri með sér fasískar kenndir. Flokkurinn birti bloggfærslu í gær þar sem ásökunum um rasisma og útlendingaandúð er afneitað. „Takið eftir, að Íslenska þjóðfylkingin er ekki haldin útlendingaandúð, hvað þá að hún sé „rasista-flokkur“. Við látum engan kalla okkur það.“
Þá segir að flokkurinn fordæmi kynþátta- og útlendingahatur. „“ÍÞ fordæmir allt kynþátta- og útlendingahatur,“ þótt hún vilji „herta innflytjendalöggjöf og innleiða 48 tíma regluna í málefnum hælisleitenda“ í stað þess stjórnleysis sem nú ríkir í innflæði hælisleitenda, sem fimmfaldast í fjölda frá því í hittiðfyrra (127) þar til nú (7–800 á þessu ári og þar af 2/3 síðustu mánuðina frá Albaníu og Makedóníu, þar sem engin stríðsneyð er fyrir hendi“
Þjóðfylkingin er afar ósátt við viðbrögð yfirvalda við tilraunum fólksins til að flytja hingað. „Þessu fólki er þó boðið upp á það að gista nú fínustu hótel í Reykjavík og Hafnarfirði á kostnað þjóðarinnar, í stað þess að beita Dyflinnar-reglugerðinni og senda það tafarlaust til baka!“ segir í færslunni.
Þá segir að „sexflokkurinn“ hafi sameinast um að gefa hælisleitendum „rétt“ til að koma inn í landið „vegabréfslausir og setjast upp á okkur.“ Þar á meðal séu „Fjölkvænismenn frá fjarlægum heimsálfum fá þar líka „rétt til að sameina fjölskyldur sínar“ með því að kalla hingað foreldra sína og öll sín börn, sama hve mörg.“ Þeir nefna Sómalíu sem dæmi um slíkt og líst illa á þótt ekki sé um það deilt að undanfarnir áratugir hafa ekki verið með eindæmum friðsælir. Þjóðfylkingin lætur dæma frá Noregi af slíkum innflutningi fjölkvænismanna. „Dæmin eru ýmis um slíka í Noregi, eins og Sómala sem gat kallað til sín 17 í fjölskyldunni (þó aðeins eina af eiginkonum sínum), en einmitt þetta er hin nýja stefna stjórnarflokkanna, í útlendingalögunum sem taka hér gildi 1. janúar næstkomandi: þ.e. að taka upp þá stefnu sem norrænar frændþjóðir okkar eru nú sem óðast að hafna eftir að hafa haft af henni mjög slæma reynslu, svo að vægt sé til orða tekið. Eini flokkurinn, sem stendur gegn þessu og gegn hugsanlegri islamsvæðingu landsins, er Íslenska þjóðfylkingin.“
Þá segir að flokkurinn vilji styðja þá innflytjendur sem „aðlagast íslensku samfélagi.“ Bent er á að flokkurinn er „meðal annars með fjórar konur frá Brasilíu, Portúgal, Póllandi og Filippseyjum á framboðslistum sínum. En til þess að nýbúar aðlagist hér vel og geti fallið vel að samfélaginu, m.a. í þjónustustörfum á hjúkrunar-, elli- og aðhlynningarstofnunum, þurfa þeir að læra tungumálið að gagni. Við fögnum slíku.“





