Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

DV blekkti og braut lög við áskriftasölu – söludeildinni sigað á eldri borgara

$
0
0

DV ehf. braut gegn ákvæðum laga um neytendasamninga og ákvæðum laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga við áskriftasölu. Þetta kemur fram í ákvörðun Neytendastofu en stofnunin fékk fjölda kvartana vegna söluaðferða DV. „Ábendingarnar lutu að því að símtölum DV væri beint að eldri borgurum og að upplýsingagjöf væri bæði villandi og áfátt. Boðnar væru „fríar“ blaðaáskriftir, ýmist í einn eða þrjá mánuði án þess að tilgreina með skýrum hætti að um leið væri stofnað til fjárskuldbindinga með venjulegri áskrift að fríu tímabili loknu,“ segir í ákvörðun Neytendastofu.

„Þá hafi neytendur ekki fengið neina staðfestingu á að samningur hafi verið gerður eða upplýsingar um rétt til þess að falla frá samningi. Neytendum hafi jafnframt verið tjáð að þeir væru heppnir því að nafn þess hafi verið dregið út í úrtaki. Þegar leitað hafi verið til DV til þess að segja upp samningi hafi því verið hafnað.“

Fram kemur að Neytendastofa hafi átt í nokkrum samskiptum við DV og að fyrirtækið hafi sem viðbrögð við þeim fyrirspurnum breytt verklagi. Það hafi verið til bóta en ekki þó ekki fullnægjandi. Síðar hafi komið í ljós að breytingarnar hafi ekki náð virkni. Í september barst Neytendastofu bréf frá DV þar sem kemur fram að fyrirtækið hafi breytt vinnureglum í kjölfar fyrstu fyrirspurnar Neytendastofu.

Um eftirfylgni DV á eigin reglum segir í ákvörðun Neytendastofu: „Þá er ljóst að DV hefur ekki að fullu fylgt eigin tillögum að úrbótum eftir að Neytendastofa gerði athugasemdir við verklag fyrirtækisins. Í tölvubréfi DV til neytanda frá 30. ágúst 2016 sem sent var til staðfestingar á sölusímtali og Neytendastofa hefur fengið sent afrit af koma til að mynda ekki fram upplýsingar um rétt neytanda til þess að falla frá samningi samkvæmt g. lið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 16/2016.“

Neytendasamtökin fengu tugi kvartana

Kvennablaðið sagði frá því í lok júlí að Neytendasamtökin hefðu þegar tekið á móti nokkrum tuga kvartana vegna gylliboða áskriftadeildar DV til neytenda sem ekki er svo staðið við. Frá Neytendasamtökunum fékk blaðið þær upplýsingar að umkvartanir fólks séu fjölbreyttar þegar kemur að samskiptum við áskriftadeild DV. Öll snúast málin um loforð sem ekki eru uppfyllt. Dæmi um slíkt eru loforð um tölvu í skiptum fyrir áskrift – sem er svo aldrei afhent. Annað dæmi er loforð um þriggja mánaðar áskrift án skuldbindingar og án sjálfvirkrar endurnýjunar. Þriðja dæmið er svo loforð um mánuð í frírri áskrift, þrjá mánuði á niðursettu verði og að lokum engan binditíma. Þegar á reynir – tekur hins vegar langur binditími við.

Í kjölfar fréttar Kvennablaðsins tjáðu nokkrir lesendur blaðsins sig um samskiptin við áskriftadeild DV:

„Og þó maður segi skriflega upp áskrift á þessum þriggja mánaða binditíma þá er það ekki tekið gilt,“

skrifar Guðrún Kvennablaðinu og bætir við að ástæðan sem gefin sé sú að hún fór fram á að fá lykilorð á stafræna útgáfu DV þar til binditíma lyki.

„Fékk boð um miða á Justin Bieber í staðin fyrir binditíma í 4 ár,“ skrifar Anna.

„Manninum mínum var boðin frí áskrift í tvo mánuði. Það átti enginn binding að vera en viti menn hann þarf að greiða fyrir átta mánuði í áskrift,“ skrifar Guðrún. „Veit um fleiri svona boð sumir voru ekki að þiggja þetta og sluppu við þessa svikara.“

„Neytendasamtökin taka að sér milligöngu fyrir félagsmenn sína í málum sem þessum og hafa þegar verið í sambandi við DV vegna málsins. Hvetja samtökin þá félagsmenn sem lent hafa í vandræðum vegna viðskipta við DV að hafa samband við skrifstofu Neytendasamtakanna. Einnig geta þeir sem ekki eru félagsmenn gengið í samtökin, vilji þeir að samtökin taki að sér milligöngu vegna málsins.“

Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður Vefpressunnar ehf, er útgefandi DV og stjórnarformaður DV ehf. í kjölfar kaupa Vefpressunar á útgáfufélagi DV. Hann festi kaup á Mál og menningu í maí 2016.   Í dag greinir Vísir frá því að Björn Ingi hyggst taka yfir rekstur ÍNN.

Auglýsing

Skömmu áður en tilkynnt var um samruna DV og Eyjunnar létu núverandi eigendur almannatengslafyrirtækið Franca ehf. vinna greiningu á DV. Skýrslan vakti mikla athygli og þótti hrákasmíð mikil. Hjálmar Jónsson, formaður blaðamannafélagsins, sagði skýrsluna innihalda æpandi mótsagnir. Annar höfundur greiningarinnar er Eggert Skúlason, almannatengill, sem átti áður í átökum við DV vegna skrifa blaðsins um Eið Smára Guðjónsen, knattspyrnumann. Í umfjöllun blaðsins árið 2009 var Eiður Smári sagður skulda 1,2 milljarða króna og hafi tapað miklu á fjárfestingum sínum í Hong Kong, Tyrklandi og Reykjanesbæ. Hann tapaði meiðyrðamáli gegn fréttastjóra DV vegna skrifanna árið 2011.

Eggertíléttuspjall

Björn Ingi Hrafnsson réð ritstjóra sem opinberað hafði tilhneigingu sína til lyga.

Almannatengillinn Eggert Skúlason varð ritstjóri DV eftir hörð átök um eignarhald á blaðinu. Sjálfur var Eggert í Panamaskjölunum sem afhjúpuðu þrjá ráðherra í ríkisstjórn, þau Sigmund Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og Ólöfu Nordal innanríkisráðherra.

Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi Vefpressunnar, og Eggert þekkjast úr stjórnmálastarfi hins fyrrnefnda. Árið 2006 var Björn Ingi frambjóðandi Framsóknarflokksins í Reykjavík. Grapevine sagði frá því á sínum tíma að Eggert hefði fagnað sigri Bjarna Inga í prófkjöri flokksins með ræðu sem hófst á: „Við tókum þá í rassgatið.“ Þá starfaði Eggert sem spunameistari Framsóknarflokksins á árum áður. Í dag starfar Eggert sem kosningastjóri hjá Framsóknarflokknum.

Árið 2001 viðurkenndi Eggert að sem blaðamaður hafi hann skáldað fréttir til að fylla dálksentimetra. „Eggert játar það fyrir blaðamanni að þegar hann sat ungur og örvæntingafullur á NT seint á kvöldin og gekk erfiðlega að fylla síðurnar af fréttum greip hann stundum til þess örþrifaráðs að búa til fréttir,“ segir í tveggja opnu viðtali við núverandi ritstjóra DV. Eggert hætti störfum sem ritstjóri blaðsins í júní. Kol­brún Bergþórs­dótt­ir og Hörður Ægis­son héldu áfram sem rit­stjór­ar DV auk þess sem Kristjón Kor­mák­ur Guðjóns­son bættist við ritstjórahópinn.

Skrautlegur ferill að baki

Útgefandi og eigandi DV á skrautlegan feril að baki. Hann hefur starfað í fjölmiðlum árum saman.  Hann tók um tíma virkan þátt í stjórnmálum. Árið 2003 var hann ráðinn aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra sem þá var formaður Framsóknarflokksins. „Hann nam sagnfræði og stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og hefur að undanförnu gegnt störfum skrifstofustjóra Þingflokks framsóknarmanna og verið kynningarfulltrúi Framsóknarflokksins,” segir í tilkynningu ráðuneytisins um ráðninguna.

Kosningabarátta Björns Inga til borgarstjórnar árið 2006 vakti nokkra athygli sökum fjárútláta. „Fulltrúaráð Framsóknarflokksins í Reykjavík keypti föt fyrir 1.290 þúsund fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006. Flokkurinn fékk 25% afslátt og greiddi því 967.730 þúsund fyrir fatnaðinn,” sagði í fréttum RÚV árið 2008 eftir að komið höfðu fram ásakanir í garð Björns Inga. Þá kom einnig fram að flestir reikninganna hefðu verið merktir upphafsstöfum Björns Inga.

„Um er að ræða fimm jakkaföt, 26 skyrtur, 21 bindi, tíu peysur, fjögur skópör, fjögur belti, fernar gallabuxur, níu stuttermaboli, nítján sokkapör, tvo ermahnappa, frakka, leðurjakka, útijakka, langermabol, buxur og stakan jakka.”

Björn Ingi sagði af sér árið 2008 að undangengnum gríðarlegum þrýstingi.

„Almenningur hefur orðið vitni að óvenjulega rætnum og persónulegum árásum gegn mér síðustu daga. Hreint og beint hatur í minn garð frá fyrrverandi þingmanni flokksins og gömlum samherja hefur vakið þjóðarathygli og halda skeytasendingar hans áfram, enda þótt allar helstu stofnanir og forysta Framsóknarflokksins lýsi yfir eindregnum stuðningi við mig og mín störf,” sagði hann í tilkynningu vegna afsagnarinnar. „Þegar við svo bætist, að illa fengin gögn og fylgiskjöl úr bókhaldi kosningabaráttu flokksins eru farin að rata til fjölmiðla, má öllum vera ljóst að hatrið og viljinn til að koma höggi á mig og Framsóknarflokkinn eru orðin allri skynsemi yfirsterkari.”

 

Auglýsing

 

Virkur í REI-málinu

Afsögn Björns Inga tengdist þætti hans í REI-málinu svonefnda. Í málinu var deilt um Orkuveitu Reykjavíkur, dótturfélag þess REI og félagið Geysir Green Energy sem fjárfestingarfélagið FL Group og Glitnir banki hf. áttu meirihluta í. Til stóð að sameina REI og Geysir Green Energy, með það að markmiði að sameina krafta þeirra í útrás erlendis. Þetta var vel að merkja fyrir hrun. Þann 1. október 2007 var haldinn stjórnarfundur í REI, þar sem ákveðnir voru kaupréttarsamningar og grunnur lagður að sameiningu við GGE. Áttu starfsmenn OR að fá að kaupa hlutabréf í REI, áður en félagið yrði selt. Hópur manna sem þóttu sérlega mikilvægir fyrir fyrirtækin áttu að fá að kaupa hluti í fyrirtækinu sem voru milljóna króna virði á lágu gengi. Reiknað var með að eftir sölu og sameiningu mundu bréf hins nýja félags snarhækka í verði. Björn Ingi var á þeim tíma varaformaður stjórnar OR.

Hundruð milljóna lán

Aftur mátti Björn Ingi stíga til hliðar en nú eftir birtingu Rannsóknarskýrslu Alþingis um orsakir og afleiðingar bankahrunsins. Nú sem ritstjóri Pressunar en í skýrslunni er Björn Ingi nefndur sem einn þeirra fjölmiðlamanna sem nutu sérkjara hjá bankastofnunum. Caramba, félag Björns, fékk lánað hjá Kaupþingi vegna kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi, Exista, Bakkavör og Spron. Félagið gerði jafnframt samning um kaup á hlutabréfum Exista fyrir 230 milljónir króna í september 2008. Í lok september 2008 námu skuldir félagsins 563 milljónum króna. Björn Ingi var ritstjóri Markaðarins, vikurits Fréttablaðsins um viðskipti, þegar félag hans samdi um kaup á hlutabréfum Exista.

Í bókinni Hamskiptin – Þegar allt varð falt á Íslandi, má finna kafla um hvernig Björn Ingi tók virkan þátt í viðskiptalífinu á sama tíma og hann stýrði viðskiptaumfjöllun 365 miðla. Ingi Freyr Vilhjálmsson, höfundur bókarinnar er fréttamaður á DV. „Ég hef aldrei fengið krónu afskrifaða í íslensku bankakerfi og stend ekki vel fjárhagslega í dag, frekar en svo fjölmargir aðrir landsmenn,” sagði Björn Ingi þegar hann steig til hliðar. Skömmu áður hafði Caramba fyrirtæki hans farið í þrot upp á 700 milljónir. Björn Ingi reis upp sem ritstjóri Pressunnar mánuði síðar.

Fjármögnun og 
eignarhald í leynd

Það hvernig Björn Ingi fjármagnar fjölmiðlakaup sín hefur áður vakið upp spurningar. Rekstur Vefpressunnar hefur í gegnum tíðina verið erfiður en á ársreikningum félagsins má sjá að á árunum 2009 til 2013 tapaði félagið um 70 milljónum króna. Árið 2010 var hlutafé Vefpressunnar ehf. aukið um 71 milljón. Skuldir Pressunnar ehf fóru úr tæpum 69 millj­ónum króna í 271,7 millj­ónir króna þegar DV var keypt árið 2014. Björn Ingi Hrafnsson hefur ávallt haldið því fram að engin leynd sé með eignarhald félagsins. Því er þó ósvarað hvernig maður sem skuldaði hundruðir milljóna í banka, keyrði félag sitt Caramba – hugmyndir og orð ehf. í þrot og hefur árum saman rekið fjölmiðla í tapi gat fengið seljendalán fyrir kaupum á DV og nú síðast Mál og menningu.

Auglýsing

Sektaðir vegna áfengisauglýsinga

Árið 2015 DV gaf út blaðið Bjór og braut með því gegn ákvæðum fjölmiðlaga sem banna viðskiptaboð fyrir áfengi. Fyrir brotið hlaut DV 750 þúsund króna sekt. „Föstudaginn 27. febrúar 2015 kom út kynningarblað um bjór á vegum DV og var blaðinu dreift með DV sama dag Í blaðinu var umfjöllun um íslenskar og erlendar bjórtegundir, þar á meðal umfjöllun um tvo nýja bjóra frá Bruggsmiðjunni Kalda og umfjöllun um sjö ólíkar bjórtegundir sem fyrirtækið Haugen Gruppen hefur umboð fyrir,“ segir í ákvörðun Fjölmiðlanefndar. „Í báðum tilfellum voru birtar myndir af umbúðum þeirra áfengistegunda sem fjallað var um og voru vörumerkin ýmist tiltekin í fyrirsögn eða undirfyrirsögn í nefndum greinum. Í blaðinu var einnig annars konar umfjöllun um bjór, þ. á m. viðtöl við eiganda Skúla Craftbar og viðtal um bjórbruggun við eiganda Ámunnar en óljóst var hvort sú umfjöllun teldist til ritstjórnar- eða kynningarefnis. Á öllum síðum kálfsins var merkt efst á síðu að um kynningarblað væri að ræða og var blaðið þannig aðgreint frá ritstjórnarefni DV.“ Niðurstaða fjölmiðlanefndar var að með útgáfu og dreifingu fylgiblaðsins Bjór hafi DV ehf. brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011. Taldi fjölmiðlanefnd hæfilegt að stjórnvaldssekt vegna brotsins næmi 750.000 kr.

Vinur Sigmundar Davíðs

Systurnar Hlín Einarsdóttir og Malín Brand gerðu tilraun til að kúga fé út úr forsætisráðherra Íslands Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Þær sendu forsætisráðherra bréf þar sem þær sögðust fara opinberlega með upplýsingar sem þær hefðu undir höndum nema að þær fengju greidda umtalsverða fjárhæð sem þær báðu um að yrði skilin eftir á ákveðnum stað sunnan Vallarhverfis í Hafnarfirði. Að sögn lögreglu telst málið upplýst en systurnar Malín og Hlín hafa játað á sig glæpinn.

Ítrekað hefur verið fjallað um að upplýsingarnar varði þátt Sigmundar Davíðs um fjármögnun á yfirtökunni á DV. Blaðið hafði fjallað ítarlega og harkalega um Framsóknarflokkinn og Sigmund Davíð. Tekið skal fram að Hlín Einarsdóttir er ritstjóri Sykurs, sem er í eigu Kvennablaðsins.

Björn Ingi Hrafnsson tjáði sig um kúgunarmálið á Facebook-síðu sinni. Hann sagðist harmi sleginn yfir fregnum dagsins. „Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls,“ skrifaði Björn Ingi á Facebook.
bd043dc0e25c5643c9a00eb6ef7d052f

 

Sigmundur Davíð og Björn Ingi eru góðir vinir og var Björn Ingi meðal gesta í fertugsafmæli Sigmundar Davíðs. Þá sendi Sigmundur Davíð kveðju í gæsaveislu Kolfinnu Vonar Arnardóttur, eiginkonu Björns Inga, skömmu áður en þau giftu sig.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images