Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Magnaðar flóðamyndir frá Þingvöllum

$
0
0

Það rigndi eitthvað á Þingvöllum í gær og væntanlega verður blautt eitthvað áfram ef marka má ótrúlegar ljósmyndir landvarða á Facebook-síðu Þjóðgarðsins. „Landverðir hafa þurft að loka nokkrum stígum og sett upp keilur og línur við Öxarárfoss til að stýra umferð ferðamanna,“ segir á Facebook-síðu þjóðgarðsins. „Eins og spáð var þá hafa Öxará og Öxarárfoss breytt um svip. Þetta eru góð flóð en í takt við það sem þekkist þegar flæðir mikið. Það sem hjálpar nú er að jörð er ekki frosin og því nær vatnið ofaní jörð. Þrátt fyrir rok og rigningu þá er tölvuvert af ferðamönnum á ferð. Þeir staldra þó styttra við en þó eru einhverjir sem voga sér að ganga nokkurn spöl.“

14691379_580138158856425_8968460134389911495_o

Stígnum yfir ála Öxarár var lokað tímabundið.

Silfra gruggast upp þegar mikil flóð verða. Nokkrir kafarar ákváðu að skoða aðra staði til að busla í. Eva Dögg Einarsdóttir landvörður tók myndina.

Silfra gruggast upp þegar mikil flóð verða. Nokkrir kafarar ákváðu að skoða aðra staði til að busla í. Eva Dögg Einarsdóttir landvörður tók myndina.

14706958_580138312189743_6885345690560255923_o

Viðeigandi klæðnaður

Þrátt fyrir mikla rigningu hafa margir ferðamenn gengið að fossinum enda mikilfenglegur að sjá í flóðum.

Þrátt fyrir mikla rigningu hafa margir ferðamenn gengið að fossinum enda mikilfenglegur að sjá í flóðum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images