Ríkissaksóknari skilaði ekki greinargerð í Sterlingmálinu svokallaða fyrr en eftir að frestur til þess var liðinn. Saksóknari hafði þá fengið aukafrest til að skila gögnum. Hannes Smárason, fyrrverandi stjórnarformaður Sterling, mun því ekki hljóta refsingu fyrir fjárdrátt en hann lét millifæra tæplega þrjá milljarða króna af bankareikning FL Group í útibúi Danske Bank í New York inn á bankareikning FL Group hjá Kaupþingi í Lúxemborg. Reikningurinn var stofnaður fimm dögum áður og hafði Hannes fullt og ótakmarkað umboð til að ráðstafa fjármunum félagsins á þeim bankareikningi.
Sama dag og féð var fært á reikning Kaupþings í Lúxemborg lét Hannes færa þá yfir á reikning Fons eignarhaldsfélags í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. „Þar var fjárhæðinni skipt í danskar krónur og í kjölfarið lagðar inn á félagið Fred. Olsen & Co., þáverandi eiganda flugfélagsins Sterling Airlines. Milljarðarnir þrír mynduðu því stóran hluta af þeim fjórum milljörðum króna sem Fons greiddi fyrir kaup á Sterling á þessum tíma,“ segir í Kjarnanum.
„Þegar málsgögnin bárust Hæstarétti voru meira en ellefu ár liðin frá ætluðu broti, nærri átta ár frá upphafi rannsóknar og rúmir sautján mánuðir frá því að ríkissaksóknari gaf út áfrýjunarstefnu til að fá hnekkt héraðsdómi um sýknu. Ákæruvaldið gat ekki veitt haldbærar skýringar á því hvers vegna það tók svo langan tíma að útbúa málsgögn og skila þeim til Hæstaréttar. Þess vegna var málinu vísað frá,“ segir í umfjöllun Kjarnans um málið.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í júní 2009 kröfu Hannesar Smárasonar um að húsleit sem gerð var vegna viðskipta hans yrði gerð ólögmæt. Fyrir dóminum kom fram að rökstuddur grunur leiki á að FL Group hafi keypt flugfélagið Sterling á yfirverði og að Hannes eða aðilar honum tengdir hafi fengið þriggja milljarða króna lán með ólögmætum hætti.
Stjórn FL Group liðaðist í sundur í lok júní árið 2005 þegar Inga Jóna Þórðardóttir, Árni Oddur Þórðarson og Hreggviður Jónsson sögðu sig úr stjórninni. Þau voru ósátt við framgöngu Hannesar Smárasonar, stjórnarformanns. Inga Jóna sagði á hluthafafundi skömmu síðar að starfshættir innan stjórnarinnar hafi ekki verið með þeim hætti sem samþykktir og starfsreglur félagsins sögðu til um.
Um haustið 2005 hætti Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL Group, en við hana var gerður nokkuð vænn starfslokasamningur. Á þeim tíma var Hannes starfandi stjórnarformaður félagsins og aðaleigandi. Deilurnar innan félagsins á þessum sumar- og haustdögum 2005 snérust meðal annars um millifærslur fjármuna úr bókum FL Group, án heimildar frá stjórninni, sem Ragnhildur Geirsdóttir gerði athugasemdir við.
Í október 2005 sagði Kastljós frá því að þrír milljarðar króna hefðu verið millifærðar úr bókhaldi FL Group fyrr sama ár. Kastljós hafði þá ekki vitneskju um hvert féð fór. Þegar Hannes Smárason var í viðtali við Kastljós 24. október 2005, neitaði hann því að þessi millifærsla hefði átt sér stað.
– Hvað með sögusagnir um það að þú hafir án heimildar stjórnar tekið þrjá milljarða – millifært þrjá milljarða út úr fyrirtækinu – á reikning út í bæ, Ragnhildur á sínum tíma átt að hafa gert athugasemd við þetta? „Þetta er bara þvæla,“ sagði Hannes við þáttastjórnendur Kastljóssins. – Þetta er bara þvæla? „Já.“
Þáttastjórnendur Kastljóss spurðu Hannes út í kaup FL Group á Sterling í sama þætti. – Talandi um kaupin á Sterling. Þetta er félag sem Pálmi Haraldsson, í Fons, keypti fyrir ekki svo löngu síðan á fjóra milljarða, hann er núna að selja ykkur í FL Group á fimmtán milljarða kóna. Hvernig getur þú útskýrt þennan stóra mun á þessum stutta tíma? „Í fyrsta lagi þá veit ég nú að hann keypti félagið á miklu hærri tölu heldur en fjóra milljarða.“ – Þetta var það sem kom fram. „Hann verður að svara náttúrulega fyrir það sjálfur.“ – Hvað keypti hann það á þá? „Hann upplýsir það. Það er ekki í mínum verkahring að upplýsa það enda hef ég engar áhyggjur af því.“ – Voru það hærri tölur en þessir fjórir milljarðar sem sagt? „Já, já.“ – Miklu hærri? „Já, já.“ Á blaðamannafundi þegar kaup Fons á Sterling voru kynnt um miðjan mars árið 2005 að kaupverðið var 400 milljónir danskar krónur sem á gengi þess tíma var rétt rúmir fjórir milljarðar. Þáttastjórnendur Kastljóss spurðu Hannes hvort FL Group hefðu lagt einhverja peninga inn í það þegar Fons keyptu Sterling? „Nei alls ekki.“ – En þú sjálfur persónulega? „Nei, alls ekki.“ – En félög eða fyrirtæki þér tengd? „Nei, nei, nei, alls ekki. Nei, ekki komið nálægt því.“ – Þannig að þú hefur ekki á neinn hátt hagnast persónulega sjálfur á þessu? „Nei, nei alls ekki. Ég bara þverneita því.“






