„Sjálfstæðisflokkurinn kom á stöðugleika í efnahags- og atvinnulífi, en um leið hefur hann viðhaldið pólitískum stöðugleika í landinu,“ segir á vef Sjálfstæðisflokksins á sérstakri undirsíðu sem kallast „Á réttri leið.“
Þar klappa Sjálfstæðismenn sér á bakið fyrir hin ýmsu verk þar á meðal gríðarlega fjölgun ferðamanna, átak gegn skattsvikum, deilihagkerfið og fyrir að halda í heilbrigðisstarfsmenn.
„Þegar óvænt forsætisráðherraskipti urðu í apríl 2016 hélst ríkisstjórnarsamstarfið og engin misfella varð í stjórn ríkisins,“ segir á vef Sjálfstæðisflokksins um undraverðan árangur flokksins.
Það kjörtímabil sem er að ljúka hefur verið kallað ýmislegt en að um sérstakan pólitískan stöðugleika hafi verið að ræða er heldur langsótt. Nei, reyndar er það bara haugalygi.
Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafði vart skrifað undir samstarfssamning sinn þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, þáverandi sjávarútvegs-, landbúnaðar-, og umhverfisráðherra lagði til að ráðuneyti umhverfismála yrði lagt niður. Það væri jú bara eðlilegt að atvinnulífið fengi að ráða þessu.
Þá mótmæltu þúsundir. Óánægja og vantraust frá fyrsta degi… þekkt sem pólitískur stöðugleiki í Valhöll.
Næst var svo ákveðið að svíkja loforð um kosningar um áframhald á aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Þúsundir mótmæltu því. Vantraustið jókst, vinsældir dvínuðu, Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði en sem betur fer, samkvæmt Valhöll, hélst pólitískur stöðugleiki í landinu.

Innanríkisráðuneytið hefur verið stjórnlaust allt kjörtímabilið. Sá óstöðugleiki er alfarið á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins. Fyrst settu þeir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, varaformann flokksins, í ráðuneyti. Hanna Birna er ekki lögmenntuð, hafði veika stöðu í flokknum og réð ekki aðstoðarmenn sem gátu styrkt hana gagnvart ráðuneytinu, heldur fólk sem hún taldi að styrkti hana gagnvart flokknum. Til gamans má geta að eitt helsta einkenni vanhæfni er að ráða vanhæft fólk í kringum sig.
Hanna Birna var verklaus í ár vegna hneykslismáls þar sem Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, tóku virkan þátt í að verja hana falli. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, skipti upp innanríkisráðuneytinu fyrir hana og fjarlægði Hönnu Birnu frá dómsmálaráðuneytinu. Allt til þess að hún þyrfti nú ekki að víkja og hrapa herfilega í tekjum. Bjarni Benediktsson hélt framan af upplýsingum frá almenningi. Rekstrarfélag Stjórnarráðsins er félag sem starfar undir fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, það félag framkvæmdi rannsókn í skötulíki sem Bjarni og Hanna Birna notuðu út á við til að gefa þá mynd að um rannsókn hefði verið að ræða. Rannsókn þar sem ekkert fannst.
Að lokum gaf fjármálaráðuneytið upplýsingarnar út tæpu ári eftir að fjölmiðlar óskuðu fyrst eftir þeim. Annað var ekki í stöðunni þá. Vantraust jókst, fólk mótmælti, þrískipting valdsins var rofin. Alþingi, ríkisstjórnin, umboðsmaður Alþingis, lögreglan, Útlendingastofnun, fjölmiðlar og meira að segja Rauði krossinn drógust inn í málið. Allt svo Hanna Birna þyrfti ekki að leita sér að nýrri vinnu.
Valhöll hrósar sér fyrir pólitískan stöðugleika.
Eftir vandræðaganginn lét Sjálfstæðisflokkurinn Ólöfu Nordal ráðuneytið í té. Ólöf hefur heldur betur verið verklaus ráðherra. Nýlega baðst Ólöf afsökunar á því að geta ekki sinnt kosningabaráttunni fyrir flokkinn vegna veikinda. Ekkert bar á því að almenningur væri beðinn afsökunar á verkleysi í ráðuneytinu. Í ráðherratíð Ólafar hefur lögreglan logað í illdeilum, fíkniefnadeildin er nánast óstarfhæf og ítrekað koma upp mál þar sem fólki er kastað úr landi þrátt fyrir að þeirra bíði ekkert nema óvissan. Ólöf hefur alla jafna ekki verið til taks.
En já, Ólöf Nordal gat beðið flokksfélaga sína afsökunar á að sinna kosningabaráttunni ekki. Bjarni Benediktsson er nú starfandi innanríkisráðherra. Það tók ráðuneytið viku að svara fyrirspurn um málið.
Vantraust almennings á stofnunum sínum eykst en það heitir pólitískur stöðugleiki.

Næst í röð pólitískra stöðugleika er Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sem er nú að hætta vegna spillingarmáls. Hann neitar reyndar fyrir það en sama má segja um Hönnu Birnu sem hætti víst alls ekki út af lekamálinu. Menntamálaráðuneytið var óstarfhæft um tíma á meðan ráðherra forðaðist fjölmiðla. Það er í samræmi við þann pólitíska stöðugleika sem flokkurinn bauð okkur á kjörtímabilinu.
Illugi hefur stýrt fordæmislausri árás á RÚV og einkavæðingu í menntakerfinu án samráðs og gæðaeftirlits. Það er víst pólitískur stöðugleiki þótt afleiðingin sé minnkandi traust og trú almennings á stofnunum sínum.
Kjörtímabilið sá líka fyrsta verkfall lækna í áratugi. Það má svo sem kalla það stöðugleika og kannski í einhverjum heimi má hrósa sér fyrir að halda í heilbrigðisstarfsmenn.
Ráðherra skattamála er í Panamaskjölunum og fjölskyldan hans er dugleg við að kaupa ríkiseignir. Það má alveg kalla það pólitískan stöðugleika. Flestir tala samt um spillingu og tengja ekki svo jákvætt við.
Merkilegust er þó sú hugmynd Sjálfstæðismanna að „engin misfella varð í stjórn ríkisins“ þegar Sigmundur Davíð varð að víkja. Þetta er söguförðun á hæsta stigi.
Eins og Sjálfstæðismönnum er einum lagið hefur framvinda málsins verið strokuð út. Skáldað er í eyðurnar og allt er metið flokknum í hag. Þessu fólki er nákvæmlega sama þótt það afhjúpi sig sem vitleysinga. Dropinn holar steininn – endurtekning býr til staðreyndir.
Það er nefnilega ekki svo að uppvíst hafi orðið að Wintris og að næsta dag hafi stöðugleiki tekið við. Þvert á móti. Við erum að kjósa núna – að hausti – vegna þess að flokkurinn lagði meira upp úr því að kaupa sér tíma – og skapa óstöðugleika – en að segja sig frá ríkisstjórn og kjósa strax.
Svo er alltaf gott að minna á að Panamaguttinn Icehot1 er enn formaður flokksins. Það er hinn raunverulegi pólitíski stöðugleiki. Sama hvað gerist og sama hversu kúltúrslausir og spilltir strákarnir eru, þá ræður Engeyjarættin þessu bara.
Takk Valhöll!






