Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Geir og Davíð gáfu 75 milljarða gegn handónýtu veði og lugu svo að okkur öllum

$
0
0

Davíð Oddsson tjáði Geir H. Haarde að lán Seðlabanka Íslands til Kaupþings árið 2009 væri tapað fyrir fram. Þrátt fyrir þetta var lánið veitt og almenningi boðið upp á þær skýringar að bak við lánið væru góð veð. Þetta kemur fram í yfirheyrslum sérstaks saksóknara yfir Sturlu Pálssyni, framkvæmdastjóra markaðsviðskipta og fjárstýringar Seðlabanka Íslands, sem Kastljós hefur undir höndum og fjallar um í kvöld.

Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri, og Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, ræddu saman í síma áður en lánið var veitt. Upplýsingar um efni samtalsins og brot úr símtali þeirra Davíðs og Geirs koma fram í skýrslu embættis sérstaks saksóknara eftir yfirheyrslu yfir Sturlu. Tugmilljarða tjón varð af lánveitingunni. Það kom endanlega í ljós þegar Seðlabankinn seldi hlut sinn í danska FIH bankanum árið 2012, en bankinn hafði fengið FIH að veði fyrir lánið. Tap Seðlabankans var um 35 milljarðar.

screen-shot-2016-10-19-at-21-49-38

Skjáskot úr Kastljósi

Símtalið átti sér stað klukkan 11:58, mánudaginn 6. október, en síðar þann dag lagði Geir fram frumvarpið að neyðarlögunum sem lögfest var að kvöldi sama dags. Í umfjöllun Kastljóss segir að Sturla hafi verið viðstaddur þegar Davíð hringdi í Geir. Þá segir að Davíð hafi valið sérstaklega að hringja úr síma sem alltaf er tekinn upp. Það hafi því ekki verið tilviljun að upptaka sé til.

screen-shot-2016-10-19-at-21-44-18

Skjáskot úr Kastljósi

„Sturla kvaðst hafa verið viðstaddur þegar símtalið átti sér stað og að Davíð Oddsson hafi tekið símtalið úr síma Sturlu þar sem síminn hans var hljóðritaður en ekki sími Davíðs. Sturla kvaðst kannast vel við símtalið og kvað að enginn annar hafi verið viðstaddur þegar það átti sér stað, bara hann og DO,“ segir í skýrslunni sem unnin er upp úr framburði Sturlu.

Þá kemur fram að Davíð hafi sagt við Geir að ekki væri hægt að hjálpa öðrum bönkum.

„Í dag getum við skrapað saman 500 milljónir evra og erum þá náttúrulega komnir inn að beini. Getum þá hjálpað Kaupþingi í einhverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Landsbankanum líka sko.“

Sturla heldur því fram í vitnaleiðslunni að: „Davíð hafi sagt Geir Haarde forsætisráðherra að þeir fengju þennan pening ekki til baka og að ákvörðunin hafi í raun verið Geirs Haarde.“

screen-shot-2016-10-19-at-21-58-36

Skjáskot úr Kastljósi

„Davíð lýsti ákvörðuninni með talsvert öðrum hætti í viðtali í Kastljósi, daginn eftir að lánið var veitt. Að algjör eining hefði verið innan bankastjórnarinnar um að veita lánið. Veðin væru trygg og örugg og sjálfsagt hefði þótt að gefa Kaupþingi tækifæri til að ná sér á kjöl með brúarláni til nokkurra daga.

500 milljón evra – eða 75 milljarða króna – lán Seðlabankans til Kaupþings fékkst ekki endurgreitt. Bankinn féll enda þremur dögum eftir að lánið var veitt. FIH bankinn varð eign Seðlabankans sem seldi danska bankann árið 2012. Tap Seðlabankans og ríkissjóðs af lánveitingunni er talið nema 35 milljörðum króna,“ segir í frétt Ríkisútvarpsins.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images