Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Er ókeypis ferð til Jórdaníu nóg til að Arnþrúður og Pétur endurskoði hug sinn?

$
0
0

„Að undanförnu hefur okkur þótt umræðan á Útvarpi Sögu í garð annarra menningarheima heldur einhæf og neikvæð og því skorum við hér með á Arnþrúði Karlsdóttur útvarpsstjóra og Pétur Gunnlaugsson útvarpsmann að þiggja boð okkar um að heimsækja Jórdaníu,“ segir á Facebook-síðu Kilroy á Íslandi. Ferðaskrifstofan hefur sent útvarpsstjóra Útvarps Sögu bréf þar sem umfjöllun stöðvarinnar um aðra menningarheima er hörmuð.

„Að undanförnu hefur okkur þótt illa veið að öðrum framandi menningarheimum og þá helst Mið-Austurlönum. Þess vegna skorum við hér með á Arnþrúði Karlsdóttur útvarpsstjóra og Pétur Gunnlaugsson útvarpsmann að þiggja boð okkar um að heimsækja Jórdaníu og upplifa öll þau mennningarundur sem þar er að finna.“ stendur í bréfinu.

Boðið hljómar upp á flug, gistingu og „magnaða ævintýraferð“ með jórdönskum leiðsögumönnum.

 „Ferðin hefst í Amman, höfuðborg Jórdaníu, en meðal annars verður gist í nokkrar nætur í eyðimörkinni.“

Útvarp Saga er þekkt fyrir einhliða áróður gegn erlendu fólki. Stöðin hefur þótt ganga hvað lengst í andúð á útlendingum og stýrast af þjóðernishyggju og hræðslu.

 

Aðalmynd: Var birt á Facebook-síðu stöðvarinnar undir spurningunni „Útvarpsmenn framtíðarinnar?“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images