Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Skattaskjól standast ekki siðferðilegar kröfur“

$
0
0

Nafn frambjóðanda: Sigrún Gunnarsdóttir

Flokkur: Björt framtíð

Kjördæmi: Reykjavík norður

Sæti á lista: 2. sæti

Sjá einnig: Konur til áhrifa: Svör kvenframbjóðenda við spurningalista Kvennablaðsins vegna Alþingiskosninganna 2016

Hvers vegna velur þú stjórnmál að starfi?

Vegna áhuga á þjóðfélagsmálum og löngunar til að gera gagn.

Hverjar eru þínar pólitísku áherslur?

Frjálslyndi, mannréttindi, umhverfisvernd og alþjóðahyggja.

Hvers vegna finnur þú þeim farveg í þínum flokki fremur en öðrum?

Vegna þess að pólitískar áherslur og aðferðir flokksins falla að mínum eigin áherslum og aðferðum.

Hvaða stjórnmálamenn og konur, innlendar sem erlendar, metur þú mest?

Justin Trudeau, Barack Obama, Jens Stoltenberg, Brynhildi Pétursdóttur og Björt Ólafsdóttur.

Hver er staða stjórnmálasiðferðis á Íslandi?

Tengsl stjórnmálafólks og sérhagsmuna eru óásættanleg og þarf að koma í veg fyrir.

Hver er afstaða þín til stöðu Bjarna Benediktssonar og Ólafar Nordal eftir að afhjúpað var að þeirra nöfn væri að finna í Panamaskjölunum?

Hér þarf að taka af allan vafa.

Hvers vegna heldur þú að almenningur um víða veröld hafi brugðist við eins og raun ber vitni eftir uppljóstranir Panamaskjalanna?

Vegna þess að þessi mál eru óásættanleg og stangast á við siðferðileg viðmið almennings.

Hver er afstaða þín til skattaskjóla, það er lágskattasvæða og alþjóðlegrar skattasamkeppni?

„Skattaskjól standast ekki siðferðilegar kröfur“

Hvað er kvíðvænlegast við þá tilhugsun að takast á við þingstörf?

Það er mikil áskorun að safna þekkingu á hinum fjölmörgu sviðum sem verkefni þingsins snúa að.

Hvernig var fyrsti dagurinn þinn á þingi?

Þetta var mjög góður dagur, mun þægilegri en ég átti von á.

Ertu sammála rökum þeirra sem telja kynjakvóta nauðsynlegan til að viðhalda jöfnum kynjahlutföllum á þingi?

Það er mjög mikilvægt að auka hlut kvenna á þingi en ég tel kynjakvóta ekki endilega bestu lausnina til að leysa vandann.

Hvaða hagsmuna hefur þú að gæta gagnvart þrýstihópum, fyrirtækjum og/eða vegna vensla? 

Hef ekki hagsmuna að gæta gagnvart fyrirtækjum. Er formaður Krabbameinsfélags Íslands en gæti þess að forysta mín þar og störf fyrir þingið stangist ekki á og standist siðferðilega kröfur.

Með hvaða flokkum vilt þú helst mynda ríkisstjórn eftir kosningar og hvers vegna?

Björt framtíð.

Eru flokkar sem þú vilt helst ekki vinna með?

Get hugsað mér að vinna með öllu góðu fólki, í hvaða flokki sem er.

Hvaða hópar í samfélaginu þurfa mest á stuðningi og athygli stjórnmálamanna að halda?

Börn og eldri borgarar.

Telur þú eðlilegt að nýta skattkerfið sem jöfnunartæki eða á skattastefna landsins eingöngu að miða að fjármögnun hins opinbera?

Björt framtíð leggur áherslu á að tilgangur skattkerfis sé einkum að fjármagna velferðarþjónustu og sameiginlegar framkvæmdir t.d. vegakerfi og orkuflutninga.  Skattkerfi þarf að vera þannig að undanskot séu lágmörkuð og laust við óþarfa flækjur.

Afstaða til mannréttinda og hlutverk stjórnmálanna: Hvert skal vera hlutverk yfirvalda og stjórnmálanna þegar kemur að svokölluðum neikvæðum og jákvæðum réttindum?

Ríkið hefur hlutverki að gegna að gera einstaklingum auðvelt að velja þann kost sem styður réttlæti og jöfnuð og eflir heilsu og lífsgæði. Refsingar geta verið nauðsynlegar þegar alvarlegar er brotið á mannréttindum.

Hver er afstaða þín til persónukjörs og hvers vegna?

Persónukjör geta verið góð leið til styrkja lýðræðið en útfærslan getur verið mjög flókin og kallað á nýtt skipulag t.d. varðandi störf á þingi.

Greiða handhafar fiskveiðikvótans nægilega til samfélagsins fyrir nýtingu þeirra á auðlindum almennings?

Björt framtíð leggur áherslu á að greitt sé eðlilegt gjald fyrir nýtingu sameiginlegra auðlinda. Björt framtíð vill innleiða gagnsætt útboðsferli og greitt verði gjald fyrir nýtingu auðlinda á markaðsforsendum.

Hverjar eru félagslegar afleiðingar eða ágóði núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis?

Dæmi um slíkar afleiðingar eru neikvæð áhrif á búsetu einstaklinga þegar einstaklingar missa skyndilega viðværi sitt eða störf við fiskveiði þegar kvóti er seldur og vinnsla er flutt á milli svæða eða skyndilega lokað.

Ef þú kallar eftir breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu: hvers vegna ættir þú og þinn flokkur að vera fær um að innleiða breytingar og koma á sátt í máli sem deilt hefur verið um áratugum saman?

Björt framtíð leggur áherslu á að greitt sé eðlilegt gjald fyrir nýtingu sameiginlegra auðlinda. Björt framtíð vill innleiða gagnsætt útboðsferli og að greitt verði gjald fyrir nýtingu auðlinda á markaðsforsendum. Hér er sáttaleið mikilvæg sem Björt framtíð leggur sérstaka áherslu á í öllum sínum stjórnmálum.

Afstaða til landsdóms? Var réttmætt að þínu mati að kalla hann til og rétta yfir fyrrverandi forsætisráðherra? Hver er afstaða þín til niðurstöðu dómstólsins?

Hef ekki tekið opinbera afstöðu til þessa máls.

Hver telur þú að kjarninn í lekamálinu sé? Var málið alvarlegt, og ef svo er, hvers vegna?

Trúnaðarbrestur var kjarni þess máls. Það er alvarlegt þegar opinberir starfsmenn eru þátttakendur í slíku máli.

Hvað með nýjan búvörusamning? Hver er afstaða þín til hans?

Björt framtíð greiddi atkvæði gegn núverandi búvörusamningi.

Hver er afstaða þín til inngöngu Íslands í Evrópusambandið?

Björt framtíð leggur áherslu á að þjóðin fái tækifæri til að taka upplýsta ákvörðun um inngöngu í Evrópusambandsins.

Var neitun núverandi stjórnvalda að kjósa um framhaldið svik á loforðum fyrir kosningar?

Já, það var svik á gefnum loforðum.

Er „strax“ teygjanlegt hugtak?

Nei.

Hvers vegna telur þú að ungt fólk hafi dregist svo aftur úr að því er varðar lífsgæði, efnahag og bjartsýni frá því sem áður var?

Skipulag samfélagsins hefur ekki tekið nægjanlega mið af þörfum og lífsgæðum ungs fólks t.d. varðandi menntun, búsetu, húsnæði, foreldraorlof og dagvistun barna. Ég tel að margt ungt fólk hafi misst trú á framtíð sína hér á landi og sjái ekki næga von í búsetu hér á landi.

Er stefna Íslendinga í hælisleitendamálum of ströng eða ekki nægilega ströng?

Stefnan er of ströng en ný útlendingalög eru skref í áttina. Nú þarf t.d. ekki tæknilega séð að fylgja Dyflinnarsáttmálanum, þar er valfrjálst, sem getur dregið verulega úr möguleikum einstaklinga að koma hingað til lands.

Hver er afstaða þín til hagfræðiskóla John Maynard Keynes, að því er varðar hagstjórnunar- og sveiflujöfnunarhlutverk ríkisvaldsins?

Björt framtíð leggur áherslu á að í góðæri sé safnað í ríkissjóð og ekki sérstök áhersla á opinberar framkvæmdir. Hins vegar þegar að kreppir sé hlutverk ríkisins að styðja við að hjól atvinnulífsins fari af stað, styðja við sköpun starfa og opinberar framkvæmdir. Grunnskyldur ríkisins eru samt sem áður þær sömu, bæði í uppsveiflu og niðursveiflu, þ.e. skyldur sem snúa að velferðarþjónustu, menntun, samgöngum og öryggi þjóðarinnar.

Hvað finnst þér um þá stefnu að byggja smærri íbúðir fyrir ungt fólk? Hvers vegna á ungt fólk ekki að geta fjárfest í íbúðum af hefðbundinni stærð?

Björt framtíð leggur áherslu á að ungt fólk, eins og aðrir, hafi val um hvers konar húsnæði fest eru kaup á. Minna húsnæði er oftast ódýrara og þess vegna rökrétt að framboð af slíku húsnæði sé fyrirliggjandi. Björt framtíð leggur sérstaka áherslu á litlar íbúðir og stærri íbúðir séu aðgengilegar öllum.

Rétt eða rangt: Séreignarstefnan er góð stefna sem flokkarnir ættu að sameinast um að viðhalda og virkja að nýju?

Björt framtíð leggur áherslu á blandað framboð af séreignum og leiguhúsnæði sem er grunnur þess að einstaklingar hafi val.

Telur þú þinn flokk, og aðra flokka, bundna af kröfu tæplega 90 þúsund undirskrifta til stuðnings endurreisnar heilbrigðiskerfisins?

Krafan um endurreisn heilbrigðiskerfisins byggir á gildum rökum og brýnt að leggja aukið fé í uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar. Hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu þarf ekki að vera ákjósanlegasti mælikvarðinn hér.

Vilt þú aukna aðkomu einkaaðila í rekstri heilbrigðiskerfisins?

Ekki er þörf á aukinni aðkomu einkaaðila í rekstri heilbrigðiskerfisins. Mikilvægt er að bæta eftirlit með aðgengi og gæðum allrar heilbrigðisþjónustu og meðferð fjár, bæði hjá þeim sem reka heilbrigðisþjónustu sem einkaaðilar og hjá ríkinu sjálfu.

Vilt þú aukna aðkomu einkaaðila í rekstri menntakerfisins?

Ekki er þörf á aukinni aðkomu einkaaðila í rekstri menntakerfisins.

Hefur þú áhyggjur af stétt leik- og grunnskólakennara?

Já, það þarf að leggja sérstaka áherslu á að fjölga menntuðum leik- og grunnskólakennurum og að tryggja að starfsumhverfi þeirra og launakjör séu góð.

Hver er afstaða þín til örlaga nýrrar stjórnarskrár?

Björt framtíð leggur þunga áherslu á að breytingar verði gerðar á stjórnarskrá Íslands í samræmi við vilja þjóðarinnar, eins og hann birtist í þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingar haustið 2012.

Eru 300 þúsund króna lágmarkslaun, örorka og lífeyrir sanngjörn krafa?

Björt framtíð leggur áherslu á að öllum einstaklingum séu tryggð lágmarkslaun, amk. 300 þúsund krónur á mánuði.

Eru tillögurnar sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa valið til að hækka greiðslur almannatrygginga skrum eða raunverulegar?

Björt framtíð hefur ásamt öðrum flokkum í minnihluta lýst verulegum vonbrigðum með þá leið sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa valið til að hækka lífeyri.

Hvað kosta kosningaloforð þín og flokksins?

Björt framtíð leggur áherslu á að í aðdraganda kosninga sé talað um grundvallarmálefni, meginreglur og um ábyrga meðferð ríkisfjár sem felur í sér faglegar og ábyrgar áætlanir um fjárútlát.

Skilaboð Sigrúnar til kjósenda:

Mönnun heilbrigðisþjónustunnar verður forgangsmál næstu árin.

  • Við verðum að taka saman höndum og búa til langtímaáætlun um menntun heilbrigðisstarfsfólks sem tryggir örugga og aðgengilega þjónustu fyrir alla á sviði heilsugæslu, sjúkrahúsa og til þeirra sem búa heima hjá sér eða á stofnunum.
  • Við verðum líka að taka höndum saman um að nýta sem best þekkingu og reynslu hvers og eins heilbrigðisstarfsmanns með áherslu á þverfaglega samvinnu og gott starfsumhverfi.
  • Enduruppbygging heilbrigðisþjónustunnar er háð hugrekki okkar og sköpunarkrafti til að skapa nýjar lausnir sem byggja á þekkingu með þarfir og öryggi skjólstæðinganna að leiðarljósi.
  • Lög og reglur um rekstur einkaaðila vegna heilbrigðisþjónustu verða að endurspegla ábyrga meðferð fjármuna, jafnt aðgengi að þjónustunni og gæði þjónustunnar. Öll heilbrigðisþjónusta sem studd er með opinberu fé á að lúta lögmálum jafnræðis og réttlætis.

Langtímaáætlanir eru nauðsynlegar fyrir öll skólastig.

  • Menntun á öllum skólastigum þarf að styrkja þannig að öll börn og ungmenni hafi aðgang að góðri menntun sem hæfir áhuga þeirra og hæfileikum.
  • Háskólarnir þurfa að losna undan fjárhagslegu óöryggi.
  • Stefna og stuðningur við skóla þarf að endurspegla gildi þeirra fyrir lífsgæði og hagsæld.

Fagmennska í opinberri þjónustu þarf að batna.

  • Óvönduð vinnubrögð innan opinberrar þjónustu þarf að viðurkenna og takast á við.
  • Bæta verður vinnubrögð opinberrar þjónustu með áherslu á að þarfir þeirra sem þjónustuna þiggja. Þetta á til dæmis við um þjónustu sem snýr að örorku og endurhæfingu.
  • Gagnsæi í allri stjórnsýslu þarf að stórefla.
  • Ábyrgðarskylda hvers og eins starfsmanns í opinberri þjónustu verður að vera skýr.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images