Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Ég er hjartahlý hugsjónakona og vil veg allra sem mestan“

$
0
0

Nafn frambjóðanda: Heiða Rós Hauksdóttir

Flokkur: Flokkur Fólksins

Kjördæmi: Suðurkjördæmi

Sæti á lista: 2. sæti

Skilaboð: Setjum X við F í Alþingiskosningunum þann 29. október.

Sjá einnig: Konur til áhrifa: Svör kvenframbjóðenda við spurningalista Kvennablaðsins vegna Alþingiskosninganna 2016

Ég er hjartahlý hugsjónakona og vil veg allra sem mestan. En það sem ég vil sérstaklega berjast fyrir eru börnin okkar, þau eru framtíðin. Þess vegna er sú stefna sem Flokkur fólksins setur fram um vernd barnanna okkar, falleg og góð stefna. Þar kemur skýrt fram að börnum verði tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Flokkur Fólksins vill að öllum börnum verði tryggður gjaldfrjáls og hollur matur í leikskólum og skólum. Ekkert barn á að þurfa að vera svangt vegna fátæktar. Öll börn eiga að fá viðunandi sálgæslu og aðbúnað í skólanum sem á tryggja andlega velferð þeirra og gleði.

Hvers vegna velur þú stjórnmál að starfi?

Langar að láta gott af mér leiða og gera sem mest fyrir fólkið í landinu.

Hverjar eru þínar pólitísku áherslur?

Að berjast gegn allri mismunun, spillingu, lögleysu og fátækt. Ég vil að í landinu okkar búi ein þjóð en ekki sérhagsmunaöfl græðgisvæðingarinnar annars vegar og svo við hinir.

Hvers vegna finnur þú þeim farveg í þínum flokki fremur en öðrum?

Vegna þess að Flokkur fólksins vill útrýma fátækt og spillingu, hann vill að enginn hafi lægri framfærslu en 300.000 kr. þar sem skattleysismörkin eru 300.000 kr. Flokkur fólksins vill að unga fólkið okkar eigi að hafa val um það að geta keypt sér þak yfir höfuðið og vill afnema verðtryggingu og okurvexti. Flokkur fólksins boðar það einnig að námslán fái leiðréttingu í samræmi við aðrar skuldaleiðréttingar.

Hvaða stjórnmálamenn og konur, innlendar sem erlendar, metur þú mest?

Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, sem mér finnst bera höfuð og herðar yfir þá sem nú eru að bjóða sig fram. Að öðru leiti hef ég ekki myndað mér frekari skoðun.

Hver er staða stjórnmálasiðferðis á Íslandi?

Virkilega bágborin svo ekki sé meira sagt.

Hver er afstaða þín til stöðu Bjarna Benediktssonar og Ólafar Nordal eftir að afhjúpað var að þeirra nöfn væri að finna í Panamaskjölunum?

Algjörlega siðferðilega rangt að þau hafi setið áfram, að sjálfsögðu áttu þau að víkja með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.

Hvers vegna heldur þú að almenningur um víða veröld hafi brugðist við eins og raun ber vitni eftir uppljóstranir Panamaskjalanna?

Væntanlega vegna þess að almenningi um víða veröld finnst þetta lykta af spillingu, græðgishugsjón og siðleysi.

Hver er afstaða þín til skattaskjóla, það er lágskattasvæða og alþjóðlegrar skattasamkeppni?

Er á móti því.

Ertu sammála rökum þeirra sem telja kynjakvóta nauðsynlegan til að viðhalda jöfnum kynjahlutföllum á þingi?

Nei, það á ekki að hengja sig svo stíft á kynjakvótann þótt að sjálfsögðu ég sé sammála jafnrétti kynjanna.

Hvaða hagsmuna hefur þú að gæta gagnvart þrýstihópum, fyrirtækjum og/eða vegna vensla?

Ég á engra hagsmuna að gæta gagnvart neinu af þessu.

Með hvaða flokkum vilt þú helst mynda ríkisstjórn eftir kosningar og hvers vegna?

Ég vil ekki útiloka neinn sem samstarfsaðila svo framarlega sem viðkomandi vill berjast með okkur að stefnumálum okkar.

Eru flokkar sem þú vilt helst ekki vinna með?

Sjá svarið hér að ofan.

Hvaða hópar í samfélaginu þurfa mest á stuðningi og athygli stjórnmálamanna að halda?

Öryrkjar, aldraðir, börn, menntafólk og allir þeir sem eru að berjast við og undir fátæktarmörkum.

Telur þú eðlilegt að nýta skattkerfið sem jöfnunartæki eða á skattastefna landsins eingöngu að miða að fjármögnun hins opinbera?

Skattakerfið tel ég eigi að virka í báðar þessar áttir.

Afstaða til mannréttinda og hlutverk stjórnmálanna: Hvert skal vera hlutverk yfirvalda og stjórnmálanna þegar kemur að svokölluðum neikvæðum og jákvæðum réttindum?

Fara eftir stjórnarskránni.

Hver er afstaða þín til persónukjörs og hvers vegna?

Ég er sammála því að það eigi að vera persónukjör, vegna þess að það eru öflugir hugsjónamenn og konur í öllum flokkum.

adalmynd

Greiða handhafar fiskveiðikvótans nægilega til samfélagsins fyrir nýtingu þeirra á auðlindum almennings?

Handhafar kvótans eru ekki aðeins lengur umsjónarmenn, í raun fara þeir með eignarvald. Og um ¾ alls veiðikvótans við Ísland rennur til um 20 fyrirtækja. Innan við 100 einstaklingar hirða mesta hlutann af auðlindarentunni í gegnum eignarhald sitt á þessum fyrirtækjum. Hefur ítarlega verið fjallað um þennan fámenna hóp fólks sem fær rentu af auðlind Íslendinga úthlutaða í gegnum stjórnmálamenn sem sjá það sem hlutverk sitt að viðhalda þessu lénskerfi nútímans. Þessir einstaklingar hirða 33 milljarða af auðlindarentunni í sjávarútvegi á hverju ári. Frá hruni og þar til í hitt í fyrra lagði auðlindarentan sig á um 322 milljarða króna samkvæmt útreikningum Indriða H. Þorlákssonar. En annars vill Flokkur fólksins að fiskstjórnunarkerfið verði endurskoðað og það tryggt að fullt verð fáist fyrir aðgang að auðlindinni. Flokkur fólksins vill að allur veiddur fiskur fari á markað. Veiðiheimildir verði afskrifaðar um 5% á ári, sem boðnar verða upp árlega. Aukning á aflaheimildum verði boðin út annars vegar til strandveiða og hins vegar til úthafsveiða. Flokkur fólksins vill frjálsar strandveiðar smábáta að fjórum tonnum.

Hverjar eru félagslegar afleiðingar eða ágóði núverandi fiskveiðistjórnunarkerfis?

Ágóði ¾ alls fiskveiðikvótans við Ísland rennur til um 20 fyrirtækja . Innan við 100 einstaklingar hirða mesta hlutann af auðlindarentunni í gengum eignarhald sitt á þessum fyrirtækjum. Félagslegar afleiðingar eru sorglegar þar sem lítil sjávarpláss allt í kringum landið eru að leggjast í auðn vegna framsals kvótans.

Ef þú kallar eftir breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu: hvers vegna ættir þú og þinn flokkur að vera fær um að innleiða breytingar og koma á sátt í máli sem deilt hefur verið um áratugum saman?

Vegna þess að ef við fáum umboð kjósenda til þess, þá vitum við hvar valdið liggur sem setur reglurnar og það er hjá löggjafanum á hinu háa Alþingi.

Afstaða til landsdóms? Var réttmætt að þínu mati að kalla hann til og rétta yfir fyrrverandi forsætisráðherra? Hver er afstaða þín til niðurstöðu dómstólsins?

Mér fannst ekki rétt að taka hann einan fyrir þar sem fleiri komu að málum og báru óskoraða ábyrgð.

Hver telur þú að kjarninn í lekamálinu sé? Var málið alvarlegt, og ef svo er, hvers vegna?

Já, alvarlegt vegna augljósra brota á stjórnsýslulögum í allri meðferð málsins. Einnig var brotið gróflega á persónuvernd hælisleitandans þannig að grundvallarreglur stjórnarskrárinnar voru líka brotnar.

Hvað með nýjan búvörusamning? Hver er afstaða þín til hans?

Mér finnst hann mismuna bændum og að þurfi að endurskoða hann með hag allra bænda í huga.

Hver er afstaða þín til inngöngu Íslands í Evrópusambandið?

Ég er á móti því.

Var neitun núverandi stjórnvalda að kjósa um framhaldið svik á loforðum fyrir kosningar?

Já, það var það.

Er „strax“ teygjanlegt hugtak?

Nei það finnst mér ekki, strax er STRAX. Þýðir einfaldlega núna undir eins.

eg-og-inga

Hvers vegna telur þú að ungt fólk hafi dregist svo aftur úr að því er varðar lífsgæði, efnahag og bjartsýni frá því sem áður var?

Vegna atvinnuleysis, lágra launa og hárrar leigu.

Er stefna Íslendinga í hælisleitendamálum of ströng eða ekki nægilega ströng?

Nægilega ströng.

Hver er afstaða þín til hagfræðiskóla John Maynard Keynes, að því er varðar hagstjórnunar- og sveiflujöfnunarhlutverk ríkisvaldsins?

Veit ekkert um þetta. Hef ekki þekkingu á því.

Hvað finnst þér um þá stefnu að byggja smærri íbúðir fyrir ungt fólk? Hvers vegna á ungt fólk ekki að geta fjárfest í íbúðum af hefðbundinni stærð?

Mér finnst margt sniðugt við að byggja smáhýsi en að sama skapi á fólk að geta keypt sér stærri íbúðir sem gæti verið þeirra framtíðareign til dæmis. Með afnámi verðtryggingar og okurvaxta munu allir eiga þess kost að eignast húsnæði við hæfi.

Rétt eða rangt: Séreignarstefnan er góð stefna sem flokkarnir ættu að sameinast um að viðhalda og virkja að nýju?

Rangt.

Telur þú þinn flokk, og aðra flokka, bundna af kröfu tæplega 90 þúsund undirskrifta til stuðnings endurreisnar heilbrigðiskerfisins?

Já að sjálfsögðu. Flokkur fólksins vill aukið beint lýðræði og að það sé þjóðarviljinn sem á alltaf að eiga síðasta orðið um allt það sem varðar okkur sem þjóð til framtíðar.

Vilt þú aukna aðkomu einkaaðila í rekstri heilbrigðiskerfisins?

Nei.

Vilt þú aukna aðkomu einkaaðila í rekstri menntakerfisins?

Nei, þar sem það eru allar líkur á því að með því móti yrði ýtt undir mismunun í menntakerfinu. Þ.e kostnaðurinn yrði meiri fyrir nemendur og meiri líkur á að einungis þeir efnameiri gætu stundað nám.

Hefur þú áhyggjur af stétt leik- og grunnskólakennara?

Já, það er dapurt hvernig þessar stéttir sem eru í raun að ala upp börnin okkar að miklu leyti um ákveðinn tíma, skulu ekki vera virtar að verðleikum meira en nú er. Það á að verðlauna þá sem eru að vernda og mennta börnin okkar með því að borga þeim mannsæmandi laun. Með því móti munu fleiri sækja í þessar starfsgreinar og umgjörðin utan um börnin okkar verður miklu öruggari.

Hver er afstaða þín til örlaga nýrrar stjórnarskrár?

Við eigum að virða það mikla starf sem stjórnlagaráð lagi í mótun hennar og virða um leið þjóðarviljann sem náðist fram í þjóðaratkvæðargreiðslunni í kjölfarið.

Eru 300 þúsund króna lágmarkslaun, örorka og lífeyrir sanngjörn krafa?

Ef það er eftir skatta, eins og stefnan er hjá Flokki Fólksins, þá er það sanngjarnt.

Eru tillögurnar sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa valið til að hækka greiðslur almannatrygginga skrum eða raunverulegar?

Algjört skrum og ryk sem verið er að fleygja í augu kjósenda rétt fyrir kosningar. Einungis örfáir munu njóta aukinna réttinda samkvæmt þeim.

Hvað kosta kosningaloforð þín og flokksins?

Hef ekki krónutölu á því.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images