Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hið undurfagra Alsace hérað

$
0
0

Alsace er eitt þekktasta vínhérað Frakklands. Það er staðsett við landamæri Frakklands í austri og liggur að Þýskalandi og Sviss eftir vesturbakka Rínar. Höfuðborg Alsace er Strassbourg þar sem stór hluti af stjórnvaldi Evrópusambandsins er með bækisstöðvar.

Alsace hefur þó verið þekktara fyrir vínrækt í gegnum aldirnar og má segja að fáir staðir í Frakklandi bjóði upp á jafn fjölbreyttan jarðveg og þetta litla hérað. Landsvæðið er sannkallað mósaik-listaverk samansett af kalksteini, klettum, möl, leir og sandi. Þess vegna getur verið geysimikill munur á víni gerðu úr sömu þrúgum frá svæðum sem þó eru nálægt hvert öðru.

Vínekrur Alsace liggja í kringum lítil miðaldaþorp sem skarta þröngum steinlögðum götum og rómantískum timbur- og múrsteinshúsum með blómakerjum í hverjum glugga. Það er unaðslegt að heimsækja þetta svæði og ganga um þröngar götur þessara fallegu þorpa. Þessi heillandi blanda af franskri og þýskri menningu skilar sér í víngerðina.

Verðlækkun á Pfaff vínunum frá Alsace

Eitt þessara fallegu þorpa er Pfaffenheim. Þar stofnuðu vínræktendur og bændur samvinnufélag (e: co op) fyrir víngerðina í kringum þorpið árið 1955. Félagið hefur vaxið og dafnað og hefur nú hlotið flestar viðurklenningar Búnaðarþings Frakklands (Fr:Concours Général Agricole de Paris) og stendur almennt framar öðrum framleiðendum í Alsace. Víngerðin vinnur eingöngu með bændum sem handtína þrúgurnar af vínviðnum og krefst stöðugra framfara og nýsköpunnar af ræktendum sínum til að geta haldið áfram að búa til framúrskarandi vín. Þetta fyrirtæki heitir nú Pfaff og vín frá þeim hafa fengist lengi á Íslandi og verið söluhæstu vínin frá Alsace um árabil.

Nýlega lækkaði verð á þessum vínum og þau eru því á afar hægstæðu verði miðað við gæði.

Pfaff Pinot Gris nú kr. 2.490.

pfaff-pinot-grigio

 

Þetta vín Fékk 4 stjörnur bæði hjá Þorra og Steingrími og 89 punkta hjá Wine Enthusiast. Vínið ber angan af blómum og sultuðum ávöxtum og er bæði frískandi og lymskulega höfugt. Liturinn er aðlaðandi gylltur eða gulleitur. Það er tignarlegt í nefi með reyktum keim af sýruríkum gulum ávöxtum. Slíkur ferskleiki býður upp á óviðjafnanlega skerpu og fágun. Í munni finnur maður perur, gular plómur og bökuð epli sem veita góðri fitu fullkomið mótvægi. Eiginleikar þessir gera vínið framúrskarandi gott með mat.

Pfaff Gewurztraminer nú kr. 2.490.

pfaff-gewurztraminer

Þessi vinsæla þrúga er aðeins þéttari heldur en Pinot Gris en þó líka með hærra sykurmagni en almennt í hvítvínum. Gewürztraminer er líka mjög arómatísk þrúga en það sem er einkennandi fyrir þennan Gewürz er rósablaðailmurinn og lychee-ávöxurinn. Mikið af bökunarkryddum, mikið af negul, mikið af kardimommum hérna á bakvið. Þetta er dásamlegt jóla- og hátíðavín sem passar einnig með hangikjöti og hamborgarhrygg, ekki síður en Pinot Gris–vínið hér á undan. Og ef fólk kýs almennt frekar hvítvín umfram rauðvín þá er þetta klárlega eitthvað sem gengur með steikum. Já, hvítvín með nautasteikum!
Þetta gengur með nánast allri villibráð, rjúpunni, gæsinni og jafnvel með hreindýrinu því kryddin eru svo afgerandi, massív og veigamikil. Einnig er þetta heppilegt með mjög feitum fiski, reykta laxinum, graflaxinum. Einnig frábært með grafinni önd eða gæs og meira að segja með mjög feitum mygluostum og eftirréttum.

Ný eðal hvítvín frá Pfaff !

Nýlega byrjuðu svo 3 ný vín úr smiðju Pfaff, sannkölluð eðal hvítvín. Þessi vín eru blanda frá tveimur Grand cru ekrum, Steinert og Goldert og útkoman er hreint út æðisleg.
Steingold Gewurztraminer kr. 2.890

steingold-gewurztraminer

Gullinn litur og í nefi er það ferskt og flókið með krydduðum keim. Hvítir ávextir koma fram, engifer og kúmen ásamt blómlegu hunagsilmi og endirinn býður upp á hnetulykt. Í bragði takst á ferskleiki og sætleiki í góðu jafnvægi og þarna má jafnvel finna smá chilli og karrý. Afar flókið og skemmtilegt með góðri endingu. Vínið passar með afar mörgu, m.a. reyktu kjöti, austurlenskum fisk og kjúklingaréttum, karrýréttum ýmiskonar og fl. Þetta vín er líka verulega gott sem fordrykkur.

Steingold Pinot Gris kr. 2.890

steingold-pinot-gris

Pinot Gris er líklega þekktasta þrúgan í Alsace og þetta vín er guðdómlegt. Þarna má finna fullt af ávöxtum, þurrkuðum kryddum, hunangi og hvítum perum. Vínið er þykkt og höfugt með góðri endingu. Vínið þykir smellpassa með foi graz og það passar með allskyns mat, fiskréttum, asískum réttum, ljósu kjöti og reyktu kjöti.

Steingold Riesling kr. 2.690

steingold-riesling

Liturinn er ljósgullinn og í nefi má finna sítrus tóna og jafnvel mandarínur, hvít blóm og smá mentól. Í munni er það afar ferskt með bleiku greipaldini, perum og blóða appelsínum. Gott jafnvægi og mikil ending. Passar vel með öllu fiski og fer afar vel með geitaosti.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images