Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fleiri leita réttar síns vegna myglusvepps í húsnæði atvinnurekenda

$
0
0

Félagsmenn Bandalags háskólamanna, BHM, leita í sífellt auknu mæli til stéttarfélaga innan BHM til að fara yfir réttarstöðu sína vegna veikinda eða sjúkdóma af völdum vinnusvepps á vinnustöðum. Þetta kemur fram í skrifum Ernu Guðmundsdóttur, lögmanns BHM í Fréttablaðinu í dag. Erna segir eina skýringu á því að vandinn sé að aukast vera þá að langvarandi skortur sé á húsnæðisviðhaldi hjá stofnunum og fyrirtækjum,

„Í flestum tilvikum er hægt að uppræta myglusveppinn þannig að starfsmenn geti sinnt störfum sínum án þess að veikjast. Því miður er hins vegar allt of stór hópur starfsmanna sem veikist vegna myglusvepps og ekki tekst að uppræta skaðvaldinn. Staða þess hóps er ekki góð. Starfsmenn geta ekki sinnt starfi sínu þar sem hvorki virðist hægt að laga húsnæðið né útvega þeim nýtt húsnæði,“ skrifar Erna sem segir oft virðast sem einu úrræði vinnuveitenda sé að senda starfsfólk í veikindaleyfi án þess að þeir sú í raun og veru veikir nema í hinu sýkta húsnæði.

„Dæmi eru um að starfsmenn séu sendir í veikindaleyfi og séu í því þangað til veikindaréttur þeirra er tæmdur, jafnvel starfsmenn sem eiga hátt í ár í veikindarétt,“ segir í grein Ernu. „Þá eru allmörg tilvik þar sem starfsmenn hafa fundið sig knúna til þess að segja starfi sínu lausu þar sem þeir hafa heilsu sinnar vegna ekki getað snúið aftur til vinnustaðarins.“

Lögmaður BHM segir mikið magn dagsverka fara fyrir bý hjá stofnunum og fyrirtækjum sökum þess að húsnæði er svo sýkt ekki er hægt að sinna vinnu þar. Hún er gagnrýnin á að starfsfólk sé látið nýta sér veikindarétt vegna þess að vinnuveitendur sinni ekki þeirri skyldu sinni að bjóða starfsfólki öruggan aðbúnað.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283