Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Senn koma jólin; trúarhátíðin mikla

$
0
0

Guðl. Gauti Jónsson arkitekt skrifar:

Enn er þessi tími ársins genginn í garð. Tíminn þegar rifist er um þá ósk sumra foreldra að trúarathöfnum sé ekki haldið að börnunum þeirra eða að þau þurfi að velja milli trúarathafna og einhvers annars sem getur verið hrútleiðinlegt. Tíminn þegar aðrir foreldrar telja í hæsta máta eðlilegt að halda trúarlegu efni og athöfnum að öllum börnum af því á þau eru stödd á Íslandi. Hvað er þetta eiginlega með þessa blessuðu trú?

Auglýsing

„Ég á mína trú“ heyrir maður fólk stundum segja eða „ég á minn guð.“

Flest okkar teljum þetta örugglega allt í lagi og bara hið besta mál þangað til þetta fólk fer að troða „sinni“ trú og „sínum“ guð upp á okkur hin og óvita börnin okkar. Flest okkar eru ekki bókstafstrúar, öfgatrúar eða ofstækisfullir trúleysingjar (hvað sem fólk vill kalla það) sem þola ekki jólatré eða að rauluð séu heimsfræg stef efir mörg af frægustu tónskáldum vestrænnar menningar (þó textarnir séu oft upphafnir og væmnir). Flest okkar nota kveðjur eins og bless, hæ, halló og gleðileg jól þegar það á við. Rétt eins og gleðilegt nýtt ár eru þetta bara kveðjur sem hafa enga dýpri merkingu einar og sér.

En það er þetta eilífa trúboð sem einkennir kristna trú og Islam sem setur allt á annan endann. Þessi þörf til að segja öðrum hvernig þeir eigi að hegða sér og hugsa.  Þessi þörf sem er sumpart byggð inn í trúarbrögðin en er líka þörf meirihlutans til að stjórna umhverfi sínu og til að kúga minnihlutahópa. Svona er þetta ekki í Búddisma eða Konfúsíusisma og Gyðingar vilja ekkert með utanaðkomandi hafa í sínum trúarbrögðum.

Auglýsing

Einhver mestu stríð sögunnar hafa verið trúarbragðastríð. Nægir þar að nefna krossferðirnar sem vöruðu í hartnær 200 ár og 30 ára stríðið frá 1618 – 1648. Það síðarnefnda var meira að segja milli tveggja greina sömu trúarbragða og sagnfræðingar segja að 3 – 12 milljónir manna haf verið drepnar en á sama tíma voru íbúar Evrópu innan við 100 milljónir. Þannig að það þarf ekki að fara langt til að finna samlíkingu við stríð shía og súnníta.

Ást og umburðarlyndi er stór þáttur í mörgum trúarbrögðum þar á meðal í kristinni trú. Beitum þessu tvennu í þágu nágranna okkar og allra landsmanna. Hættum að draga skólabörn í kirkjur nema sem þátt í trúarbragðafræðslu þegar musteri annarra trúarbragða eru líka heimsótt. Fræðsla um kristni er rúmfrekur hluti af Íslandssögunni og það er enginn að tala um að breyta því eða ritskoða. Látum börn í friði þangað til þau hafa þroska til að mynda sér sjálf skoðun á „sínum“ guð og sinni trú.

Gleðileg jól.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images