Hamborgarhryggur er enn sem áður algengasti aðalrétturinn á aðfangadagskvöldi en tæplega helmingur Íslendinga (46,4%) hyggst gæða sér á hamborgarhrygg næstkomandi laugardag. Þetta kemur fram í árlegri könnun MMR um hvað Íslendingar ætla að borða í aðalrétt á aðfangadag á komandi jólahátíð.
Við hjá erum spennt að vita hvað okkar lesendur borða á aðfangadag og því ákváðum við að skella í létta könnun. Það skal tekið fram að hún er til gamans gerð og uppfyllir alls ekki kröfur um aðferðafræði kannana. Matarkönnun Kvennablaðsins og Sykurs uppfyllir þó ítrustu kröfur um stuð og skemmtilegheit. Gleðileg matarjól ![:)]()
Vinsældir hamborgarhryggsins dala þó milli ára en af þeim sem tóku afstöðu sögðust nú 46,4% ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag samanborið við 49,8% í fyrra. 9,6% sögðust ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt), 8,0% sögðust ætla að borða rjúpur, 9,6% sögðust ætla að borða kalkún, 4,4% sögðust ætla að borða svínakjöt (annað en hamborgarhrygg) og 21,9% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti.
Lambakjöt vinsælt á landsbyggðinni
Þegar svör eru skoðuð með tilliti til aldurs sést að Íslendingar yngri en 50 ára eru töluvert líklegri til að ætla að borða borða hamborgarhrygg í ár heldur en þau sem eldri eru. Íslendingar 68 ára og eldri eru ólíklegastir til að ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag í ár (38%) en eru aftur á móti líklegri en aðrir aldurshópar til að borða rjúpur (16%). Þau sem tilheyrðu aldurshópnum 50-67 ára voru líklegust til að ætla að borða annað en fyrrgreinda kosti (26%).
Íbúar á landsbyggðinni eru mun líklegri til að borða lambakjöt á aðfangadag (16%) heldur en íbúar höfuðborgarsvæðisins (6%). Íbúar á höfuðborgarsvæðinu er aftur á móti miklu líklegri til að kjósa kalkún á sinn disk á aðfangadag (12%) heldur en íbúar á landsbyggðinni (6%).
Viðreisnarmenn og konur hefðbundnust
Lambakjöt nýtur meiri vinsælda sem aðalréttur á aðfangadag meðal stuðningsfólks Vinstri grænna og Framsóknarflokksins heldur en stuðningsfólks annarra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Vinstri græna sögðust 16% ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt) sem aðalrétt að aðfangadag og 15% þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn, borið saman við 2% Pírata. Kalkúnn verður helst á borðum hjá stuðningsfólki Bjartrar framtíðar (16%) samanborið við 5% þeirra sem styðja Framsóknarflokkinn. Stuðningsfólk Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins eru líklegri að borða rjúpur sem aðalrétt á aðfangadag en stuðningsfólk annarra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu ætla 13% þeirra sem studdu Sjálfstæðisflokkinn og 12% þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn að borða rjúpur á aðfangadag, borið saman við 1% Pírata og 3% Bjartrar framtíðar.
Aðferðafræði MMR-könnunarinnar: Spurt var: Hvað er líklegast að þú munir borða sem aðalrétt á aðfangadagskvöld?
Svarmöguleikar voru: Fiskur/sjávarfang, gæs, grænmetisfæði, hangikjöt, hamborgarhryggur, hreindýrakjöt, kalkúnn, kjúklingur, lambakjöt (annað en hangikjöt)*, nautakjöt, rjúpur, svínakjöt (annað en hamborgarhryggur)**, önd, annað kjöt, annað og veit ekki/vil ekki svara. Samtals tóku 95,4% afstöðu til spurningarinnar. Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR. Svarfjöldi: 924 einstaklingar. Dagsetning framkvæmdar: 9.-14. desember 2016




