Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Höfum þetta ofbeldislaus jól

$
0
0

Friðgeir Sveinsson skrifar:

Ég bað jólasveininn um ofbeldislaus jól fyrir dóttur mína.

Ég hef ekki getað gefið dóttur minni jólagjöf síðan 2009. Samskiptin við barnsmóður mína fyrir jólin 2010 voru á þá leið að þegar ég sendi skilaboð á barnsmóður mína um hvenær ég gæti komið með pakkana fyrir Katrínu Steinu þá var svarið sem ég fékk í tölvupósti frá barnsmóður minni svohljóðandi.

„Vertu ekkert að hafa fyrir því að koma með e-h til hennar, það verður ekki tekið við því.“

Ég þurfti ekki að hugleiða svarið mikið til þess að átta mig á því að það var ekki til neins að ég gerði mér ferð með gjafirnar til Katrínar Steinu.

Til að reyna til þrautar þá ákváðum við fjölskyldan að athuga hvort að amma og afi fengju betri viðtökur en ég. Foreldrar mínir fóru á Þorláksmessu árið 2010 gjöfum hlaðin að heimili barnsmóður minnar og dóttur. Með bjartsýni og sáttarhönd bönkuðu þau að dyrum.

Á um það bil þremur mínútum hvarf sú von sem foreldrar mínir ólu með sér eins og dögg fyrir sólu. Það voru allt annað en þakkir og bros í anda jólanna. Svívirðingar, formælingar og hótanir voru kveðjurnar sem foreldrar mínir fengu. Hurðinni var skellt á þau, þeim sagt að koma aldrei aftur. Allar gjafirnar sem dóttir mín átti að fá fóru með mömmu og pabba aftur heim.

Faðir minn, mælskur maður og gamall ræðuþjálfari var orðlaus í fyrstu. Mágkona mín tók á móti foreldrum mínum í kaffi eftir þennan atburð. Mágkona mín sagði mér síðar að hvorki fyrr né síðar hafi séð faðir minn eins og hann var eftir þenna atburð. Eins og mágkona mín orðaði það. Fyrst var pabbi sem steinrunnin, og svo kom reiðin. Og eftir það sorgin.

Mamma, hún hefur eiginlega aldrei viljað ræða þennan atburð. Þetta var of mikið.

Jólin er sá tími sem börnin ljóma, allt er svo spennandi, allt er svo gaman. Þegar öllu er á botnin hvolft, og þó að jólin séu trúarleg hátíð þá vita það allir sem fullorðnir eru, að jólin er sá tími sem að við leggjum mesta áherslu á að gleðja börnin.

Hundruðir barna munu þessi jól upplifa það sama og Katrín Steina dóttir mín hefur þurft að upplifa allt frá 2010. Hundruð barna verða rænd samvistum við feður sína, ömmur sínar og afa, frænkur frændur og já jafnvel systkinum sínum (hálfsystkinum)

Ég vona að sem flestir sjái að sér og refsi börnum ekki fyrir eigin skapgerðarbresti eða óvild í garð feðra barnanna sem um ræðir. Tálmunarofbeldi er grafalvarlegt og hefur víðtæk og skaðleg áhrif á börn. Mjög skaðleg áhrif.

Að tálma því að barn geti umgengist og þekkt alla sína fjölskyldu er nefnilega ekkert annað en ofbeldi. Mjög gróft ofbeldi!

Ég vona að sem fæst börn búi við ofbeldi þessi jól.

Höfum þetta ofbeldislaus jól.
——————————————–

Eftirfarandi myndband er hluti af vitundarvakningarátaki um tálmunarofbeldi.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images