Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Farfuglatónleikar milli jóla og nýárs

$
0
0

Fréttatilkynning:

Hannesarholt býður tónlistarnemum í útlöndum að halda tónleika í endurgjaldslaust í jólaleyfinu. Að halda tónleika á heimaslóðum er góð reynsla fyrir ungt tónlistarfólk og styrkir tengslin við samfélagið sem ól þau af sér. Þá er ekki síður dýrmætt fyrir þá sem heima sitja að fá að fylgjast með þroskagöngu unga listafólksins.

Afrakstur sölu aðgöngumiða rennur alfarið í vasa tónleikahaldara og standa allir yfir í um eina klukkustund

Tónleikadagskrá er eftirfarandi:

Miðvikudagur 28. desember kl. 17.
Rannveig er á þriðja ári í bakkalárnámi við The Juilliard School í New York, þar sem hún er nemandi Laurie Smukler. Rannveig spilar fjölbreytta tónlist, hún sækir einnig tíma á barrokk fiðlu og kemur oft fram nútímahljómsveitinni New Juilliard Ensemble.

Miðvikudagur 28 desember kl. 20:00
Magnús Hallur Jónsson óperusönvari og Bjarn Frímann Bjarnason píanóleikari flytja þýskar óperettur og Kino lög. Ekta „Schmalz

Fimmtudagur 29 desember kl. 17:00
Björg Brjánsdóttir og Bryndís Þórsdóttir
Bryndís Þórsdóttir nemur fagottleik við Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn og Björg nemur þverflautuleik við Tónlistarháskóla Noregs í Osló. Björg og Bryndís leika ljúfa en fjölbreytta tónlist allt frá jólalegri barokksónötu til brasilískra svítu.

Fimmtudagur 29 desember kl. 20:00
Rakel Björt Helgadóttir leggur núna stund á nám í hornleik í Berlín. Meðleikari hennar á tónleikunum er Anna Guðný Guðmundsdóttir.

Föstudagur 30 desember kl. 17:00
Sólveig Steinþórsdóttir stundar fiðlunám við listaháskólann í Berlín.

Verkefnið Tónleikar farfugla fellur vel að markmiðum Hannesarholts, en meðal þeirra er að hlúa að og skapa rými fyrir uppbyggjandi mannlíf og menningarstarfssemi.

Hannesarholt fékk styrk frá Menningar-og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar til að standa að þessu verkefni.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images