Tómas Guðbjartsson læknir deildi eftirfarandi skrifum á Facebook í morgun:
Landspítali fastur á milli hæða – og bíður eftir björgun
Sem betur fer þurftu sjúklingar ekki að hírast á göngum eða kaffistofum Landspítala yfir jólin, a.m.k. ekki við Hringbraut. En jólasagan er ekki fullsögð því á jóladag festist önnur af tveimur lyftum milli hæða í gamla spítalanum. Innanborðs var starfsfólk röntgendeildar með færanlegt röntgenmyndatæki til að taka myndir af sjúklingum á gjörgæslunni. Ræsa varð út vélvirkja, hífa lyftuna upp á milli hæða og ná starfsfólkinu út. Tveimur dögum síðar er lyftan enn biluð og ekki ljóst hvenær hún kemst í gagnið. Sem er bagalegt því lyftan er önnur tveggja í gamla spítalanum sem notuð er til að flytja sjúklinga til og frá gjörgæslu, en einnig niður á röntgendeildina. Auk þess sinna lyfturnar hlutverki starfsmannalyftu.

Þess mynd tók ég í september en það tók óratíma að koma lyftunni í gang. Miðarnir segja allt sem segja þarf.
Þessi jólabilun væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þá staðreynd að þessar lyftur eru sífellt bilandi, líkt og tölvuneiðmyndatækið á röntgendeildinni. “Systur”-lyftan bilaði í september en þá tók næstum tvær vikur að koma henna aftur í lag – töf sem eflaust skýrist af því hversu erfitt er að fá varahluti í svo gamla lyftu. Fyrir tveimur árum voru þessar sömu lyftur í aðalhlutverki í fréttatíma RÚV, en eins og myndin sýnir hafa þær ekki yngst með árunum (bráðalyfta innar á skurðstofuganginum hefur þó leyst þær af við flutning veikustu sjúklinganna). Í sama anda var fréttir á bæði RÚV og Stöð 2 þar sem greint var frá sjúklingum sem ítrekað þurftu að dvelja á tækjageymslu skurðdeildar við Hringbraut.

Myndina tók ég í gær, annan í jólum, og sýnir aðra af tveimur lyftum við innganginn að skurðstofunum við Hringbraut, en þar eru m.a. gerðar hjartaskurðaðgerðir. Á sama gangi er gjörgæslan við Hrinbraut.
Vandamálin á Landspítala eru því ekki ný af nálinni – heldur endurtekið efni. Bilaðar lyftur, geymslur undir sjúklinga og ganginnlagnir endurspegla ástand á spítala sem virðist “fastur á milli hæða” og bíður eftir að vera bjargað. Lyftur og tölvusneiðmyndatæki mega hreinlega ekki bila endurtekið á sjúkrahúsi – enda öryggi sjúklinga í húfi. Hvað hefði gerst ef mikið veikur sjúklingur hefði fests inni í lyftunni á jóladag? Hér þarf greinilega nýja skyndiúttekt landlæknisembættisins á ástandi lyftanna. Í leiðinni væri tilvalið að gera úttekt á myglu sem lifir góðu lífi á spítalanum – enda naumt skammtað til viðhalds í tillögum til fjárlaga.

Mynd af myglu á gangi Landspítala í Fossvogi, en myndin er tekin af nýlega af kollega mínum. Því miður eru mýmörg svona dæmi, bæði við Hrinbraut og í Fossvogi en einnig á Grensásdeild og Barnageðdeildinni.
Nýleg mynd úr Fossvoginum segir allt sem segja þarf, en í baksýn glittir í gámahúsnæði undir lækna og annað starfsfólk. Síðan fer “Monsún-tímabilið” að bresta á, en þegar snjóa leysir eftir miklar rigningar príða vatnsfötur gangana eins og nýleg mynd af geðdeildinni sýnir. Vatnsfötur á göngum hef ég séð á á hverjum einasta vetri þau 12 ár sem ég hef verið við störf á Landspítala. Því miður virðist afar takmarkaður vilji hjá ráðamönnum að “hífa spítalann upp á milli hæða” – líkt og gert var með biluðu lyftuna á jóladag.

Held að fyrirsögnin segi allt.
Sem er í algjörri andstöðu við kosningaloforð fyrir nýafstaðnar kosingar (sjá frétt mbl.is) Hvar er heilbrigðisráðherra og fyrrverandi heilbrigðisráðherrar sem þekkja vanda spítalans í þaula? Í felum? Þolinmæði sjúklinga og starfsfólks Landspítala er nefnilega á þrotum.



