Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Tónlistarmenn sem féllu frá árið 2016

$
0
0

01. Breski söngvarinn David Bowie lést í janúar, 69 ára að aldri. Bowie er einn áhrifamesti tónlistarmaður allra tíma en ferill hans spannaði rúmlega fjörutíu ár. Bowie skaut upp á stjörnuhiminninn árið 1972 með plötunni The Rise and fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars. -„The rest is history.“

leonard-2_cohen

02. Leonard Cohen, kanadíski tónlistarmaðurinn margverðlaunaði, lést í nóvember, 82 ára að aldri. Cohen var fæddur í Montreal og á löngum ferli samdi hann mörg minnisstæð og vinsæl lög á borð við Suzanne, So long Marianne, I’m Your Man og Hallelujah. Hann gaf út sína fjórtándu plötu í haust stuttu fyrir andlátið.

635887447644481100-xxx-glennfrey-glader-hp2a5017-v01-78965680

03. Glenn Frey, einn söngvara og gítarleikara Eagles lést í janúar, 67 ára gamall. Eagles var ein vinsælasta hljómsveit heims á áttunda áratugnum og eitt þekktasta lag þeirra er Hotel California.

paul-kantner-jefferson-starship-bw-billboard-650

04. Paul Kantner einn stofnenda og lagahöfunda hippahljómsveitarinnar Jefferson Airplane, lést í janúar eftir hjartaáfall. Hann var 74 ára.

_88655060_martin-studio-rex3

05. George Martin lést í mars, níræður að aldri. Martin var oft kallaður fimmti Bítillinn því hann var upptökustjóri á plötum þessarar vinsælustu hljómsveitar sögunnar.

prince_showclip_pic_042916_1280copy

06. Prince, bandaríski tónlistarmaðurinn, lést í apríl, 57 ára að aldri. Prince var bæði afkastamikill og áhrifamikill tónlistamaður. Hann gaf út alls 39 plötur, þar á meðal tvær á síðasta ári. Þekktasta verk hans er líklegast Purple Rain sem kom út árið 1984 ásamt samnefndri kvikmynd. Hann var margverðlaunaður fyrir tónlist sína og hlaut meðal annars Óskarsverðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni Purple Rain.

david-gest

07. David Gest útgefandi (Producer) lést í apríl 62 ára að aldri.

3908486738

08. Toots Thielemans, belgíski djassleikarinn, lést í ágúst 94 ára að aldri. Hann varð frægur fyrir munnhörpuleik sinn.

edda back

 

09. Edda Heiðrún Backman leik og söngkona lést 1. október, 58 ára að aldri.

dead-or-alive-you-spin-me-round

10. Pete Burns söngvari í hljómsveitinni Dead Or Alive lést 23. október, aðeins 57 ára að aldri.

p01bqr5s

11. Bobby Vee söngvarinn síkáti lést 24. október, 73 ára að aldri. Hann átti meðal annars smellinn; Take Good Care Of My Baby.

sharon-jones-press-2014-650

12. Soul og funk söngkonan Sharon Jones lést úr krabbameini 18. nóvember. Hún var sextug.

2887

13. Greg Lake söngvari og gítarleikari í Emerson, Lake & Palmer lést 7. desember, 69 ára að aldri. Greg gerði garðinn frægan með hljómsveitinni King Crimson og blómstraði þar og síðar með Emerson, Lake & Palmer. Sem lagahöfundur á hann ódauðleg listaverk eins og lagið „Lucky Man“ og „From the Beginning“.

elp-keith1

14. Keith Emerson hljómborðsleikari í Emerson, Lake & Palmer lést í mars síðastliðinn, 71 árs. Emerson, Lake & Palmer er ein merkasta hljómsveit síns tíma og gaf út merkar plötur eins og Trilogy og Pictures at an Exhibition. Keith Emerson var einn fremsti hljómborðsleikari heims og ruddi brautina fyrir nýungar í gerð hljóðgervla. Hann var hugmyndaríkur og uppátækjasamur frumkvöðull.

unknown

15. Leon Russell lést í nóvember að heimili sínu í Mt. Juliet í Tennessee. Hinn litríki Russel náði nokkrum vinsældum á áttunda áratugnum sem sólólistamaður en áhrif hans á aðra tónlistarmenn voru alltaf langt um meiri. Russell spilaði á hljómborð og píanó með hljómsveitinni The Wrecking Crew á sjöunda áratugnum. Russell varð 74 ára.

rick-parfitt

16. Rick Parfitt gítarleikari hljómsveitarinnar Status Quo, lést á sjúkrahúsi á Spáni 24. desember. Parfitt var 68 ára.

1337710_227409_alexandrovci_3

17. Þann 25. desember fórust 64 meðlimir Rauða kórs rússneska hersins (Alexandrov-karlakórinn) í flugslysi. Alexandrov-kórinn er einn þekktasti karlakór í heimi og kemur iðulega fram á stórviðburðum þegar Rússar vilja sýna sínar bestu hliðar. Kórinn er þannig nátengdur þeirri ímynd sem rússnesk yfirvöld vilja skapa út á við. Opinberlega er Alexandrov-kórinn sjálfur kór rússneska hersins. Kórfélagar syngja ávallt einkennisklæddir. Kórinn var stofnaður 1928 af Alexander Vasilievitsj Alexandrov sem samdi meðal annars þjóðsöng Sovétríkjanna og síðar Rússlands. Alexandrov-kórinn mun hafa verið á leið til rússneskrar herflugstöðvar í Latakia-héraði í Sýrland til að halda þar tónleika um hátíðarnar, líklega í tilefni af sigri Rússa og sýrlenska stjórnarhersins í átökunum um Aleppo-borg.

a4ab91479c151e596369fe49c69cc0ae

18. George Michael söngvari lést 25. desember, 53 ára að aldri. Michael hóf feril sinn með dúettinum Wham sem varð heimsfrægur á einni nóttu með laginu „Wake Me Up Before You Go Go“ og átti síðar farsælan sólóferil. Dánarorsök var hjartaáfall.

c585add4-c814-4f6c-a50a-ea5d7563229c_0

19. John Berry stofnandi hljómsveitarinnar the Beastie Boys, lést á árinu. Hann var 51 árs.

merle-haggard

20. Sveitasöngvarinn Merle Haggard lést 6. apríl, 79 ára að aldri. Meðal þekktra laga hans eru; „Okie From Muskogee“ og “Workin’ Man Blues” en lög hans sem náðu fyrsta sæti á sveitalistanum voru á fjórða tuginn. Ferill hans lá víðar því hann sat inni í hinu fræga San Quentin fangelsi í þrjú ár fyrir þjófnað.

24phifedawg-facebookjumbo-v2

21. Malik Taylor, sem var þekktari sem rapparinn Phife Dawg, lést í mars síðastliðinn 45 ára að aldri. Þekkt lög hans eru; „Scenario,“ „8 Million Stories,“ „Award Tour,“ og „Can I Kick It?“

Frank Sinatra Jr. Performs at KLAC's Mistletoe and Martinis Concert Event (Photo by Bryan Linden/WireImage)

22. Frank Sinatra, Jr., lést 16 mars, 72 ára. Sinatra átti langan og farsælan feril sem túlkandi laga föður síns. Hann ferðaðist víða með sýningu sína „Sinatra Sings Sinatra“. Þá lék hann líka í nokkrum sjónvarpsseríum eins og Family Guy og The Sopranos.

gty-joey-feek-cf_151214_16x9_992

23. Sveitasöngkonan Joey Feek lést í mars, fertug að aldri. Hún varð þekkt í bransanaum sem helmingurinn af dúóinu Joey og Rory, (eiginmanni sínum). Þau ferðuðust víða með hljómsveitinni Zac Brown Band og skemmtu. Þau voru tilnefnd til Grammy verðlauna fyrir lagið, „If I Needed You.“ Joey lést úr krabbameini.

Action Jackson / Action Jackson

24. Söngkonan, leikarinn og fyrirsætan Denise Matthews, betur þekkt sem Vanity, lést 16. febrúar síðastliðinn. Undir leiðsögn Prince stofnaði hún hljómeykið Vanity 6 og gaf út nokkrar plötur, meðal annars lagið „Nasty Girl“ sem náði talsverðum vinsældum. Dánarorsök Denise er ókunn.

maurice-white

25. Maurice White, stofnandi hljómsveitarinnar Earth, Wind & Fire, lést 4. febrúar 74 ára að aldri. Hann var söngvari, trommuleikari og stjórnandi Earth, Wind & Fire sem og lagahöfundur. Þessi sjö manna hljómsveit varð heimsfræg og seldi yfir 90 milljón plötur, fékk sjö Grammy verðlaun og sæti í Rock and Roll Hall of Fame.

rs-224724-gettyimages-104505230

26. Dale „Buffin“ Griffin trommari í hljómsveitinni Mott the Hoople lést í janúar 67 ára að aldri. Frægasta plata þeirra er All the Young Dudes sem kom út 1972 og var David Bowie upptökustjóri. Griffin var greindur með Alzheimer sjúkdóminn 2009.

maxresdefault

27. Gítarleikarinn Pete Huttlinger lést í janúar, 54 ára gamall. Hann er kunnastur fyrir gítarleik sinn með John Denver. Pete gaf út 15 sólóplötur á ferlinum.

screen-shot-2016-12-29-at-10-06-59

28. Leikkonan og söngkonan Debbie Reynolds lést 28. desember, 84 ára að aldri. Hún lést í Los Angeles aðeins sólarhring eftir að dóttir hennar Carrie Fisher, sem frægust er fyrir hlutverk sitt sem Leia prinsessa í Star Wars myndunum, lést. Debbie Reynolds var kannski frægust fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Singin’ in the Rain.

700-_music_01

29. Texasbúinn Guy Clark lést í maí 74 ára að aldri. Hann gerðist ungur farandsöngvari og varð þekktur í heimalandinu fyrir glúrna texta við góð lög sem urðu á sinn hátt sígild. Meðal laga hans má nefna lögin; „Desperados Waiting for a Train“ og „L.A Freeway.“ Hann fékk Grammy verlaunin fyrir síðustu plötu sína My Favorite Picture of You árið 2014. Guy Clark lést úr krabbameini.

cga0tq4viai_etj

30. Bernie Worrell var hljómborðsleikari í hljómsveitunum Parliament/Funkadelic og Talking Heads ásamt setu í Rock and Roll Hall of Fame. Bernie Worrell lést úr krabbameini í júní síðastliðinn. Hann varð 72 ára.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images