Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þrjár milljónir hafa safnast fyrir Færeyinga

$
0
0

Þrjár milljónir höfðu safnast fyrir Færeyinga á síðasta bankadegi 2016. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá hópnum sem að söfnuninni stendur. „Af þeim 481 sem hafa lagt söfnuninni lið eru níu minni fyrirtæki og félagasamtök. Innleggin eru á bilinu  500,- upp í 100.000,- krónur. Hæstu framlögin koma frá  einstaklingum.“ segir í tilkynningu hópsins.

Auglýsing

Þá kemur fram að söfnunin verður að minnsta kosti opin út vikuna en lokadagsetning hennar hefur enn ekki verið ákveðin. Petur Petersen, ræðismaður Færeyja á Íslandi, hefur lýst sig tilbúinn til að veita söfnunarfénu viðtöku. Hann mun svo afhenda það lögmanni Færeyja.

“Hugmyndin um söfnunina kom í kjölfar sinnuleysis íslenskra stjórnvalda gagnvart áskorun sem undirritaðar sendu á forseta Íslands og alþingismenn í nafni síðunnar: Færeyingar og Íslendingar eru  frændur. Áskorunin snerist um það að hvetja íslensku ríkisstjórnina til að styrkja „Færeyinga  vegna stórfellds eignatjóns sem þeir urðu fyrir í ofsaveðrinu sem gekk yfir Færeyjar nú yfir jólin“„

Kvennablaðið fjallaði áður um áskorun þeirra Addý Steinarr og Rakelar Sigurgeirsdóttur til íslenskra yfirvalda um fjárhagsstuðning til Færeyinga. „Við höfum verið í sambandi við færeyska ræðismanninn hér á landi sem mun veita því sem safnast viðtöku og afhenda það færeyska lögþinginu,“ segir í fréttatilkynningu söfnunarinnar.

Þá kemur fram að þótt tryggingar muni bæta mesta eignatjónið vegna veðursins komi fram í fréttum in.fo að eingöngu það sem er fast er tryggt. „Svo má vel hugsa sér að styrkja landssamband færeysku björgunarsveitanna sem mæddi mjög mikið á yfir jólahátíðina.“

Á myndinni hér að neðan koma reikningsupplýsingarnar fram. Söfnunin fer fram í gegnum kennitölu Rakelar. „Því miður fundum við enga aðra færa leið við stofnun þessa reiknings en að hafa hann á kennitölu annarrar undirritaðrar. Söfnunin heitir Færeyjarsöfnun16 og er það undirheiti reikningsins. Hann er læstur og verður ekki tekið út af honum nema með samþykki beggja og staðfestingu ræðismanns Færeyja um að hann taki við fénu og færi það færeyska lögþinginu,“ útskýra skipuleggjendur.

 

reikningur1

 

„Við undirritaðar skoruðum á íslensk stjórnvöld að bregðast við eignatjóninu sem Færeyingar urðu fyrir í jólaóveðrinu sem gekk yfir eyjarnar nú yfir jólahátíðina,“ sagði í tilkynningu frá þeim Addý og Rakel er þær hófu átakið og skoruðu á yfirvöld. Þær vilja að Íslendingar launi Færeyingum vinsemdina sem þeir hafa sýnt Íslendingum áratugum saman, með fjárhagsstuðningi vegna jólaóveðursins sem gekk yfir eyjarnar. Í þeim tilgangi hafa þær sent áskorun á forseta Íslands, ráðherra og þingmenn.

„Færeyingar hafa alltaf verið tilbúnir til að aðstoða Íslendinga á erfiðum tímum,“ segir á Facebook-síðunni Færeyingar og Íslendingar eru frændur þaðan sem áskorunin hefur verið rekin. „Í því sambandi er rétt að minnast fjársöfnunar sem þeir stóðu fyrir í Vestmannaeyjargosinu, rausnarlegs framlags þeirra til stuðnings þeim sem urðu fyrir tjóni í snjóflóðunum á Flateyri og í Súðavík og bróðurþelsins sem þeir sýndu íslensku þjóðinni í kjölfar hrunsins 2008,“

Auglýsing

Bréf þar sem áskoruninni var komið á framfæri var fyrst sent á forsetann og ríkisstjórnina en í framhaldinu á alla þingmenn. „Við undirritaðar efumst ekkert um að viðtakendur þessa bréfs hafi fylgst með fréttum af aftakaveðrinu, sem geisaði í Færeyjum frá Þorláksmessu fram á jóladag, og því eignatjóni sem það olli. Það er heldur ekki ólíklegt að það hafi verið hugsað fyrir einhverjum viðbrögðum af Íslands hálfu þar sem Færeyingar hafa alltaf reynst okkur Íslendingum vel á neyðarstundum,“ segir í bréfinu sem sent var á ráðamenn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images