Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Panamaskjölin í tætarann: Allir utan Pírata og Samfylkingar vilja ríkisstjórn með Bjarna

$
0
0

For­ystu­menn Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna hafa síðustu daga átt sam­töl um hvort flokk­ar þeirra geti sam­an verið val­kost­ur í stjórn­ar­sam­starfi við Sjálf­stæðis­flokk­inn. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Tíðindin þýða að einangrun Sjálfstæðisflokksins er rofin og nú vilja allir flokkar starfa með Sjálfstæðisflokknum, utan Pírata og Samfylkingar, þrátt fyrir að kosið hafi verið vegna spillingar sem afhjúpuð var í Panamaskjölunum.

Auglýsing

Panamaskjölin staðfestu að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var ásamt varaformanni flokksins Ólöfu Nordal að finna í skjölum lögfræðistofnunarinnar Mossack Fonseca. Þá staðfestu gögnin að Sjálfstæðisflokkurinn er því sem næst gegnumsýrður af flóttafólki á lágskattasvæðum en auk Bjarna og Ólöfu mátti meðal annars finna fjölskyldu og viðskiptafélaga Bjarna og fulltrúa flokksins í borgarstjórn.

„Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðsins hafa Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, for­sæt­is­ráðherra og formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Katrín Jak­obs­dótt­ir, formaður VG, farið yfir mál og sett punkta á blað, sem væru grund­völl­ur viðræðna. Sam­hljóm­ur þykir vera í það mörgu að hægt sé að stíga frek­ari skref. Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæðis­flokks­ins, mun kunn­ugt um þess­ar hug­mynd­ir,“ segir í blaðinu.

Auglýsing

Frétt Morgunblaðsins birtist samhliða því að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Björt framtíð hafa rætt saman. Fréttablaðið segir frá því í morgun að samkomulag hafi náðst um öll stærri mál. „Samkomulag hefur náðst milli Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar um öll þau stóru mál sem steyttu á skeri í síðustu viðræðum. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, segir nú aðeins eftir að setjast niður og skrifa stjórnarsáttmála og að það þyrfti ekki að taka meira en tvær vikur,“ segir í Fréttablaði dagsins í dag.

Auglýsing

Þá segir að samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun þjóðaratkvæðagreiðsla verða haldin á kjörtímabilinu um hvort hefja eigi að nýju viðræður við ESB. „Líkt og í stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar og VG árið 2009 verður ákvæði í stjórnarsáttmála um að skoðanir flokkanna sem mynda ríkisstjórn séu mismunandi, að þeir virði skoðanir hver annars og að ríkisstjórnarflokkunum verði í sjálfsvald sett hvernig þeir greiði atkvæði um þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB á kjörtímabilinu.“ Í sömu frétt segir að hlutfall aflaheimilda verði boðin upp árlega. „Þannig mun markaðurinn ákveða hvað samfélagið geti fengið fyrir aflaheimildir á markaði.“ Tollar á kjúklinga- og svínakjöt verða lækkaðir og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður endurskoðun búvörusamninga „tekin föstum tökum.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images