„Það bað þingið engin fötluð manneskja um að framlengja NPA innleiðingarverkefninu um ár,“ skrifar Freyja Haraldsdóttir. fyrrverandi varaþingkona Bjartrar framtíðar, á Facebook vegna vinnubragða þingmanna í málefnum fatlaðra fyrir jól. Þverpólitísk samstaða myndaðist á Alþingi um að fresta enn einu sinni lögfestingu Notendastýrðar persónulegrar aðstoðar eða NPA. Það tók aðeins nokkrar mínútur fyrir þingheim að fella á brott ákvæði þar sem ráðuneyti velferðarmála er skuldbundið til þess að leggja fram frumvarp um að notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) skuli lögfest sem eitt af meginformum þjónustu við fatlað fólk. Umræða í þinginu tók innan við tíu mínútur og þingmenn gátu sáttir pakkað saman fyrir jólafrí vissir um að þurfa ekki að mæta til vinnu vikuna milli jóla og nýárs.
Afleiðingarnar eru enn ein frestun á lögbindingu NPA-þjónustu. Árið 2015 var sams konar afgreiðsla keyrð í gegnum þingið með hraði en þá var krafan á ráðuneytið ekki afnumin eins og nú. „Í stað þess að framlengja það ákvæði um eitt ár er farin sú leið að fella þá skyldu algerlega niður. Slíkt frumvarp átti ráðherra velferðarmála að vera búin að skila af sér árið 2014, samkvæmt þágildandi bráðabirgðaákvæði. Í stað slíkrar lögbundinnar skyldu kemur fram að heimilt sé að framlengja samninga sem gerðir hafa verið árið 2016 til ársloka 2017,“ segir í yfirlýsingu Öryrkjabandalags Íslands vegna samþykktar Alþingis.
Freyja sat á þingi fyrir Bjarta framtíð en gagnrýnir nú fulltrúa flokksins harðlega. „Hvernig stendur á því að fólk, þ.m.t. samflokksfólk mitt, sem hefur gefið sig út fyrir það að styðja NPA og lögfestingu og veit hvaða mannréttindabrot felast í því að þetta sé ekki lögfest komi svona fram við fatlað fólk? Hvernig í ósköpunum eigum við að geta unnið með ykkur án tortryggni þegar við erum stungin svona í bakið?“
Björt Ólafsdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, bregst við athugasemdum Freyju, þakkar fyrir áður en hún tekst á við það verkefni að útskýra hvers vegna enginn fulltrúi flokksins gaf málinu svo mikið sem útskýringu á atkvæði sínu. „Lofðu mér að útskýra mína hlið. Þegar við komum að málum korter í jól og áramót. (þingið byrjaði 6. des.) er ekki hægt að segja að margir valkostir hafi legið fyrir okkur, a.m.k. ekki þeim þingmönnum sem komu óbreyttir að, í meiningunni ekki með aðgengi að fyrrverandi stjórnvöldum og núverandi starfsstjórn. Kostirnir voru þessir; framlengja eða fella niður. Ég veit fullvel að vinnubrögðin eru forkastanleg, aðdragandinn allt of stuttur og ömurlegt að leggja það á fólk að bíða í óvissu allt fram á Þorláksmessukvöld. Niðurstaðan af þessum tveimur kostum var þó hinn skárri, að samningarnir halda áfram út næsta ár. Ekki nógu góð heildarniðustaða. En að mínu viti betri en hinn kosturinn. Við í BF og reyndar aðrir stjórnarandstöðuflokkar líka höfum unnið að því hörðum höndum að lögfesta NPA til framtíðar. Við höfum hins vegar því miður ekki verið í ríkisstjórn sem er greinilega það sem til þarf. Vil bara segja; NPA er eitt megin samningsatriðið Freyja. Annars fer BF ekki í ríkisstjórn.“
Ljóst er að svar þingkonunnar er ekki til að sætta Freyju sem svarar um hæl. „Ok. En ég er samt eiginlega engu nær. Fyrir það fyrsta endaði óvissan ekki á Þorláksmessu heldur fór hún á nýtt og hærra level. Ákvæði um lögfestingu datt út úr lögunum. Í öðru lagi hvers vegna varð að gera þetta núna en ekki eftir áramót? Við vorum flest búin að gera samninga hvort sem er fyrir næsta ár. Hver bað um þetta? Í þriðja lagi, fyrst það er allt svolítið í rassgati með þetta af hverju færðu þið ekki lögfestingarákvæðið fram um einhverja mánuði í stað þess að taka það út? Í fjórða lagi af hverju vissi fatlað fólk ekki af þessu plani? Í fimmta lagi af hverju tók kortér að ákveða þetta og engin kvað sér hljóðs um hve mikið fokk það er að fjarlægja lögfestinguna þegar hún er búin að vera í lögum í fimm ár?“
Í umræðunni er vakin athygli á því að að NPA virðist ekki stórt mál fyrir flokkinn fyrst enginn þingmaður hvað sér hljóðs og gerði grein fyrir atkvæði sínu. „Ef þingmenn hafa góða og gilda ástæðu fyrir þessum ósköpum hvernig væri þá að útskýra hana fyrir okkur sem sum hver fengum næstum því og jafnvel bara eitt royal kvíðakast á Þorláksmessu? Var það til of mikils ætlast? Eða eigum við að lesa hugsanir?“ skrifar Freyja.
Freyja segir nokkra hluti æra sig varðandi meðhöndlun þingsins á málefnum fatlaðar varðandi NPA lögfestingu. Fyrir það fyrsta hafi fatlaðir ekki óskað eftir framleiðingu á innleiðingaverkefninu. Þá sé auðvitað ekki þannig að engin leið hefði verið að gera samninga við sveitarfélögin án þess að breyta lögunum. Hún spyr um leið hvers vegna lögfestingunni var ekki frestað um tvo mánuði fremur en að fella ákvæðið úr gildi. Þá segir hún óeðlilegt og bannað að gera stóra breytingu á málefnum fatlaðra án samráðs við fatlaða og bendir eins og áður segir á að enginn hafi séð ástæðu til að gera grein fyrir afstöðu sinni. Málið hafi verið keyrt í gegn á nokkrum mínútum.
Þvert á loforð gefin nokkrum dögum fyrir kjördag
Öryrkjabandalag Íslands gekk á fulltrúa allra flokka þann 25. október síðastliðinn og spurði um afstöðu þeirra til lögfestingar NPA. Fulltrúar allra flokka sögðu það á stefnuskrá síns framboðs. Þá voru fulltrúar allra flokka spurðir hvenær búast mætti við lögfestingu. Þá stóð ekki á yfirlýsingum um mikilvægi málefnisins og nauðsyn þess að bregðast fljótt við.
Í myndböndum sem ÖBÍ gerði fyrir kosningar og deildi á Youtube eru fulltrúar allra flokka spurðir út í stöðu manns sem býr ekki við næga aðstoð og má því búa við að geta ekki tekið þátt í samfélaginu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins sagði við ÖBÍ að hann vilji „að allir Íslendingar eigi að geta lifað lífinu á sínum forsendum“ Um löggildingu NPA sagði hann: „Við höfum verið hlynnt NPA. Ég styð að við gerum slíka breytingu.“ – Hvenær á kjörtímabilinu verður farið í þá vinnu? „Ég er nú vongóður um að það sé hægt að gera það á næsta kjörtímabili svona í beinu framhaldi á yfirfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga og öllum þeim undirbúningi sem hefur átt sér stað á undanförnum árum til þess að innleiða NPA að þá séum við að færast að þeim tímapunkti að það sé hægt að færa það í lög. Mér finnst ekki ólíklegt að það sé hægt að gera það á næsta kjörtímabili. Ég er bara mjög vongóður um það.“ Svar Bjarna var með hófsamasta móti. Sömu sögu má segja um fulltrúa Pírata en Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona flokksins, treysti sér ekki til að setja dagamörk. „Þetta er vissulega mikilvægt mál og okkar stefna er að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks eins fljótt og auðið er.“
Strax teygjanlegt hugtak?
„Við í Bjartri framtíð teljum brýnt að það sé gengið að því verki strax,“ sagði Eva Einarsdóttir, frambjóðandi Bjartrar framtíðar, örfáum dögum fyrir kosningar. „Það er verið að ljúka núna við tilraunaverkefni sem hefur verið í gangi. Ráðherra hefur ekki fengið tillögurnar inn á borð til sín en um leið og það liggur fyrir þá þarf að drífa í þessu,“ sagði Karl Garðarsson, frambjóðandi Framsóknarflokksins, við sömu spurningu um hversu mikið lægi á að lögfesta NPA. „NPA kemur verulega til móts við mikilvægar þarfir einstaklinga og við sjáum fyrir okkur að það eigi að ganga í það að lögbinda NPA strax. Það hefur verið tilraunaverkefni í gangi og það hefur staðið til að gera það og að okkar mati er ekkert því til fyrirstöðu að ganga í það hreint,“ sagði Páll Rafnar Þorsteinsson, fulltrúi Viðreisnar, við ÖBÍ. – Þá er svarið við þeirri spurningu hvenær á kjörtímabilinu það verður gengið í þetta, strax eða á fyrri hluta kjörtímabilsins? „Já.“ Sömu sögu má segja um Samfylkinguna en Helgi Hjörvar, fyrrverandi þingmaður flokksins, svaraði fyrir hennar hönd. Hann sagði mikilvægt að hefja vinnuna strax en hvort hún yrði lögfest að vori eða hausti skipti ekki höfuðmáli heldur gæði frumvarpsins. Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona VG, sagði „við þurfum að gera notendastýrða persónulega aðstoð að raunverulegu vali fyrir fólk og festa þessa tegund af þjónustu í sessi með lögum.“Steinunn sagði enga dagsetningu á málinu: „Þetta er aftur eitthvað sem við höfum ekki sett dagsetningu á. Ég held að við séum komin mjög langt í undirbúningsvinnu þannig að þetta snýst í rauninni um pólitískan vilja og eins og ég sagði áðan þá leggjum við mikla áherslu á málefni lífeyrisþega þannig að þetta hlýtur að vera eitt af því sem þarf að gera snemma.“
Hratt og örugglega
Þrátt fyrir að áralangar tafir og miklar yfirlýsingar fyrir kosningar sáu þingmenn enga ástæðu til að stíga í pontu við afgreiðslu málsins og útskýra afstöðu sína til frestunar. Öll áhersla var lögð á að afgreiða málið með hraði. Það er meðal þess sem Öryrkjabandalag Íslands gagnrýnir. „Því miður var sú ákvörðun tekin af Alþingismönnum að standa með kerfinu en ekki fólkinu. Það veldur þar með ótrúlegum vonbrigðum að nýtt Alþingi hafi án umræðu samþykkt frumvarpið samhljóða og án þess að hafa samráð við fatlað fólk.“ Sem sagt til þess að þingmenn þurfi ekki að mæta aftur til vinnu milli jóla og nýárs sameinuðust þingmenn allra flokka um að hraða frumvarpi í gegn án umræðu og án þess að hagsmunaaðilum gæfist tími til þess að gera athugasemdir eða senda inn umsögn. Slíkt er almennt talið eitt lykilatriði lýðræðislegrar umfjöllunar að almenningi, félagasamtökum og hagsmunaaðilum sé gefinn kostur á að skila áliti til Alþingis um málefni sem þau varða.
Klappaði sér á bakið þrátt fyrir lágmarksframlag
Athygli vekur að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, gekk svo langt að klappa sjálfri sér á bakið fyrir vinnuframlagið með Twitter-færslu. „Ég var rétt í þessu að samþykkja bráðabirgða framlengingu á NPA samningum @Althingi. Mikilvægt er að lögfesta þjónustuformið 2017,“ skrifar þingkonan unga og fær nokkuð lof fyrir. Engin merki eru þess að Áslaug Arna hafi spilað nokkra rullu aðra en að greiða atkvæði við samþykkt málsins líkt og allir þingmenn. Hún gerði ekki grein fyrir atkvæði sínu, áréttaði ekki á þingi nauðsyn þess að vinna í lögfestingu á næsta ári né situr hún í efnahags- og viðskiptanefnd þaðan sem frumvarpið kemur. Framlag þingkonunnar til málsins umfram það að greiða atkvæði er því að skrifa um það á Twitter, mínútu eftir að hafa klárað fyrstu umræðu um málið. Þess skal getið að frumvörp krefjast þriggja umræða til að teljast samþykkt.
Ég var rétt í þessu að samþykkja bráðabirgða framlengingu á NPA samningum @Althingi. Mikilvægt er að lögfesta þjónustuformið 2017.
— Áslaug Arna (@aslaugarna) December 21, 2016
Pírataþingmaður áréttaði að vinnu væri ekki lokið
Þingkona Pírata Þórhildur Sunna er undantekning á áhugaleysi þingmanna. Hún ein tjáði sér hljóðs í þriðju umræðu og gerði grein fyrir atkvæði sínu. Þar fagnaði hún framlengingunni en sagði mikið verk framundan við lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Samning sem Íslendingar samþykktu formlega árið 2007 en hafa enn ekki lögfest. „Ég vil árétta að þetta er ekki nóg til þess að við lögfestum samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem að við skrifuðum undir 2007, fullgiltum ekki fyrr en á þessu ári og eigum enn mjög langt í land með að gera að lögum hér á landi. Ég vona að þetta verði skref í rétta átt.“



