Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir við Morgunblaðið að Sjálfstæðisflokkurinn ætli hvorki að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB né ganga til aðildarviðræðna við sambandið. Þetta er þvert á frétt Fréttablaðsins í gær þar sem var haldið fram að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin á kjörtímabilinu. „Hann [Sjálfstæðisflokkurinn] mun halda sínum sjónarmiðum á lofti. Það þýðir t.d. að við erum ekki að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið og teljum að hagsmunum landsins sé best borgið utan Evrópusambandsins,“ segir Bjarni við Morgunblaðið.
Morgunblaðið spurði Bjarna hvort til greina kæmi að Sjálfstæðisflokkurinn setti Evrópusambandsmál á dagskrá þingsins eða tæki þátt í því til að mynda með þjóðaratkvæðagreiðslu, í ljósi stefnu sinnar, sagði Bjarni: „Það er ekki okkar stefna að efna til slíkrar þjóðaratkvæðagreiðslu og við höfum ekki verið til samninga um slíkt.“ Inntur frekar eftir því hvort málið yrði hugsanlega tekið fyrir á Alþingi sagði hann: „Það er auðvitað einhver veruleiki sem allir sjá, að slík mál geta komið fram á þinginu og það er ekki eitthvað sem einstaka þingflokkar geta komið í veg fyrir. Og það væri óskynsamlegt.“
Spurður hvernig Sjálfstæðisflokkurinn brygðist við ef tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um umsókn að Evrópusambandinu kæmi fram í þinginu og yrði samþykkt sagðist Bjarni ekki geta tjáð sig um það en ítrekaði að Sjálfstæðisflokkurinn myndi ekki standa að slíku umsóknarferli. „Það vona ég að komi engum á óvart.“
Formlegar viðræður Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hófust í gær með fundi formanna flokkanna auk Bjartrar Ólafsdóttur, þingmanns Bjartrar framtíðar, og Jónu Sólveigar Elínardóttur, varaformanns Viðreisnar. Flokkarnir höfðu óformlega rætt saman milli jóla og nýárs.
Þá greinir Morgunblaðið einnig frá því að Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telji útspil VG og Framsóknarflokksins, en flokkarnir vilja mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, koma of seint. „Ég trúi því ekki að menn láti þetta trufla sig ef þeir eru á annað borð komnir í alvöru viðræður,“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, við Morgunblaðið um málið.





