Kaffi er undirstaða dagsins fyrir langflesta landsmenn. Hvort sem það er ískaffi á sólríkum sumardegi eða ljúfur latte í skammdeginu þá er kaffi órjúfanlegur hluti lífs flestra. Þegar gestur kemur við í heimsókn, þegar halda á veislu eða þegar maður rekst óvænt á gamlan vin þá er kaffi yfirleitt fyrsta mál á dagskrá. Margir treysta á Te & Kaffi fyrir uppáhellinguna sína sem og kaffibolla til að grípa með sér á ferðinni. Te & Kaffi býður upp á svo margt fleira heldur en daglega koffínskammtinn sem svo margir treysta á. Starfsfólk þeirra býr einnig yfir hafsjó af vitneskju um allt sem viðkemur kaffigerð og tedúlleríi og bjóða einmitt upp á námskeið fyrir fróðleiksfúsa.
Að strengja áramótaheit að læra eitthvað nýtt í hverjum mánuði er sniðug hugmynd. Te & Kaffi eru með námskeið sem kenna listina við að hella upp á hinn fullkomna bolla við hvert tækifæri.
NÆSTA DAGSETNING: 17. JANÚAR 2017 KL 20:00
Almennur inngangur um kaffi: Í þessu námskeiði er farið yfir grundvallaratriðin í kaffigerð um leið og það verður stiklað á stóru um hvaðan kaffi kemur, hvernig það er verkað frá uppskeru og alveg þar til það er lagað. Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem hefur áhuga á mismunandi aðferðum við að gera kaffi og/eða er einfaldlega áhugasamt um kaffi sem slíkt. Kaffi frá ólíkum stöðum í heiminum verður smakkað og kennt hvernig er best að hella upp á gamla mátann.
Að hella upp á kaffi er einmitt kunnátta sem gestgjafar meta dýrum dómum. Undanfarið hefur úrvalið af aðferðum við að gera kaffi aukist til muna og erfitt fyrir fólk að skilja nákvæmlega hvenær er staður og stund til að hella upp á Chemex og hvenær hentar að laga Aeropress eða pressukönnu.
“Grasafræðingar halda því fram að kaffi komi upprunalega frá Eþíópíu og að þaðan hafi það breiðst út um heiminn. Í mörgum þjóðsögum og goðsögnum kemur fram að byrjað var að neyta kaffis sem matar en ekki sem drykkjar. Það var ekki fyrr en Arabar byrjuðu að sjóða hrá kaffiber að kaffi var notað sem heitur drykkur.“
Námskeiðið er haldið í kennslurými Te & Kaffi sem er á Aðalstræti 9. Þátttakendur fá tækifæri til að kaupa búnað og aukahluti á 15% afslætti á meðan námskeiðið stendur yfir og auk þess verða allir leystir út með gjöfum.
Verðið er 7.900 kr. og næsta námskeið verður haldið 17. janúar 2017. Hægt er að bóka pláss hérna.
Te námskeið: Ítarlegur og skemmtilegur fyrirlestur um ræktun, vinnslu og bruggun á te. Eftir fyrirlesturinn er smökkun á alls kyns tetegundum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Te á sér mjög langa sögu og hefur verið til sem drykkur í tæplega 5000 ár. Ein vinsæl þjóðsaga um uppruna tesins fjallar um keisara í Kína sem kallaði sig Wan Tu. Þekkt bók skáldsins Lu Yus, Tai Ching, fjallar um Wan Tu og þau áhrif sem te hafði á líf hans. Wan Tu var illur og grimmur harðstjóri sem var steypt af stóli af einum ráðamanna sinna og hrakinn á brott til afskekkts staðar í Kína. Dag einn sat hann í skugganum af stórum runna og hugleiddi hvernig hann gæti náð fram hefndum. Vegna fátæktar sinnar þurfti hann að sætta sig við að drekka einungis vatn. Þar sem Wan Tu sat í þungum þönkum að sjóða vatn, féll lauf af runnanum ofan við höfuð hans, ofan í pottinn. Wan Tu komst að því að útkoman var bragðgóður drykkur sem hafði róandi áhrif. Teið hreinsaði hugann á svo áhrifaríkan hátt að hann sat undir runnanum næstu sjö árin, drakk te, iðraðist gjörða sinna sem harðstjóri og hugsaði um hvernig hann gæti bætt það upp.
Verðið er 3.900 kr og næsta námskeið verður haldið 7. febrúar 2017. Hægt er að panta pláss hérna.
Espresso námskeið: Þetta er námskeið fyrir kröfuhörðustu kaffiunnendurna sem vilja geta gert hinn fullkomna espresso heima hjá sér. Farið verður til að mynda yfir vigtun, mölun og skömmtun, og mikilvægi þess að þrífa vélbúnaðinn.
Verðið er 14.900 kr og næsta námskeið verður haldið 7. mars 2017. Hægt er að bóka pláss hérna.
Námskeið í mjólkurlist: Hér verður farið yfir undirstöðuatriðin í mjólkurlist, freyðingu á mjólk, halla á könnu og fleira til að geta gert fín munstur í bollann. Þetta námskeið má hugsa sem framhaldsnámskeið við espresso námskeiðið en það er vel hægt að taka það eitt og sér.
Verðið er 5.900 kr og næsta námskeið verður haldið 4. apríl 2017. Hægt er að bóka pláss hérna.
Allir þátttakendur námskeiðanna verða leystir út með gjöf.
Nánari upplýsingar veitir fræðslustjóri Te & Kaffi – Tumi Ferrer (tumi@teogkaffi.is)
—
Umfjöllun unnin í samstarfi við: Te & Kaffi











