Áskorun frá Amnesty International:
Börn í Jemen alast upp í landi sem hefur verið lagt í rúst vegna langra stríðsátaka. Borgarastyrjöldin sem hófst árið 2011 en náði hámæli í fyrra, hefur aukið enn frekar á hörmungarnar.
Bresk og bandarísk stjórnvöld eiga stóran þátt í því að réttur barna til öryggis og menntunar í Jemen er þverbrotinn með því að sjá hernaðarbandalagi undir stjórn Sádí-Arabíu fyrir vopnum síðastu nítján mánuði.
Sprengjum, orrustuþotum og stríðsþyrlum frá Bretlandi og Bandaríkjunum er beitt til að myrða óbreytta borgara í Jemen og sprengja opinberar byggingar í loft upp, samanber spítala og skóla.
Smelltu hérna og krefðu bresk og bandarísk stjórnvöld um að stöðva tafarlaust vopnaflutning til stríðandi fylkinga í Jemen, styðja við óháða alþjóðlega leið til að rannsaka staðhæfingar um brot á alþjóðalögum stríðandi fylkinga og tryggja að hinir ábyrgu sóttir til saka.
Eyðilegging, ótti og þjáningar eru hluti af daglegu lífi borgara í Jemen. Börn eru hvergi óhult en þau telja til einn þriðja látinna í landinu frá því að hernaðarbandalag Sádí-Arabíu hóf árásir í Jemen. Samkvæmt upplýsingum Sameinuðu þjóðanna hafa a.m.k. 10.000 íbúar Jemen látið lífið frá því að hernaðarbandalagi Sádí-Arabíu var komið á laggirnar, flestir þeirra er börn.



