Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Heimsókn á vefsíður Tryggingastofnunar

$
0
0

Jón Örn Marinósson deildi á Facebook og gaf okkur leyfi til birtingar hér:

Ég bjó mig vel undir að fara inn á vefsíður Tryggingastofnunar til að kynna mér frá fyrstu hendi langþráðar umbætur á kjörum eldri borgara á Íslandi. Ég tók inn 50 mg af betablokkara, 100 mg af angíótensín II blokkara, 25 mg af hýdróklórtíazíði og eina töflu af fjölvítamíni. Ég dró djúpt andann. Svo fór ég inn á vefsíður Tryggingastofnunar ríkisins.

Ég var fullkomlega rólegur. Ég las tölur og útskýringar af stakri yfirvegun. Hjartsláttur var reglulegur. Ég fann hvorki til „geðbilunar“ né áhrifa frá „öfundargeni“. Ég klökknaði fyrst eilítið, fann fyrir tárum í auga eins mér er hætt við þegar ég hlusta á tónlist sem hrífur mig. Síðan hresstist ég allur. Þegar ég var kominn í kafla um eitthvað sem heitir frítekjumark fór ég svo að hlæja.

Auglýsing

Ég hló viðstöðulaust. Mig langaði ekki til að hlæja en ég hafði enga stjórn á þessu. Yfir kaflanum um einhverja íslenska uppfinningu sem heitir heimilisuppbót var þetta orðið svo slæmt að mér lá við köfnun af hlátri. Þetta var tryllingslegur hlátur, hlátur eins og algengt er að láta ófreskju í hryllingsmynd reka upp í þann mund sem hún nálgast í nærmynd til þess að bíta fórnarlambið á háls. Mér leist ekki á blikuna. Ég vildi ekki gera starfandi fjármálaráðherra þann óleik að verða „geðbilaður“ og síst af öllu þegar styttist í að hann verði forsætisráðherra.

Ég fálmaði eftir músinni og skráði mig út af vefsíðum Tryggingastofnunar ríkisins. Nú er ég orðinn góður aftur. Ég er hættur að hlæja. Ég er farinn út að leita mér að „svartri vinnu“.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images