Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Formaður Stúdentaráðs kallar eftir skólabúningum og eftirseturefsingum í nafni frjálslyndis

$
0
0
kristofer

Upplýsingar um pistlahöfund Róms. Skjáskot af romur.is

„Pældu aðeins í því, hvað gerist ef þú mætir of seint? Er tekið hart á því á þínum vinnustað eða í skóla barnanna þinna, eða er það kannski bara orðið samfélagslega viðurkennt?“ skrifar Kristófer Már Maronsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, á vefinn Rómur.is. Kristófer gerir agaleysi Íslendinga að umræðu á hinum sjálfskipaða umræðuvettvangi frjálsynds ungs fólks og virðist telja að skortur á refsingum í skólum og valfrelsi nemenda til klæðnðaðar sé rót þess vanda. „Eftir því sem ég best veit tíðkast ekki á Íslandi að börn séu sett í eftirsetu (e. detention) í grunnskólum mæti þau of seint í tíma. Eftirseta er ein algengasta refsing við óæskilegri hegðun nemenda í Bandaríkjunum, Bretlandi, Ástralíu, Kanada og Singapúr, ásamt mörgum öðrum löndum. Þessi refsing byggir ekki á hreinni illsku, þvert á móti er tilgangurinn að hjálpa börnum að læra að það borgar sig að vera stundvís. Af hverju að taka áhættuna á að mæta fimm mínútum of seint ef það getur kostað klukkutíma í eftirsetu aukalega eftir skóla?“

Auglýsing

Vefurinn Rómur.is er að nafninu til vefur fyrir „ungt frjálslynt fólk“ til að ræða hugmyndir sínar. „Stefna Róms er sú að hafa fagmennsku að leiðarljósi og leggja frjálslynd gildi til umræðunnar í vel rökstuddum greinum.“ Þrátt fyrir sjálfskipað frjálslyndi hefur Rómur gjarnan vakið athygli fyrir fremur íhaldssamar hugmyndir um samfélagsgerð og aðferðir til að mennta lýðinn. Í ágúst vakti miðillinn athygli vegna hugmynda pistlahöfundar um að harðindin hefðu gefið íslensku þjóðinni „hraust gen“,„sterkbyggða líkama“ og „hnífbeitt hugarfar“. Ragnheiður Björk Halldórsdóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í Stúdentaráði, skrifaði þá að „að Íslendingar séu mjög sterkt dæmi um það hvernig þróunarkenning Darwins virkar.“

Auglýsing

Börnum ekki refsað nóg í skólum

Kristófer talar ekki aðeins fyrir „eftirsetu“ í nafni frjálsræðis heldur fer hann yfir kosti skólabúninga. „Nemendum er skylt að ganga í skólabúning fyrstu tíu ár skólagöngunnar í flestum skólum Ástralíu, en þar er skólastigum alla jafna skipt í fyrsta til sjötta bekk og sjöunda til tólfta bekk, að því loknu tekur við háskólanám ef slíkt er á dagskrá. Það var þó þannig að í ellefta og tólfta bekk gátu nemendur valið sér klæðnað alveg sjálf,“ skrifar hann og bendir á að það goða uppeldi sem börnin í Ástralíu fái þegar kemur að klæðnaði skili sér því þrátt fyrir valfrelsið „mátti varla sjá íþróttabuxur og hettupeysu því nemendur höfðu vanist því að klæða sig snyrtilega frá og með 7. bekk og sá ávani varð meginreglan þegar kom að skólaklæðnaði. En það eru ekki bara skyrta, buxur og svartir skór sem er hluti af skólabúningnum, íþróttafötin voru það líka.“

Ekki forræðishyggja

„Nú þykir mörgum það eflaust full mikil forræðishyggja að börnin þurfi sérstök íþróttaföt. Fyrir það fyrsta þá getur þú ekki sýnt öllum vinum þínum nýju Tim Cahill treyjuna sem þú fékkst í jólagjöf, en öll vorum við í gulum bol og dökkbláum stuttbuxum svo metingurinn var úr sögunni. Þegar kom að því að skipta í lið, þá þurfti enginn vesti heldur bolnum einfaldlega snúið við og úr varð dökkblár bolur. Eðli málsins samkvæmt hef ég verið stuðningsmaður skólabúninga eftir þessa reynslu, en ég tel að það stuðli að auknum aga, virðingu og vellíðan barna í skólum,“ skrifar Kristófer.

Leyfi til „opna á sér kjaftinn“

„Það sem mér þótti einna merkilegast er hversu kurteisir nemendur voru og hversu mikla virðingu þeir báru hverjir fyrir öðrum og kennaranum, gjörólíkt því sem ég kynntist hér á Íslandi. Það opnaði ekki nokkur einasti maður munninn án þess að hafa rétt upp hönd og fengið tilskilið leyfi frá Miss MacDonald til þess að opna á sér kjaftinn. Ég vildi óska þess að ég gæti lýst viðurlögunum, en það kom bara ekki til þess að það þyrfti að taka á þessu. Þetta var lærdómsríkt ferli fyrir unga Íslendinginn, sem var vanur því að mæta í íþróttafötum í skólann þar sem allir gripu fram í fyrir hverjum öðrum sem varð til þess að þeir málglöðustu töluðu mest en feimnari aðilar drógu sig í hlé.“

Eftirseta og skólabúningar til aukinnar stundvísi

„Það er þó eitthvað skrítið við hversu dónaleg og agalaus Íslendingar eru oft á tíðum og er undirritaður þar engin undantekning. Ég stend mig oft að því að grípa fram í fyrir fólki og mæta seint en viðurlögin eru yfirleitt engin nema sár á eigin samvisku og einstaka illkvittið augnaráð. Þetta virðist vera einhverskonar samþykkt hegðun sem fer þó í taugarnar á sjálfum mér og sennilega fleirum. Þetta kristallast út um allt í samfélaginu og ég tel að ein leið til þess að takast á við vandamálið til lengri tíma sé að kenna börnum í grunnskóla hvað agi, virðing og stundvísi skipta miklu máli. Ein af áhrifaríkustu leiðunum tel ég vera eftirsetu og skólabúninga. Það er ekki þannig að ég krefjist þess að allir skólar taki upp eftirsetu og skólabúninga, en ég hef áhyggjur af framtíðarkynslóðum og tel ég að skólabúningar og eftirseta gætu aukið aga komandi kynslóða, öllu samfélaginu til hagsbóta.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images