Washington Post fjallar um nýja ríkistjórn Íslendinga í dag og bendir á þá furðulegu niðurstöðu að niðurstaða kosninga sem boðað var til vegna heimsmets ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í ráðherrum í skattaskjóli hafi orðið til þess að skipta út einum forsætisráðherra í Panamaskjölunum fyrir annan forsætisráðherra í Panamaskjölunum.
Níu mánuðum eftir uppljóstranir Panamaskjalanna og tveimur mánuðum eftir kosningar hefur ný ríkisstjórn verið mynduð. „Ísland hefur loksins lokið því að skipta út Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Nema að þrátt fyrir reiði almennings og mótmæli í apríl, þá tekur við ráðherra sem var líka að finna í Panamaskjölunum,“ segir Washington Post.
Orðspor Íslands er undir
Forsætisráðherra er tengdur aflandsfélagi og hélt því leyndu. Orðspor Íslands er undir. Það er óhugsandi að Forsætisráðherra sé stætt.
— Ottarr Proppe (@OttarrProppe) April 3, 2016
Óttar Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, sagði í apríl það „óhugsandi að forsætisráðherra sé stætt“ enda væri „orðspor Íslands“ undir. Nú ber Óttarr ábyrgð á því að í forsætisráðherrastól sé Bjarni Benediktsson, eigandi Falson & co. sem finna mátti í Panamaskjölunum. Maðurinn að baki Vafning og fjármálaráðherrann sem reyndi ítrekað að hafa áhrif á kaup skattstjóra á gögnum um eignir Íslendinga erlendis. Þá er Bjarni maðurinn sem leyndi skýrslu um tekjutap samfélagsins vegna skattaskjóla fyrir kjósendum fram yfir kosningar.
Óttarr hefur sagt að „grundvallarmunur“ sé á máli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar þar sem Bjarni hafi reynt að útskýra sína hlið. Það hefur þá væntanlega farið framhjá Óttarri að Sigmundur Davíð hefur ítrekað birt gögn, ritað pistla, farið í viðtöl og sett stöðufærslur á Facebook. Það hefur ekki verið nóg fyrir almenning enda snýst málið um þá siðferðislínu að kjörnir fulltrúar taki ekki þátt í iðnaði leyndar, skattaundanskota og regluleysis.



