Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ósk um jákvæða lífsorku og samkennd á nýju ári

$
0
0

Erna Héðinsdóttir skrifar:

Ég á mér ósk. Ósk um að lifa í veröld þar sem samkennd og jákvæðni ýta undir lífsorkuna mína. Þar sem ég get nært, lært um og eflt lífsorkuna mína. Samfélag þar sem ég hef tækifæri og stuðning til að verða besta útgáfan af sjálfri mér og finna að með tilvist minni geri ég öðrum kleift að vera besta útgáfan af sér.

Ég hef fundið fræ, fræ sem getur orðið að þessari veröld ef hlúð er að því og því leyft að vaxa og dafna. Fræið mitt er fólkið sem ég hef verið svo lánsöm að kynnast á lífsleiðinni og ekki hvað síst síðustu mánuði þegar ég fór að opna markvisst fyrir leiðir að sjálfsþroska og sjálfsþekkingu. Eitt af því sem ég gerði var að fara til markþjálfa og í framhaldi af því ákvað ég að læra þessa samtalsaðferð sjálf. Það samfélag sem tók á móti mér þar er sýnishorn af því samfélagi sem mig langar að búa í, samfélagi uppbyggilegs hugarfars, hvatningar og samkenndar. Þar fann ég lífsorkuna mína leysast úr læðingi og hún fékk að vaxa og dafna.

68adbc54-d4e0-4f5e-837a-7d2249911187home

Í gegnum lífið og í kringum markþjálfasamfélagið kynntist ég líka fleira fólki sem notar aðrar aðferðir til að bæta samfélagið og búa til jákvæða orku í kringum okkur. Fólki sem hjálpar öðru fólki að vaxa og dafna, finna hugarró, vellíðan og lífskraft. Og hversu dásamlegt væri það ef að allir þeir sem umhugað er um jákvæða lífsorku okkar allra og samkennd í samfélaginu kæmu saman og sameinuðu krafta sína og orku? Hversu stórkostleg upplifun væri það?

Og tækifærið barst upp í hendurnar á mér þegar ég leyfði mér að opna faðminn fyrir því sem veröldin vildi færa mér. Mér bauðst að taka þátt í að skapa viðburð, samfélagsverkefni þar sem margir af okkar fremstu einstaklingum í orkuvinnu munu koma saman. Þar sem þeir, með hjálp almennings mun magna upp lífsorkuna okkar og kærleiksríka samkennd. Viðburð þar sem hjörtu okkar allra geta slegið í takt í einum allsherjar samhljómi.

samhljomur-banner

Hugmyndin að þessum viðburði fæddist í spjalli tveggja kvenna, þeirra Hjördísar Árnadóttur og Matildu Gregersdóttur. Hugmyndin þróaðist svo með frekar þegar fleira fólk sem deilir svipaðir hugsjón tók sig saman og lét hugmyndina verða að veruleika. Þær fengu í lið með sér ótal kennara og leiðbeinendur á sviði lífsorku sem ætla að deila visku sinni og reynslu og taka þátt í að skapa viðburðinn. Á svæðinu verða 10 gong hljóðfæri, 20 sjamantrommur og þátttakendur verða virkir meðal annars í hreyfingu og tónheilun.

206f7d76-1ec9-440f-ad02-8a35af1b5fa7home

Ég óska þess að þið gefið ykkur tækifæri til að upplifa þetta með mér. Gefið mér og okkur öllum þá gjöf að skapa risastóra jákvæða upplifun þar sem við hjálpumst öll að við að sýna kærleika og magna upp jákvæða orku. Við þurfum á þinni þátttöku að halda til að magna upp þessa dásamlegu lífsorku sem í okkur býr og senda hana út í umhverfið.

Kærleikskveðja,
Erna Héðinsdóttir

Frekari upplýsingar má finna á:
http://www.evolvia.is/samhljomur-orkustofa og á Facebook hér: https://www.facebook.com/events/1344951492205909/?active_tab=about


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images