Barack Obama fráfarandi Bandaríkjaforseti hefur gert það að einu af sínum síðustu verkum að stytta fangelsisdóm uppljóstrarans Chelsea Manning. Manning sem er 29 ára losnar því úr fangelsi eftir 5 mánuði eða þann 17 maí næstkomandi í stað þess að sitja inni til ársins 2045.
Uppljóstrun Manning er talin vera stærsti gagnaleki í sögu Bandaríkjanna og var dómur hennar upphaflega 35 ár.






