Staðfestingarhlutfall úrskurða kærunefndarinnar útlendingamála í Dyflinnarmálum hækkaði úr 73% í 82% á milli ára en í öðrum hælismálum fór þetta hlutfall úr 63% í 80%. Með staðfestingarhlutfalli er átt við það hlutfall af úrskurðum kærunefndar þar sem ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar að öllu leyti.
Meðalmálsmeðferðartími hælismála síðustu þrjá mánuði ársins var 84 dagar sem er undir 90 daga málsmeðferðarmarkmiðum stjórnvalda. Mál sem hlotið hafa flýtimeðferð þar sem umsækjendur komu frá öruggum ríkjum voru afgreidd á 8,8 dögum að meðaltali. Til samanburðar var meðalmálsmeðferðartími hælismála 237 dagar árið 2015 sem var ennfremur veruleg stytting frá árinu 2014.
Af tölum sem kærunefnd útlendingamála hefur tekið saman eftir annað starfsár nefndarinnar má sjá að málsmeðferðartími hefur haldið áfram að styttast. Blikur eru þó á lofti um framhaldið vegna takmarkaðra fjárheimilda nefndarinnar fyrir árið 2017. „Nefndin lítur svo á að stuttur málsmeðferðartími sé einn af hornsteinum mannúðlegrar málsmeðferðar umsókna um alþjóðlega vernd enda getur löng bið eftir niðurstöðu haft neikvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu umsækjenda. Málsmeðferðin verður þó að tryggja að mál fái einstaklingsbundna skoðun til að réttaröryggi þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd hér á landi sé tryggt,“ segir í samantekt nefndarinnar á tölfræði nefndarinnar.
Af tölum um starf nefndarinnar má einnig sjá verulega aukningu í fjölda innkominna mála sem og á afköstum nefndarinnar en nefndin afgreiddi tæplega fjórum sinnum fleiri hælismál á árinu 2016 en hún gerði árið á undan, eða 450 mál á móti 122 málum árið 2015. „Þrátt fyrir góðan árangur á árinu 2016 gefa fjárheimildir kærunefndarinnar vegna ársins 2017 ekki ástæðu til bjartsýni. Fái kærunefndin ekki viðbótarfjármagn þarf hún að draga verulega úr starfsemi sinni strax á næstu vikum og einungis geta sinnt brýnustu lágmarksstarfsemi frá og með júnímánuði. Málsmeðferðartímar munu þá fara að lengjast fljótlega og fyrir árslok ná þeirri lengd sem algeng var áður en nefndin hóf störf.“
Kærunefnd útlendingamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem úrskurðar í málum sem til hennar eru kærð á grundvelli laga um útlendinga. Nefndin var hóf störf snemma árs 2015. Hún er skipuð 7 nefndarmönnum. Formaður og varaformaður eru í fullu starfi hjá nefndinni. Auk þeirra starfa hjá nefndinni tveir yfirlögfræðingar, 13 lögfræðingar og tveir ritarar.
Fréttin byggir á samantekt Kærunefndar útlendingamála til handa fjölmiðlum.






