Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Neytendasamtökin færa út kvíarnar með appinu Neytandinn

$
0
0

Á næstu dögum munu Neytendasamtökin taka við rekstri Strimils-appsins, sem leyfir neytendum að bera safna miðlægt upplýsingum um verðlag í verslunum með því að skanna inn eigin innkaupastrimla í símann sinn. Strimillinn er app til að skanna innkaupastrimla og finna upplýsingar um verð, vörur og verslun. Notendur fá þannig yfirlit yfir eigin innkaup og getur borið verð innkaupakörfunnar saman við verðlag í fleiri verslunum. Þá safnar appið tilboðum neytendum til þægindaauka. „Nafn appsins mun samhliða þessu breytast í Neytandinn þar sem appið verður framvegis hugsað fyrir neytendur og neytendamál í víðu samhengi, þótt innlestur verðlagsgagna verði áfram í aðalhlutverki,“ segir í tilkynningu aðstandenda Strimilsins.

Auglýsing

neytandinnBreytingar á appinu

Fyrstu útgáfu appsins svipar til núverandi Strimils-apps með nokkrum breytingum þó, t.d. munu neytendur geta bent á það sem vel er gert og veitt markaðnum aðhald með því að senda ábendingar beint úr appinu. Til að varðveita hlutleysi appsins munum við svo taka út auglýst tilboð verslana. „Á næstu mánuðum verður þjónustuþáttum fjölgað, aðgengi að gögnum einfaldað og auðveldað og viðmótið gert einstaklingsmiðaðra.“

Núverandi notendur fá sjálfvirka uppfærslu

Þeir sem þegar nota Strimilinn mun á næstu dögum fá sjálfvirka uppfærslu. „Engar áhyggjur, strimlarnir þínir verða á sínum stað.
Við lítum þessar breytingar einstaklega jákvæðum augum, enda frábært skref í átt að opnun verðlagsgagna, upplýsingu neytenda og betri framtíð fyrir íslenskan dagvörumarkað.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images