Netákall Amnesty International:
Jabir Zain, aðgerðasinni frá Súdan sem býr í Líbíu, er enn í haldi á óþekktum stað eftir að þjóðvarnarlið landsins nam hann á brott í Trípólí. Samkvæmt fjölskyldu Zain sem ekki hefur náð tali af honum frá hvarfi hans, sætti Zain pyndingum í varðhaldi og á í hættu að vera vísað brott úr landi til Súdan. Að sögn fjölskyldu hans, hefur Zain sætt pyndingum og barsmíðum.
Smelltu hérna og þrýstu á innanríkisráðherra Líbíu að veita upplýsingar um hvar Zain er niðurkominn og að leysa hann tafarlaust úr haldi.
Að kvöldi dags þann 25. september 2016 voru Jabir Zain og þrír vinir hans numdir á brott eftir að hafa tekið þátt í málstofu um réttindi kvenna sem óháð félagasamtök stóðu að og haldin var á vinsælu kaffihúsi í úthverfi Trípólí. Nokkrum klukkustundum eftir mannránið var vinum Zain sleppt úr haldi en honum er enn haldið föngnum á óþekktum dvalarstað í Líbíu. Hann virðist hafa verið skotmark stjórnvalda vegna baráttu sinnar fyrir réttindum kvenna, sérstaklega á Facebook, þar sem Zain vakti reglulega máls á málaflokknum og birti sjónarmið sem eru umdeild í líbönsku samfélagi.



