Sigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu Brjánsdóttir, ræðir um dóttur sína í helgarblaði DV. Birna fæddist 28. nóvember árið 1996 á Landspítalanum. Tæpar tvær vikur eru liðnar frá hvarfi Birnu. Hún fannst látin í fjörunni við Selvogsvita síðasta sunnudag. Tveir karlmenn sitja í varðhaldi, grunaðir um að hafa orðið henni að bana.
„Það sem mér fannst skemmtilegast við hana var að hún var endalaust að koma mér og öðrum á óvart,“ segir Sigurlaug, sem gengur oftast undir nafninu Silla, við DV. Viðmælendur blaðsins lýsa Brynju sem fylgna sér. Vinir Birnu segja við blaðið að hún hafi kennt þeim að sjá lífið í skemmtilegu ljósi. Það tekur Silla undir og segir ánægjulegasta verkefni lífsins hafi verið að ala Birnu upp.
„Ég elskaði hana svo ótrúlega, ótrúlega mikið. Það sem ég er þakklátust fyrir er að ég var meðvituð um það alveg frá því að hún fæddist,“ segir hún við DV.
DV ræddi við Brján Guðmundsson, föður Birnu, þegar lýst var eftir henni. Hún bjó hjá honum undanfarin tvö ár. Þau feðgin voru miklir vinir og náin. „Hún flutti til mín þegar hún varð sjálfráða og við búum hérna saman, við tvö og kötturinn. Við erum rosalega náin og sambúðin er frábær. Hún er pabbastelpa og ég er Birnupabbi,“ sagði Brjánn þá við blaðið.
Áskrifendur DV geta lesið umfjöllun DV viðtalið í heild með því að smella hér.





