Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

26 Sýrlendingar koma til Íslands í dag

$
0
0

Tæplega þrjátíu flóttamenn  frá Sýrandi koma til landsins í dag. Þrettán börn eru í hópnum. Yngsti einstaklingurinn er eins árs. Allur hópurinn kemur frá flóttamannabúðum í Líbanon. Fólkið neyddist til að yfirgefa heimili sín fyrir tveimur til fjórum árum. Morgunblaðið greinir frá. Haft er eftir Önnu Láru Steindal, verkefnastjóra flóttafólks hjá Rauða krossinum í Reykjavík, að allir flóttamenn sem hún þekki og eigi börn hafi valið Ísland þeirra vegna. „ Í von um að börnin njóti hér framtíðartækifæra sem ekki eru lengur til staðar í heimalandinu.“

Auglýsing

Haft er eftir Önnu Láru Steindal, verkefnastjóra flóttafólks hjá Rauða krossinum í Reykjavík, að allir flóttamenn sem hún þekki og eigi börn hafi valið Ísland þeirra vegna. „ Í von um að börnin njóti hér framtíðartækifæra sem ekki eru lengur til staðar í heimalandinu.“

Ítarlega er fjallað um komu fólksins í prentútgáfu Morgunblaðsins í dag en í umfjölluninni kemur fram að fyrstu kvótaflóttamennirnir sem komið hafi hingað til lands hafi verið 30 manna hópur frá Ungverjalandi sem kom hingað árið 1956. „Þremur árum síðar komu hingað 32 Júgóslavía. Það var svo ekki fyrr en 20 árum síðar, árið 1979, að næsti hópur kom, 34 flóttamenn frá Víetnam.“

Auglýsing

18 hælisleitendur frá Sýrlandi fengu vernd hér á landi í fyrra samkvæmt tölfræði Útlendingastofnunar. 33 sóttu um vernd hér á landi en fjórir voru sendir burt með vísan til Dyflinnarreglugerðarinnar,níu fengu vernd í öðru ríki en tveir drógu umsókn sína til baka eða hurfu. Tölfræði Útlendingastofnunnar gerir ekki greinarmun á þessu tvennu. Hafa skal í huga að fólkið sem kemur í dag koma ekki hingað með sömu leiðum og þeir sem sækja um hæli.

Aðalmynd er úr skóla Intersos og UNICEF  í flóttamannabúðum í suðurhluta Líbanon. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images